Fyrri konungabók 5 - Biblían (2007)

Veldi Salómons

1Salómon ríkti yfir öllum ríkjum frá fljótinu Efrat til lands Filistea og landamæra Egyptalands. Íbúar þeirra færðu Salómon skatt og voru honum undirgefnir á meðan hann lifði.

2Salómon þurfti daglega til matar handa mönnum sínum þrjátíu kór af hveiti og sextíu kór af grófu mjöli,

3tíu alinaut, tuttugu hagagengin naut og hundrað fjár, auk hjarta, gasellna, dádýra og alifugla,

4enda drottnaði hann yfir öllu svæðinu hérna megin við Efrat, frá Tífsa til Gasa. Hann drottnaði yfir öllum konungum hérna megin fljótsins. Hann lifði í friði við alla nágranna sína

5svo að íbúar Júda og Ísraels bjuggu við öryggi. Frá Dan til Beerseba sat hver maður undir vínviði sínum og fíkjutré á meðan Salómon lifði.

6Salómon hafði stalla í hesthúsum fyrir fjögur þúsund hesta sem drógu hervagna hans og hann mannaði vagnana með tólf þúsund.

7Héraðsstjórarnir sáu Salómon konungi og öllum, sem boðnir voru til borðs konungs, fyrir vistum, sinn mánuðinn hver. Létu þeir ekkert skorta.

8Þeir fluttu bygg og hálm handa hestunum og dráttardýrunum á þann stað sem hverjum þeirra hafði verið gefin skipun um.

Viska Salómons

9Guð gaf Salómon speki og mikinn skilning og svo víðfeðma þekkingu sem sandur á sjávarströnd.

10Speki Salómons var meiri en speki allra Austurlandabúa og tók fram allri speki Egypta.

11Hann var allra manna vitrastur, vitrari en Etan Esrahíti og Heman, Kalkól og Darda Mahólssynir. Nafn hans var þekkt meðal allra nágrannaþjóða.

12Hann samdi þrjú þúsund spakmæli og kvæði hans voru eitt þúsund og fimm talsins.

13Hann orti um trén, allt frá sedrustrjánum á Líbanonsfjöllum til ísópsins sem vex á múrveggnum. Hann orti um fénaðinn og fuglana, skriðdýrin og fiskana.

14Fólk af öllu þjóðerni kom til þess að heyra spakmæli Salómons, sendimenn frá öllum konungum heimsins sem heyrt höfðu af speki hans.

Musterisbygging undirbúin

15Híram, konungur í Týrus, sendi þjóna sína til Salómons af því að hann hafði frétt að hann hefði verið smurður til konungs í stað föður síns. Híram hafði alltaf verið vinur Davíðs.

16Salómon sendi til Hírams með þessi skilaboð:

17„Þú veist að Davíð, faðir minn, gat ekki reist hús handa nafni Drottins, Guðs síns, vegna þess að hann varð að berjast við fjandmenn sína sem umkringdu hann þar til Drottinn lagði þá undir iljar hans.

18En nú hefur Drottinn, Guð minn, tryggt frið umhverfis mig. Enginn ógnar mér og engin hætta steðjar að.

19Þess vegna ætla ég að reisa nafni Drottins, Guðs míns, hús eins og Drottinn sagði við Davíð, föður minn: Sonur þinn, sem ég mun setja í hásæti þitt á eftir þér, mun reisa nafni mínu hús.

20Gefðu því skipun um að sedrustré verði höggvin á Líbanonsfjöllum handa mér. Verkamenn mínir skulu vinna með þínum verkamönnum og ég borga þér það kaup sem þú setur upp fyrir þína verkamenn. Eins og þú veist höfum við engan mann hér sem kann að höggva tré eins og íbúarnir í Sídon.“

21Þegar Híram heyrði orðsendingu Salómons varð hann mjög glaður og sagði: „Lofaður sé Drottinn sem hefur gefið Davíð vitran son til þess að ríkja yfir þessari fjölmennu þjóð.“

22Síðan sendi Híram Salómon þetta svar: „Ég hef heyrt orðsendingu þína. Ég mun gera það við sedrusviðinn og kýprusviðinn sem þú óskaðir.

23Verkamenn mínir munu flytja viðinn frá Líbanonsfjöllum niður til sjávar. Síðan læt ég fleyta honum þangað sem þú óskar. Þar læt ég leysa viðinn sundur svo að þú getir sótt hann. Í staðinn skaltu uppfylla ósk mína og senda vistir handa hirð minni.“

24Híram sendi Salómon allan þann sedrusvið og kýprusvið sem hann bað um.

25Salómon sendi tuttugu þúsund kór af hveiti til matar handa hirð hans og tuttugu þúsund böt af olíu úr pressuðum ólífum. Þetta sendi Salómon til Hírams á hverju ári.

26Drottinn gaf Salómon speki eins og hann hafði heitið honum. Það fór vel á með Híram og Salómon og þeir gerðu sáttmála sín á milli.

Kvaðavinnan

27Salómon konungur kallaði menn úr öllum Ísrael til kvaðavinnu og urðu kvaðavinnumennirnir þrjátíu þúsund að tölu.

28Hann sendi þá til skiptis til Líbanons, tíu þúsund í hverjum mánuði. Þeir voru einn mánuð í Líbanon og tvo mánuði heima. Adóníram stjórnaði kvaðavinnunni.

29Enn fremur hafði Salómon sjötíu þúsund burðarmenn og áttatíu þúsund steinsmiði í fjöllunum.

30Auk yfirhéraðsstjóra Salómons voru þrjú þúsund og þrjú hundruð verkstjórar yfir þeim sem verkið unnu.

31Konungur gaf skipun um að brjóta stóra valda steina til þess að hann gæti gert undirstöðu hússins úr höggnu grjóti.

32Smiðir Salómons og Hírams ásamt mönnum frá Gebel hjuggu steinana til og gengu frá viðnum og steinunum til byggingarinnar.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help