1Og ég sá nýjan himin og nýja jörð því að hinn fyrri himinn og hin fyrri jörð voru horfin og hafið var ekki framar til.
2Og ég sá borgina helgu, nýja Jerúsalem, stíga niður af himni frá Guði, búna sem brúði er skartar fyrir manni sínum.
3Og ég heyrði raust mikla frá hásætinu er sagði: „Sjá, tjaldbúð Guðs er meðal mannanna og hann mun búa hjá þeim og þeir munu vera fólk hans og Guð sjálfur mun vera hjá þeim, Guð þeirra.
4Og hann mun þerra hvert tár af augum þeirra. Og dauðinn mun ekki framar til vera, hvorki harmur né vein né kvöl er framar til. Hið fyrra er farið.“
5Sá sem í hásætinu sat sagði: „Sjá, ég geri alla hluti nýja,“ og hann segir: „Rita þú, því að þetta eru orðin trúu og sönnu.“
6Og hann sagði við mig: „Það er fram komið. Ég er Alfa og Ómega, upphafið og endirinn. Ég mun gefa þeim ókeypis, sem þyrstur er, af lind lífsins vatns.
7Sá er sigrar mun erfa þetta og ég mun vera hans Guð og hann mun vera mitt barn.
8En staður er búinn í díkinu sem logar af eldi og brennisteini hugdeigum og vantrúuðum, viðurstyggilegum og manndrápurum, frillulífismönnum og töframönnum, skurðgoðadýrkendum og öllum lygurum. Það er hinn annar dauði.“
Ný Jerúsalem9Nú kom einn af englunum sjö, sem héldu á skálunum sjö, sem fullar voru af síðustu plágunum sjö, og talaði við mig og sagði: „Kom hingað og ég mun sýna þér brúðina, eiginkonu lambsins.“
10Og hann flutti mig í anda upp á mikið og hátt fjall og sýndi mér borgina helgu, Jerúsalem, sem steig niður af himni frá Guði.
11Hún hafði dýrð Guðs. Ljómi hennar var líkur dýrasta steini, sem jaspissteinn kristalskær.
12Hún hafði mikinn og háan múr og tólf hlið og við hliðin stóðu tólf englar og nöfn þeirra tólf kynkvísla Ísraelsmanna voru rituð á hliðin tólf.
13Móti austri voru þrjú hlið, móti norðri þrjú hlið, móti suðri þrjú hlið og móti vestri þrjú hlið.
14Og múr borgarinnar hafði tólf undirstöðusteina og á þeim nöfn hinna tólf postula lambsins.
15Og sá sem við mig talaði hélt á gullkvarða til að mæla borgina, hlið hennar og múr.
16Borgin liggur í ferhyrning, jöfn á lengd og breidd. Og hann mældi borgina með kvarðanum og var hún tólf þúsund skeið. Lengd hennar og breidd og hæð voru jafnar.
17Og hann mældi múr hennar. Eftir kvarða manns, sem engillinn notaði líka, var hann hundrað fjörutíu og fjórar álnir.
18Múr hennar var byggður af jaspis og borgin af skíra gulli, sem skært gler væri.
19Undirstöðusteinar borgarmúrsins voru skreyttir alls konar gimsteinum. Fyrsti undirstöðusteinninn var jaspis, annar safír, þriðji kalsedón, fjórði smaragður,
20fimmti sardónyx, sjötti sardis, sjöundi krýsólít, áttundi beryll, níundi tópas, tíundi krýsópras, ellefti hýasint, tólfti ametýst.
21Og hliðin tólf voru tólf perlur og hvert hlið úr einni perlu. Og stræti borgarinnar var af skíru gulli, sem gagnsætt gler.
22Ég sá ekki musteri í henni því að Drottinn Guð, hinn alvaldi, er musteri hennar og lambið.
23Og borgin þarf hvorki sólar við né tungls til að lýsa sér því að dýrð Guðs skín á hana og lambið er lampi hennar.
24Og þjóðirnar munu ganga í ljósi hennar og konungar jarðarinnar færa henni auðæfi sín.
25Hliðum hennar verður ekki lokað um daga því að þar mun aldrei koma nótt.
26Dýrð og vegsemd þjóðanna mun flytjast þangað.
27Ekkert óhreint, enginn sem fremur viðurstyggð eða fer með lygi mun koma þangað inn heldur þeir einir sem ritaðir eru í lífsins bók, bók lambsins.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.