Síðari Samúelsbók 10 - Biblían (2007)

Davíð sigrar Ammóníta og Aramea

1Nokkru síðar bar svo við að konungur Ammóníta dó og Hanún, sonur hans, varð konungur eftir hann.

2Þá sagði Davíð: „Ég ætla að sýna Hanún Nahassyni vináttu eins og faðir hans sýndi mér.“ Davíð sendi því menn til hans og lét þjóna sína færa honum samúðarkveðjur vegna fráfalls föður hans.

Þegar þjónar Davíðs komu til lands Ammóníta

3sögðu höfðingjar Ammóníta við Hanún, húsbónda sinn: „Heldurðu að Davíð hafi það eitt í huga að heiðra minningu föður þíns þegar hann sendir menn með samúðarkveðjur? Ætli Davíð hafi ekki öllu heldur sent þjóna sína til þín til að afla upplýsinga um borgina og njósna um hana til að geta brotið hana?“

4Hanún lét þá grípa þjóna Davíðs, raka af þeim hálft skeggið og skera föt þeirra til hálfs, allt upp að þjóhnöppum, og lét þá svo fara.

5Þegar Davíð hafði verið sagt þetta sendi hann menn til móts við þá. Af því að mennirnir höfðu verið niðurlægðir á svívirðilegan hátt lét konungur skila til þeirra: „Verið um kyrrt í Jeríkó þar til skegg ykkar er sprottið aftur. Þá skuluð þið koma heim.“

6Ammónítum varð nú ljóst að þeir höfðu gert Davíð að hatursmanni sínum. Þeir sendu þá menn til að ráða málaliða, tuttugu þúsund arameíska fótgönguliða frá Bet Rehób og Sóba, þúsund manns frá konunginum í Maaka og tólf þúsund frá Tób.

7Þegar Davíð frétti þetta sendi hann Jóab af stað ásamt öllum hernum, öllum vopnfærum mönnum.

8Þá héldu Ammónítarnir út úr borginni og fylktu sér til orrustu fyrir framan borgarhliðið en Aramearnir frá Sóba og Rehób, ásamt mönnunum frá Tób og Maaka, stóðu einir sér úti á völlunum.

9Þegar Jóab varð ljóst að árásarlið ógnaði honum í bak og fyrir valdi hann menn úr úrvalsliði Ísraels og fylkti þeim gegn Arameunum.

10Það sem eftir var af hernum setti hann undir stjórn Abísaí, bróður síns, sem fylkti honum gegn Ammónítum.

11Þá sagði Jóab: „Ef Aramear reynast öflugri en ég verðurðu að koma mér til hjálpar. En reynist Ammónítar þér yfirsterkari kem ég þér til hjálpar.

12Sýndu nú hugrekki. Við skulum berjast hraustlega fyrir þjóð okkar og borgir Guðs okkar en Drottinn gerir það sem honum þóknast.“

13Jóab og lið hans réðst nú til atlögu gegn Arameum en þeir flýðu undan honum.

14Þegar Ammónítar sáu að Aramear voru flúnir lögðu þeir á flótta undan Abísaí og tókst að komast inn í borgina. Eftir bardagann við Ammóníta sneri Jóab heim til Jerúsalem.

15Þegar Arameum varð ljóst að Ísraelsmenn höfðu sigrað þá söfnuðust þeir aftur saman.

16Hadadeser sendi menn til að kveðja Arameana, sem bjuggu handan fljótsins, til herþjónustu. Þeir komu til Helam undir stjórn Sóbaks, hershöfðingja Hadadesers.

17Jafnskjótt og Davíð var tilkynnt um þetta safnaði hann öllum Ísrael saman, fór yfir Jórdan og hélt til Helam. Þar fylktu Aramear liði gegn Davíð og réðust til atlögu við hann.

18En Aramear urðu að flýja undan Ísraelsmönnum. Davíð braut sjö hundruð stríðsvagna Aramea og felldi fjörutíu þúsund riddara. Hann felldi einnig Sóbak, hershöfðingja þeirra, og lét hann þar lífið.

19Þegar öllum undirkonungum Hadadesers var orðið ljóst að þeir höfðu verið ofurliði bornir af Ísraelsmönnum sömdu þeir frið við Ísrael og gengu honum á hönd. Þaðan í frá þorðu Aramear ekki að hjálpa Ammónítum.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help