Hebreabréfið 8 - Biblían (2007)

Æðsti prestur nýs sáttmála

1Höfuðinntak þess sem sagt hefur verið er þetta: Við höfum þann æðsta prest er settist til hægri handar við hásæti hátignarinnar á himnum.

2Hann þjónar sem prestur í helgidóminum, hinni sönnu tjaldbúð sem Drottinn reisti en eigi maður.

3Sérhver æðsti prestur er skipaður til þess að bera fram bæði gjafir og fórnir. Þess vegna er nauðsynlegt að þessi æðsti prestur hafi líka eitthvað fram að bera.

4Væri hann nú á jörðu mundi hann alls ekki vera prestur, þar sem prestar eru fyrir sem samkvæmt lögmálinu bera fram gjafirnar.

5En tjaldbúðin þar sem þeir þjóna er eftirlíking og skuggi hinnar himnesku, eins og Móse fékk bendingu um frá Guði er hann var að koma upp tjaldbúðinni: „Gæt þess,“ segir hann, „að þú gerir allt eftir þeirri fyrirmynd sem þér var sýnd á fjallinu.“

6En nú hefur Jesús fengið þeim mun ágætari helgiþjónustu sem hann er meðalgangari betri sáttmála sem byggist á traustari fyrirheitum.

7Hefði hinn fyrri sáttmáli verið óaðfinnanlegur hefði ekki verið þörf fyrir annan.

8En nú ávítar Guð þá og segir:

Sjá, dagar koma, segir Drottinn,

þegar ég geri nýjan sáttmála við hús Ísraels og Júda.

9Hann verður ekki eins og sáttmálinn sem ég gerði við feður þeirra

á þeim degi þegar ég tók í hönd þeirra og leiddi þá út úr Egyptalandi

því að þeir rufu sáttmála minn

og ég hirti eigi um þá, segir Drottinn.

10Þannig er sáttmálinn sem ég mun gera við Ísraelsmenn

þegar þessir dagar eru liðnir, segir Drottinn:

Ég mun leggja lög mín í hugskot þeirra

og rita þau á hjörtu þeirra.

Ég mun vera Guð þeirra

og þeir vera fólk mitt.

11Enginn mun framar kenna landa sínum

og bróður að segja: „Þekktu Drottin!“

Allir munu þekkja mig,

bæði smáir og stórir.

12Því að ég mun taka vægt á misgjörðum þeirra

og mun ekki framar minnast synda þeirra.

13Þar sem hann nú kallar þetta nýjan sáttmála þá hefur hann lýst hinn fyrri úreltan. En það sem er að úreldast og fyrnast er að því komið að verða að engu.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help