Esekíel 32 - Biblían (2007)

Harmljóð yfir krókódílnum faraó

1Á fyrsta degi tólfta mánaðar tólfta ársins kom orð Drottins til mín:

2Mannssonur, hef upp harmljóð um faraó, konung Egyptalands, og segðu við hann:

Þú líkist ljóni þjóðanna.

Þú varst eins og krókódíll í vötnum,

blést vatninu með nösum þínum,

gruggaðir það með fótum þínum

og æstir upp öldurnar.

3Svo segir Drottinn Guð:

Ég mun þenja net mitt yfir þig

með hjálp margra þjóða sem safnast hafa saman.

Þær munu draga þig upp í neti mínu.

4Síðan kasta ég þér upp á þurrt land,

fleygi þér út á bersvæði,

læt alla fugla himinsins setjast að á þér,

og seð öll dýr merkurinnar með þér.

5Ég mun láta kjöt þitt á fjöllin

og fylla dalina hræi þínu.

6Ég brynni jörðinni með því sem úr þér streymir

og fylli farvegina í fjöllunum blóði þínu.

7Ég mun byrgja himininn

þegar líf þitt fjarar út.

Ég mun myrkva stjörnurnar,

hylja sólina skýjum

og tunglið mun ekki bera birtu.

8Allan ljóma himinljósanna

myrkva ég vegna þín

og sendi myrkur yfir land þitt,

segir Drottinn Guð.

9Ég mun valda ókyrrð meðal margra þjóða þegar ég tilkynni fall þitt í löndum sem þú þekkir ekki.

10Ég mun skelfa margar þjóðir þín vegna og hárin munu rísa á höfðum konunga þeirra þegar ég reiði sverð mitt gegn þeim. Þeir munu allir sem einn titra og skjálfa og óttast um líf sitt daginn sem þú fellur.

11Því að svo segir Drottinn Guð: Sverð konungsins í Babýlon mun koma gegn þér.

12Ég mun fella mannmergð þína

með sverði hermannanna

sem allir eru frá grimmustu þjóðum.

Þeir munu eyða stolti Egypta

og allri dýrð þeirra verður tortímt.

13Ég mun eyða öllu kvikfé þeirra

við hin miklu vötn

og hvorki mun mannsfótur grugga þau framar

né klaufir nokkurrar skepnu.

14Þá læt ég gruggið í vötnum þeirra setjast

og læt fljót þeirra streyma sem olíu,

segir Drottinn Guð.

15Þegar ég geri Egyptaland að eyðimörk

og það verður svipt gnægtum sínum,

þegar ég felli alla sem þar búa,

munu þeir skilja að ég er Drottinn.

16Þetta er harmljóð og skal flutt sem harmljóð. Dætur þjóðanna skulu syngja það sem harmljóð, þær skulu syngja það um Egyptaland og alla dýrð þess, segir Drottinn Guð.

Harmljóð um faraó og fylgdarlið hans

17Á fimmtánda degi fyrsta mánaðar í tólfta árinu kom orð Drottins til mín:

18Mannssonur, harma þú dýrð Egyptalands og sendu hana niður til þjóðanna. Sendu hana niður í undirheima, til þeirra sem grafnir eru.

19Berðu af einhverjum að fegurð?

Farðu niður og leggstu hjá hinum óumskornu.

20Þeir munu falla

innan um hina vopnbitnu.

21Hinir sterku kappar tala við Egyptaland

og bandamenn þess mitt úr ríki dauðra og segja:

„Hinir óumskornu, hinir vopnbitnu,

fóru niður og lögðust fyrir.“

22Þarna er Assúr og allt hans lið,

umhverfis hann eru grafir hans.

Þeir voru allir reknir í gegn,

féllu fyrir sverði.

23Honum var fengin gröf

í hyldýpinu,

lið hans er umhverfis gröf hans.

Þeir voru allir reknir í gegn,

féllu fyrir sverði,

þeir sem breiddu út skelfingu

á landi lifenda.

24Þarna er Elam og allt hans lið

umhverfis gröf hans.

Þeir voru allir reknir í gegn,

féllu fyrir sverði.

Þeir fóru óumskornir

til undirheima.

Þeir sem breiddu út skelfingu

á landi lifenda,

þeir bera nú skömm sína

ásamt þeim sem grafnir voru.

25Elam og öllu liði hans var fengin hvíla

meðal þeirra sem reknir voru í gegn.

Umhverfis hann eru grafir þeirra,

allra hinna óumskornu

sem voru lagðir sverði

og breiddu út skelfingu

á landi lifenda.

Þeir bera nú skömm sína

ásamt þeim sem grafnir voru.

Þeim var komið fyrir innan um vopnbitna menn.

26Þarna eru Mesek og Túbal og allt þeirra lið.

Umhverfis hann eru grafir þeirra,

allra hinna óumskornu

sem voru lagðir sverði

þó að þeir breiddu út skelfingu

á landi lifenda.

27Þeir liggja ekki hjá föllnum köppum fortíðar

sem stigu herklæddir niður í undirheima

og lögðu sverð sín undir höfuð sér

en skildir þeirra lágu á beinum þeirra.

Því að ótti við kappana

hvíldi yfir landi lifenda.

28Þú verður einnig mölbrotinn á meðal óumskorinna

og munt liggja hjá þeim sem lagðir voru sverði.

29Þarna er Edóm, konungar hans og allir höfðingjar.

Þrátt fyrir hreysti sína var þeim komið fyrir

innan um þá sem lagðir voru sverði.

Þeir liggja hjá hinum óumskornu

og þeim sem grafnir voru.

30Þarna eru allir höfðingjar landanna í norðri

og allir frá Sídon.

Þeir stigu niður ásamt vopnbitnum mönnum

þrátt fyrir skelfinguna sem þeir breiddu út.

Þeir urðu til skammar þrátt fyrir hreysti sína.

Þeir liggja óumskornir hjá þeim sem lagðir voru sverði

og bera skömm sína

ásamt þeim sem grafnir voru.

31Faraó mun sjá þá

og láta huggast eftir missi allrar dýrðar sinnar.

Faraó og allar hersveitir hans

hafa nú verið lagðir sverði,

segir Drottinn Guð.

32Því að ég hef breitt út ótta

við hann á landi lifenda.

Faraó og öllum hersveitum hans verður komið fyrir

á meðal óumskorinna, hjá þeim sem lagðir voru sverði,

segir Drottinn Guð.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help