Orðskviðirnir 25 - Biblían (2007)

1Þetta eru líka orðskviðir Salómons sem menn Hiskía Júdakonungs söfnuðu:

2Guði er sæmd að dylja mál,

konungum sæmd að útkljá mál.

3Eins og hæð himins og dýpt jarðar,

svo eru konungshjörtun órannsakanleg.

4Sé sorinn tekinn úr silfrinu,

þá fær smiðurinn ker úr því.

5Séu hinir ranglátu teknir burt frá augliti konungsins,

þá verður hásæti hans stöðugt í réttlæti.

6Stærðu þig ekki frammi fyrir konunginum

og ætlaðu þér ekki stað stórmenna

7því að betra er að menn segi við þig:

„Færðu þig hingað upp,“

en að menn niðurlægi þig frammi fyrir tignarmanni.

Hvað sem augu þín kunna að hafa séð,

8vertu þá ekki of hvatur í málavafstur

því að hverjar verða lyktirnar

ef náungi þinn gerir þér minnkun?

9Verðu rétt þinn gegn náunga þínum

en ljóstraðu ekki upp leyndarmálum annars manns

10til þess að sá sem heyrir það átelji þig ekki

og þú fáir á þig varanlegt óorð.

11Gullepli í silfurskálum,

svo eru vel valin orð.

12Eins og gullhringur og skartgripur af skíru gulli,

svo er áminning viturs manns sem hlýtt er á.

13Eins og snjósvali um uppskerutímann,

svo er áreiðanlegur sendiboði þeim sem sendir hann

því að hann hressir sál húsbónda síns.

14Ský og vindur en engin rigning,

svo er sá sem hrósar sér af örlæti en gefur þó ekkert.

15Með þolinmæði má telja höfðingja hughvarf,

mjúk tunga mylur bein.

16Finnir þú hunang, fáðu þér nægju þína

svo að þú verðir ekki ofsaddur af því og spýir því upp.

17Stígðu fæti þínum hóflega oft í hús náunga þíns

svo að hann verði ekki leiður á þér og honum í nöp við þig.

18Sleggja, sverð, hvöss ör,

svo er sá sem ber falsvitni gegn náunga sínum.

19Laus tönn og hrasandi fótur,

slíkt er traust á svikara á degi neyðarinnar.

20Að fara úr fötum í kalsaveðri,

að hella ediki í sár,

eins er að syngja sorgmæddum gleðisöngva.

21Ef óvin þinn hungrar, gefðu honum þá að eta

og þyrsti hann, gefðu honum þá að drekka

22því að þú safnar glóðum elds að höfði honum

og Drottinn mun endurgjalda þér það.

23Norðanvindurinn ber með sér regn

og launskraf reiðileg andlit.

24Betri er dvöl í horni á húsþaki

en sambúð við þrasgjarna konu.

25Eins og kalt vatn í skrælnaða kverk,

svo er heillafregn úr fjarlægu landi.

26Eins og grugguð lind og skemmdur brunnur,

svo er réttlátur maður er lætur undan vondum manni.

27Of mikið hunangsát er ekki gott,

vertu því spar á hólið.

28Eins og opin borg án borgarmúra,

svo er sá maður sem ekki hefur stjórn á skapi sínu.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help