Dómarabókin 13 - Biblían (2007)

Fæðing Samsonar

1Ísraelsmenn gerðu enn að nýju það sem illt var í augum Drottins. Þá gaf Drottinn þá í hendur Filisteum í fjörutíu ár.

2Maður er nefndur Manóa. Hann var frá Sorea, af ætt Dans. Kona hans var óbyrja og hafði ekki barn alið.

3Engill Drottins birtist konunni og sagði við hana: „Þú ert óbyrja og hefur ekkert barn alið en þú munt verða þunguð og fæða son.

4Hafðu nú gætur á þér, drekktu hvorki vín né áfengan drykk og leggðu þér ekkert óhreint til munns

5því að þú verður þunguð og fæðir son og skal rakhnífur ekki koma á höfuð hans því að sveinninn skal vera helgaður Guði allt frá móðurlífi og hann mun hefja frelsun Ísraels úr hendi Filistea.“

6Þá fór konan og sagði við mann sinn: „Guðsmaður nokkur kom til mín og var hann svo ógurlegur ásýndum sem engill Guðs væri en ég spurði hann ekki hvaðan hann væri og nafn sitt sagði hann mér ekki.

7Hann sagði við mig: Þú munt verða þunguð og fæða son. Drekktu því hvorki vín né áfengan drykk og leggðu þér ekkert óhreint til munns því að sveinninn skal vera helgaður Guði allt frá móðurlífi til dauðadags.“

8Þá bað Manóa Drottin og sagði: „Æ, herra, láttu guðsmanninn, sem þú sendir, koma til okkar aftur svo að hann geti kennt okkur hvernig við eigum að fara með sveininn sem á að fæðast.“

9Guð heyrði bæn Manóa og engill Guðs kom aftur til konunnar. Var hún þá stödd úti á víðavangi og Manóa maður hennar var ekki hjá henni.

10Þá hljóp konan sem skjótast til manns síns og sagði við hann: „Maðurinn, sem kom til mín um daginn, hefur birst mér.“

11Þá reis Manóa upp og fór á eftir konu sinni. Hann kom til mannsins og sagði við hann: „Ert þú maðurinn sem talaðir við konuna?“ Hann svaraði: „Já.“

12Þá sagði Manóa: „Ef það kemur fram sem þú hefur sagt, hvernig á þá að fara með sveininn og hvað á hann að gera?“

13Engill Drottins sagði við Manóa: „Konan skal forðast allt það sem ég hef sagt henni.

14Hún skal ekkert það snæða er af vínviði kemur, hvorki drekka vín né áfengan drykk, og ekki leggja sér neitt óhreint til munns. Hún skal gæta alls þess sem ég hef boðið henni.“

15Þá sagði Manóa við engil Drottins: „Leyfðu okkur að tefja þig stundarkorn svo að við getum eldað handa þér kiðling.“

16En engill Drottins sagði við Manóa: „Þótt þú fáir mig til að tefja snæði ég samt ekki af mat þínum en viljir þú útbúa brennifórn skaltu færa Drottni hana.“

17En Manóa vissi ekki að þetta var engill Drottins. Þá sagði Manóa við engil Drottins: „Hvert er nafn þitt? Rætist orð þín munum við tigna þig.“

18Engill Drottins svaraði honum: „Hví spyrð þú mig að nafni? Nafn mitt er undursamlegt.“

19Manóa tók geithafurinn og matfórnina og færði hana Drottni á kletti einum. Þá urðu undur mikil að þeim Manóa og konu hans ásjáandi.

20Þegar logann lagði upp af altarinu til himins leið engill Drottins upp í altarisloganum. Þegar þau Manóa og kona hans sáu það féllu þau til jarðar fram á ásjónu sína.

21Eftir þetta birtist engill Drottins Manóa og konu hans ekki framar. Þá sá Manóa að þetta hafði verið engill Drottins.

22Manóa sagði við konu sína: „Við munum örugglega deyja því að við höfum séð Guð.“

23En kona hans svaraði: „Hefði Drottinn viljað deyða okkur þá hefði hann ekki þegið brennifórn og matfórn af okkur eða látið okkur sjá allt þetta og þá hefði hann ekki látið okkur heyra hluti sem þessa.“

24Konan ól son og nefndi hann Samson og sveinninn óx upp og Drottinn blessaði hann.

25Og andi Drottins tók að hreyfa við honum í herbúðum Dans milli Sorea og Estaól.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help