Fyrsta Mósebók 49 - Biblían (2007)

Jakob veitir sonum sínum tólf blessun

1Þá lét Jakob kalla á syni sína og mælti: Safnist saman, ég ætla að segja ykkur hvað muni henda ykkur á komandi tímum.

2Komið saman og hlýðið á, synir Jakobs,

hlýðið á Ísrael föður yðar.

3Rúben, þú ert frumburður minn,

kraftur minn og frumgróði styrkleika míns,

fremstur að virðingu og fremstur að mætti.

4Þú ólgar sem vatnið,

ekki skaltu fremstur vera

því að þú lagðist í hvílu föður þíns,

vanhelgaðir sæng mína.

5Símeon og Leví eru bræður,

sverð þeirra eru ofbeldistól.

6Ég vil ekki blanda geði við þá,

ekki taka þátt í samkomum þeirra

því að í reiði sinni drápu þeir menn

og í ofsa sínum lömuðu þeir nautin.

7Bölvuð sé reiði þeirra því að hún var römm

og bræði þeirra því að hún var grimm.

Ég skal dreifa þeim í Jakob

og tvístra þeim í Ísrael.

8Júda, þig munu bræður þínir vegsama.

Hönd þín mun vera á hálsi óvina þinna,

synir föður þíns skulu lúta þér.

9Júda er ljónshvolpur,

þú hefur snúið heim frá bráðinni, sonur minn.

Sem ljón leggst hann niður og hvílist

og sem ljónynja, hver þorir að vekja hann?

10Hvorki mun veldissprotinn víkja frá Júda

né stafurinn frá fótum hans.

Honum verður sýnd lotning

og þjóðirnar ganga honum á hönd.

11Hann bindur asna sinn við víntré

og ösnufola sinn við gæðavínvið.

Hann þvær klæði sín í víni

og möttul sinn í vínberjablóði.

12Augu hans eru dekkri en vín

og tennur hans hvítari en mjólk.

13Sebúlon mun búa við sjávarströndina,

við ströndina þar sem skipin leggjast að

og land hans nær allt til Sídon.

14Íssakar er sterkur asni

sem liggur á milli fjárbyrgjanna.

15Hann sá að hvíldarstaðurinn var góður

og landið unaðslegt,

því beygði hann herðar sínar undir byrðar

og gerðist ánauðugur þræll.

16Dan mun rétta hlut þjóðar sinnar

sem hver önnur Ísraels ættkvísl.

17Dan verður höggormur á veginum

og naðra í götunni

sem hælbítur hestinn

svo að kappinn fellur aftur á bak.

18Ég vænti hjálpar þinnar, Drottinn!

19Ræningjar ráðast á Gað

en hann ræðst á þá og rekur á flótta.

20Frá Asser kemur ríkuleg fæða

og hann veitir konungakrásir.

21Naftalí er rásandi hind

sem fæðir fagra kálfa.

22Jósef er ungur aldinviður,

ungur aldinviður við lind,

greinar hans teygja sig upp yfir múrinn.

23Bogmenn gerðu áhlaup,

skutu og sóttu að honum

24en bogi hans er stöðugur

og handleggir hans sterkir.

Styrkurinn kemur frá Jakobs Volduga,

frá Hirðinum, Hellubjargi Ísraels,

25frá Guði föður þíns sem hjálpar þér,

frá Almáttugum Guði sem blessar þig

með blessun af himnum ofan,

með blessun djúpsins undir niðri,

með blessun brjósta og móðurlífs,

26með blessun korns og blóma,

með blessun aldinna fjalla, með unaði eilífra hæða.

Megi hún koma yfir höfuð Jósefs

og hvirfil hans, höfðingja bræðra sinna.

27Benjamín er gráðugur úlfur.

Á morgnana etur hann bráð

og á kvöldin skiptir hann herfangi.

28Þetta voru allar tólf ættkvíslir Ísraels og þetta er það sem faðir þeirra sagði við þá. Jakob blessaði þá alla með þeirri blessun sem hverjum þeirra bar.

Jakob deyr og er grafinn

29Síðan gaf hann þeim þessi fyrirmæli: „Nú þegar ég safnast til míns fólks skuluð þið jarða mig hjá feðrum mínum, í hellinum í landi Efrons Hetíta,

30í hellinum sem er í Makpelalandi gegnt Mamre í Kanaanslandi. Abraham keypti þennan helli og akur af Efron Hetíta fyrir grafreit.

31Þar var Abraham jarðaður og Sara, kona hans, þar var Ísak jarðaður og Rebekka, kona hans, og þar jarðaði ég Leu.

32Akurinn og hellirinn, sem á honum er, voru keyptir af Hetítum.“

33Þegar Jakob hafði gefið sonum sínum þessi fyrirmæli lyfti hann fótum sínum upp í hvíluna. Síðan gaf hann upp andann og safnaðist til síns fólks.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help