Fjórða Mósebók 24 - Biblían (2007)

1Þegar Bíleam skildi að það var Drottni þóknanlegt að blessa Ísrael vék hann ekki afsíðis til að leita spáfregna eins og fyrri skiptin, heldur sneri hann í átt til eyðimerkurinnar.

2Þegar Bíleam leit upp sá hann Ísrael sem hafði sest að eftir ættbálkum. Þá kom andi Guðs yfir hann

3og hann tók að flytja boðskap sinn og sagði:

Svo segir Bíleam Beórsson,

svo segir maður með lokuð augu,

4svo segir sá sem heyrir orð Guðs,

sem sér það sem Alvaldur birtir,

hann liggur með opin augu.

5Hve fögur eru tjöld þín, Jakob,

bústaðir þínir, Ísrael.

6Þeir eru breiddir út sem árkvíslir,

eins og trjágarðar á fljótsbakka,

eins og eik gróðursett af Drottni,

sedrustré við vatn.

7Vatn flýtur úr fötu hans

og útsæði hans er baðað í vatni.

Konungur hans er voldugri en Agag

og konungsvald hans eflist.

8Guð leiddi hann út úr Egyptalandi,

hann ber horn sem villinaut,

gleypir þjóðir sem þrengja að honum,

molar bein þeirra

og brýtur örvar þeirra.

9Hann bælir sig, leggst eins og ljón,

ungt ljón, hver rekur það á fætur?

Blessaður sé hver sem blessar þig,

bölvaður hver sem bölvar þér.

10Reiði Balaks blossaði nú upp gegn Bíleam, hann sló saman lófum og sagði við hann: „Ég sótti þig til að bölva fjandmönnum mínum en þú hefur blessað þá þrisvar.

11Farðu nú heim til þín. Ég lofaði þér miklum launum en Drottinn kom í veg fyrir það.“

12Þá sagði Bíleam við Balak: „Sagði ég ekki við mennina sem þú sendir til mín:

13Þó að Balak gæfi mér hús sitt fullt af silfri og gulli gæti ég ekki gengið gegn boðum Drottins og gert gott eða illt að eigin geðþótta. Ég hlýt að segja það eitt sem Drottinn býður.

14En nú ætla ég að fara heim til þjóðar minnar. Samt ætla ég að skýra þér frá því hvernig þessi þjóð mun fara með þjóð þína þegar fram líða stundir.“

15Hann tók að flytja boðskap sinn og sagði:

Svo segir Bíleam Beórsson,

svo segir maður með lokað auga,

16svo segir sá sem heyrir orð Guðs,

sem sér það sem Alvaldur birtir

og hefur hnigið niður með opin augu.

17Ég sé hann, en ekki nú,

horfi á hann, samt er hann ekki nærri.

Stjarna rís upp frá Jakobi,

veldissproti hefst upp í Ísrael

sem merja mun gagnaugu Móabs

og hvirfil allra sona Sets.

18Edóm verður tekinn til eignar

og Seír, fjandmaður hans, verður einnig tekinn til eignar

en Ísrael eflist

19og Jakob mun ríkja.

Hann mun eyða þeim sem komust undan frá borginni.

20Þegar hann sá Amalek flutti hann boðskap sinn og sagði:

Amalek var fremstur þjóða

en fellur í valinn að lokum.

21Þegar hann sá Keníta flutti hann boðskap sinn og sagði:

Dvalarstaður þinn er traustur,

hreiður þitt gert á kletti,

22samt verður því eytt.

Hve langt er þar til Assúr flytur þig burt sem fanga, Kain?

23Hann tók enn að flytja boðskap sinn og sagði:

Vei! Hverjir flykkjast að úr norðri?

24Skip koma frá Kittum,

þau munu niðurlægja Assúr, niðurlægja Eber

en hann mun einnig farast að lokum.

25Síðan hélt Bíleam af stað og fór aftur heim til sín. Balak fór einnig leiðar sinnar.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help