Prédikarinn 1 - Biblían (2007)

Allt er hégómi

1Orð prédikarans, sonar Davíðs, konungs í Jerúsalem.

2Aumasti hégómi, segir prédikarinn,

aumasti hégómi, allt er hégómi.

3Hvaða gagn hefur maðurinn af öllu erfiði sínu

sem hann streitist við undir sólinni?

4Ein kynslóð fer, önnur kemur

en jörðin stendur að eilífu.

5Og sólin rennur upp og sólin gengur undir

og hraðar sér aftur til samastaðar síns

þar sem hún rennur upp.

6Vindurinn gengur til suðurs

og snýr sér til norðurs,

hann snýr sér og snýr sér

og hringsnýst á nýjan leik.

7Allar ár renna í sjóinn

en sjórinn fyllist ekki.

Þangað sem árnar renna

munu þær ávallt renna.

8Allt er sístritandi,

enginn maður fær því með orðum lýst,

augað verður aldrei satt af að sjá

og eyrað verður aldrei mett af að heyra.

9Það sem hefur verið mun verða

og það sem gerst hefur mun enn gerast

og ekkert er nýtt undir sólinni.

10Sé nokkuð til er um verði sagt:

Þetta er nýtt,

þá hefur það orðið fyrir löngu,

fyrir okkar tíma.

11Forfeðranna minnast menn ekki

og ekki verður afkomenda heldur minnst

meðal þeirra sem síðar koma.

Sjálf spekin er hégómi

12Ég, prédikarinn, var konungur yfir Ísrael í Jerúsalem.

13Ég kappkostaði að rannsaka og kynna mér til hlítar allt það sem gerist undir himninum. Það er erfið þraut sem Guð hefur íþyngt mönnunum með.

14Ég hef séð öll verk sem unnin eru undir sólinni og öll voru þau hégómi og eftirsókn eftir vindi.

15Hið bogna verður ekki rétt

og það sem á skortir verður ekki talið.

16Ég hugsaði með mér: Ég hef aflað mér meiri og víðtækari speki en allir sem ríkt hafa yfir Jerúsalem á undan mér og hjarta mitt hefur ríkulega kynnst speki og þekkingu.

17Ég lagði allan hug á að þekkja speki og þekkja flónsku og heimsku og komst að raun um að einnig það var að sækjast eftir vindi.

18Því að mikilli speki fylgir mikið angur

og sá sem eykur þekkingu sína eykur kvöl sína.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help