Jesaja 1 - Biblían (2007)

Fyrsti hluti

1Vitrun Jesaja Amotssonar um Júda og Jerúsalem sem hann fékk í stjórnartíð Ússía, Jótams, Akasar og Hiskía, konunga í Júda.

Drottinn ákærir þjóð sína

2Heyr þú, himinn,

hlusta þú, jörð,

því að Drottinn talar.

Ég hef fóstrað börn og alið þau upp

en þau hafa brugðist mér.

3Uxinn þekkir eiganda sinn

og asninn jötu húsbónda síns

en Ísrael þekkir ekki,

fólk mitt skilur ekki.

4Vei syndugri þjóð,

lýð sem hlaðinn er misgjörðum,

niðjum illræðismanna,

spilltum börnum.

Þér hafið yfirgefið Drottin,

hafnað Hinum heilaga Ísraels

og snúið baki við honum.

5Hvar má enn ljósta yður

sem sífellt eruð fráhverfir?

Höfuðið er allt í sárum,

hjartað allt sjúkt.

6Frá hvirfli til ilja er ekkert heilt,

hvarvetna mar, undir og opin sár

sem hvorki eru hreinsuð né bundið um

né mýkt með olíu.

7Land yðar er auðn,

borgirnar brenndar.

Fyrir augum yðar gleypa útlendingar akurland yðar,

það er eyðimörk

líkt og varð þegar Sódómu var eytt.

8Dóttirin Síon er ein eftir

eins og skýli í víngarði,

eins og afdrep á gúrkuakri,

eins og umsetin borg.

9Hefði Drottinn allsherjar

ekki látið oss eftir örfáa sem björguðust,

hefðum vér orðið eins og Sódóma,

líkst Gómorru.

Fánýtar fórnir

10Heyrið orð Drottins,

höfðingjar Sódómu.

Hlýðið á leiðsögn Guðs vors,

íbúar Gómorru:

11Hvað varða mig yðar mörgu sláturfórnir?

spyr Drottinn.

Ég hef fengið of mikið af brennifórnum hrúta

og feiti alikálfa,

í blóð úr nautum, lömbum og geitum langar mig ekki.

12Þegar þér komið til að líta auglit mitt,

hver hefur þá beðið yður

að traðka forgarða mína?

13Færið mér ekki framar fánýtar kornfórnir,

reykelsi er mér viðurstyggð.

Tunglkomudagar, hvíldardagar og hátíðarsamkomur,

ég þoli ekki að saman fari ranglæti og hátíðarglaumur.

14Ég hata tunglkomudaga yðar og hátíðir,

þær eru mér byrði,

ég er orðinn þreyttur á að bera þær.

15Þegar þér lyftið höndum yðar í átt til mín

loka ég augunum

og þótt þér biðjið margra bæna

heyri ég ekki.

Hendur yðar eru ataðar blóði.

16Þvoið yður! Hreinsið yður!

Fjarlægið illvirki yðar frá augum mínum.

Hættið að gera illt,

17lærið að gera gott,

leitið réttarins,

hjálpið hinum kúgaða.

Rekið réttar munaðarleysingjans.

Verjið mál ekkjunnar.

18Komið, vér skulum eigast lög við,

segir Drottinn.

Þó að syndir yðar séu sem skarlat

skulu þær verða hvítar sem mjöll.

Þó að þær séu rauðar sem purpuri

skulu þær verða sem ull.

19Ef þér eruð auðsveipir og hlýðnir

skuluð þér njóta landsins gæða

20en séuð þér óhlýðnir og þrjóskir

verðið þér sverði bitnir.

Munnur Drottins hefur talað það.

Dómur yfir Jerúsalem

21Hin trúfasta borg er orðin skækja,

hún sem var full af réttvísi.

Fyrrum bjó réttlæti í henni

en nú morðingjar.

22Silfur þitt er orðið að sora,

vín þitt blandað vatni.

23Leiðtogar þínir eru uppreisnarmenn

og lagsmenn þjófa.

Allir eru þeir mútuþægir

og sækjast eftir gjöfum.

Þeir reka ekki réttar munaðarlausra

og málefni ekkjunnar koma ekki fyrir þá.

24Þess vegna segir Drottinn allsherjar,

hinn voldugi í Ísrael:

Vei, ég mun svala mér á andstæðingum mínum,

hefna mín á óvinum mínum.

25Ég ætla að snúa hendi minni gegn þér

og hreinsa úr þér sorann með lút

og skilja frá allt blýið.

26Þá mun ég fá þér dómara eins og þá sem voru í öndverðu

og ráðgjafa líka þeim sem voru í upphafi.

Eftir það verður þú nefnd Borg réttlætisins,

Virkið trúfasta.

27Síon verður frelsuð með réttvísi

og með réttlæti þeir sem iðrast.

28En lögbrjótar og syndarar verða upprættir

og þeim sem yfirgefa Drottin verður eytt.

29Þér munuð skammast yðar fyrir eikurnar

sem þér hafið mætur á

og roðna af blygðun vegna garðanna

sem þér kusuð yður.

30Þér verðið sjálfir eins og eik

með visnuðu laufi,

eins og lundur

án vatns.

31Þá verður hinn voldugi að hálmi

og verk hans neisti,

hvort tveggja brennur í senn

og enginn til að slökkva.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help