1Síðan leiddi maðurinn mig aftur að dyrum musterisins. Þá sá ég að vatn kom upp undan þröskuldi hússins og rann til austurs, en framhlið hússins sneri í austur. Vatnið streymdi upp við hægri hlið hússins, sunnan við altarið.
2Þá leiddi hann mig út um norðurhliðið, fór með mig að musterishliðinu. Þar streymdi vatnið fram við suðurhliðina.
3Þegar maðurinn kom út austan megin hafði hann mælikvarða í hendi. Hann mældi þúsund álnir og lét mig vaða yfir vatnið sem tók mér í ökkla.
4Þá mældi hann aftur þúsund álnir og lét mig vaða yfir vatnið sem nú tók mér í hné. Hann mældi enn þúsund álnir og lét mig vaða yfir og þá tók vatnið mér í mjöðm.
5Hann mældi enn þúsund álnir og var þá vatnið orðið að fljóti sem ég gat ekki vaðið yfir. Það var orðið svo djúpt að synda varð yfir það. Það var orðið óvætt fljót.
6Hann spurði mig: „Mannssonur, sástu þetta?“ Því næst sneri hann við og leiddi mig aftur að fljótsbakkanum.
7Þegar ég kom þangað aftur sá ég fjölmörg tré á fljótsbökkunum beggja vegna.
8Þá sagði hann við mig: „Þetta vatn streymir út á landsvæðið fyrir austan, síðan rennur það niður Jórdanardal og fellur loks í hafið og þá verður saltvatnið heilnæmt
9og allt sem lifir og hrærist, hvar svo sem fljótið streymir, mun lifa. Fiski mun fjölga stórum þar sem fljótið kemur því að þar verður vatnið heilnæmt og allt gæðist lífi þar sem fljótið streymir.
10Frá En Gedí og alla leið til En Eglaím munu fiskimenn standa við það og þar verða net breidd til þerris. Þar verða fjölmargar tegundir fiska og fjöldi þeirra verður eins og í hafinu mikla.
11En mýrarnar og fenin fá ekki ferskt vatn, þau eru ætluð til saltvinnslu.
12En á báðum bökkum fljótsins munu hvers kyns aldintré vaxa. Lauf þeirra mun ekki visna og ávextirnir, sem þau bera, aldrei þverra. Í hverjum mánuði bera þau nýja ávexti því að vatnið í fljótinu kemur frá helgidóminum. Ávextirnir verða hafðir til matar og blöðin til lækninga.“
Skipting landsins13Svo segir Drottinn Guð: Þetta eru landamæri landsins sem þið skuluð skipta á milli hinna tólf ættbálka Ísraels í erfðalönd. Jósef skal þó fá tvo hluti.
14Hver þeirra skal fá þar erfðaland eins og ættbróðir hans þar sem ég sór með upplyftri hendi að gefa feðrum ykkar þetta land og það skal verða erfðaland ykkar.
15Þetta eru landamæri landsins:
Að norðanverðu liggja landamærin frá hafinu mikla í áttina að Hetlón og til Lebó Hamat, Sedad,
16Beróa, Sibraím, sem er á mörkum landanna sem heyra til Damaskus og Hamat, allt að Hasar Enón við landamæri Havrans.
17Landamærin liggja því frá hafinu til Hasar Enón, þannig að löndin sem heyra til Damaskus og lönd Hamats eru norðan þeirra. Þetta eru landamærin að norðanverðu.
18Að austanverðu eru landamærin milli Havran og Damaskus með fram Jórdan, sem er á landamærum Gíleaðs og lands Ísraels, og að austurhafinu allt að Tamar. Þetta eru landamærin austan megin.
19Að sunnanverðu liggja landamærin frá Tamar til Meribavatna við Kades og að læknum sem rennur í hafið mikla. Þetta eru landamærin að sunnanverðu í Negeb.
20Að vestanverðu eru landamærin við hafið mikla að stað gegnt Lebo Hamat. Það eru landamærin að vestanverðu.
21Þessu landi skuluð þið skipta á milli ættbálka Ísraels.
22Þið skuluð skipta því með hlutkesti í erfðalönd milli ykkar og þeirra aðkomumanna sem hafa leitað hælis hjá ykkur og hafa eignast börn hjá ykkur. Þið skuluð telja þá með innfæddum Ísraelsmönnum. Þeir skulu ásamt ykkur hljóta erfðaland á meðal ættbálka Ísraels.
23Þið skuluð fá aðkomumanninum erfðaland hjá þeim ættbálki sem hann hefur leitað hælis hjá, segir Drottinn Guð.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.