Jobsbók 39 - Biblían (2007)

1Veistu hvenær steingeitur bera,

fylgistu með fæðingarhríðum hinda?

2Telurðu mánuðina sem þær ganga með

og veistu hvenær þær bera?

3Þær hnipra sig saman, bera kálfum sínum

og losna við hríðarnar.

4Kálfarnir styrkjast og dafna í haganum,

hlaupa burt og koma ekki aftur til þeirra.

5Hver sleppti villiasnanum lausum

og hver leysti fjötra sléttuasnans?

6Ég gerði auðnina að heimkynnum hans

og saltsléttuna að bústað hans.

7Hann hlær að skarkala borgarinnar

og heyrir ekki köll smalanna,

8hann leitar haga í fjöllunum,

sækir í allt grænt.

9Vill villinautið þræla fyrir þig,

stendur það næturlangt við jötu þína?

10Geturðu bundið villinautið í plógfarinu með reipum,

plægir það dalgrundirnar á eftir þér?

11Treystirðu því af því að afl þess er mikið

og lætur það erfiða fyrir þig?

12Treystirðu því til að flytja korn þitt

og safna því á þreskivöll þinn?

13Vængjablak strútshænunnar er skoplegt,

verður vængjum hennar líkt við flugfjaðrir storks og fálka?

14Þegar hún skilur egg sín eftir á jörðinni

svo að þau haldist heit í sandinum

15gleymir hún að fótur getur kramið þau

og villidýr troðið þau í sundur.

16Hún beitir unga sína hörðu eins og hún ætti þá ekki.

Þótt erfiði hennar sé til einskis stendur henni á sama

17því að Guð synjaði henni um skynsemi

og veitti henni enga hlutdeild í skilningi.

18En þegar hún stekkur upp, baðar vængjum,

hlær hún að hesti og riddara.

19Gafstu hestinum afl,

klæddirðu makka hans faxi,

20læturðu hann stökkva eins og engisprettu?

Tignarlegt hnegg hans er ógnvekjandi.

21Hann krafsar upp grundina og gleðst,

sterkur veður hann gegn vopnum,

22hlær að hræðslu, óttast ekkert

og hopar ekki fyrir sverði.

23Á baki hans glamrar í örvamæli,

spjót og bjúgsverð leiftra,

24með hávaða og harki þýtur hann yfir landið,

stansar ekki við hornaþyt.

25Hann hneggjar þegar horn er þeytt,

hefur veður af bardaga langt að,

köllum liðsforingja og herópum.

26Er það fyrir þína visku sem fálkinn flýgur upp

og þenur vængina til suðurs?

27Hefur örninn sig til flugs eftir þinni skipun

og gerir sér hreiður hátt uppi?

28Hann býr í björgum og náttar þar

á klettagnípum og fjallatindum,

29þaðan skyggnist hann eftir bráð,

augu hans horfa langt í fjarska.

30Unga hans þyrstir í blóð

og þar sem fallnir liggja

er hann kominn.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help