Orðskviðirnir 21 - Biblían (2007)

1Hjarta konungsins er sem lækir í hendi Drottins,

hann sveigir þá hvert sem honum þóknast.

2Maðurinn telur alla hætti sína rétta

en Drottinn vegur hjörtun.

3Að ástunda réttlæti og rétt

er Drottni þóknanlegra en sláturfórn.

4Drembilát augu og hrokafullt hjarta,

lampi ranglátra er syndin.

5Áform hins iðjusama færa arð

en hroðvirkni endar í örbirgð.

6Fjársjóðir, fengnir með lygum,

eru sem svipull vindblær og snörur dauðans.

7Ráðríki ranglátra feykir þeim burt

því að þeir hafna réttlátri breytni.

8Hlykkjótt er leið hins seka

en verk hins hreina eru vammlaus.

9Betri er dvöl í horni á húsþaki

en sambúð við þrasgjarna konu.

10Hinn rangláti girnist illt,

náungi hans finnur enga miskunn hjá honum.

11Sé spottaranum refsað verður hinn fávísi hygginn

og sé vitur maður fræddur vex hann að viti.

12Hinn réttláti fylgist með húsi hins rangláta

og steypir óguðlegum í ógæfu.

13Sá sem daufheyrist við kveini hins fátæka

mun sjálfur kalla og ekki fá bænheyrslu.

14Gjöf á laun sefar reiði

og umbun í leyni ákafa bræði.

15Réttlátum manni er gleði að gera það sem rétt er

en illvirkjum er það skelfing.

16Sá maður sem villist af vegi viskunnar

mun brátt hvílast í samneyti framliðinna.

17Öreigi verður sá sem sólginn er í skemmtanir,

sá sem sólginn er í vín og olíu verður ekki ríkur.

18Hinn rangláti er lausnargjald hins réttláta

og svikarinn kemur í stað hinna vammlausu.

19Betra er að búa í eyðimörk

en með þrasgjarnri og geðillri konu.

20Dýrmætur fjársjóður og olía er í heimkynnum hins vitra

en heimskur maður sólundar því.

21Sá sem ástundar réttlæti og kærleika

öðlast líf, velgengni og heiður.

22Vitur maður vann borg kappanna

og reif niður vígið sem hún treysti á.

23Sá sem gætir munns síns og tungu

forðar sjálfum sér frá nauðum.

24Sá sem er hrokafullur og dramblátur kallast spottari,

hann lætur stýrast af skefjalausum hroka.

25Óskir letingjans verða honum að falli,

hendur hans vilja ekki vinna,

26langanir fylla hug hans daglangt

en hinn réttláti gefur og er ekki naumur.

27Sláturfórn hins rangláta er Drottni andstyggð,

einkum sé hún færð af illum ásetningi.

28Falsvottur mun tortímast

en sá sem hlustar grannt er vitnisbær.

29Illmennið setur upp þóttafullan svip

en hinn vammlausi hyggur að háttum sínum.

30Engin viska, engin skynsemi,

engin ráð eru til gegn Drottni.

31Hesturinn er búinn til orrustudagsins

en sigurinn er í hendi Drottins.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help