Jobsbók 5 - Biblían (2007)

1Hrópaðu nú. Heldur þú að einhver svari þér?

Til hvers hinna heilögu ætlarðu að snúa þér?

2Gremjan gerir út af við heimskingjann

og ákafinn verður einfeldningnum að bana.

3Ég hef sjálfur séð heimskingja festa rætur

en ég formælti bústað hans þegar í stað.

4Börn hans voru heillum horfin

og troðin niður í borgarhliðinu

þar sem enginn var til að bjarga þeim.

5Uppskeru hans át hungraður maður,

sótti hana jafnvel inn í þyrna,

hinn þyrsti ásældist auð hans.

6Nei, bölið sprettur ekki úr moldinni

og þjáningin vex ekki úr jarðveginum

7heldur er maðurinn borinn til böls

eins og neistar sem þeytast upp.

8Ég mundi leita til Guðs

og leggja mál mín fyrir hann

9sem vinnur ómæld stórvirki,

kraftaverk sem ekki verður tölu á komið.

10Hann gefur jörðinni regn

og sendir vatn yfir vellina.

11Hann upphefur smælingja

og syrgjendum verður hjálpað.

12Hann spillir ráðum lævísra

og hendur þeirra fá engu áorkað.

13Hann geldur slóttugum í sömu mynt

og bragðvísir falla á eigin bragði

14svo að þeir lenda í myrkri um miðjan dag

og þreifa fyrir sér á hádegi eins og um nótt.

15Hann bjargar snauðum frá sverði munns þeirra

og úr greipum hins volduga.

16Þannig öðlast hinn hjálparlausi von

og vonskan lokar gini sínu.

17Sæll er sá sem Guð leiðbeinir,

sá sem hafnar ekki ögun Hins almáttka

18því að hann særir en bindur um,

hann slær en hendur hans græða.

19Úr sex nauðum bjargar hann þér,

í þeirri sjöundu snertir þig ekkert illt.

20Í hallæri bjargar hann þér frá dauða

og frá mætti sverðsins í stríði.

21Þú verður varinn fyrir svipu tungunnar

og þarft ekkert að óttast þegar eyðingin kemur,

22þú getur hlegið að eyðingu og hungri

og villidýrin þarftu ekki að óttast.

23Þú ert í bandalagi við steinana á sléttunni

og dýr merkurinnar eru þér vinveitt,

24þú verður þess vís að tjald þitt er óhult

og skoðir þú bústað þinn sérðu að ekkert skortir,

25þú kemst að raun um að niðjar þínir eru margir,

afkvæmi þín sem gras á grundu,

26þú nýtur heilsu þar til þú verður grafinn

líkt og kornknippi sem sótt er á réttum tíma.

27Þetta höfum vér hugleitt, þannig er það.

Vér höfum hlustað, hafðu það hugfast.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help