1Þetta eru lögin um sektarfórnina: Hún er háheilög.
2Sektarfórnardýrinu skal slátrað á sama stað og brennifórnardýrinu og presturinn skal dreypa blóðinu á allar hliðar altarisins.
3Því næst skal hann færa fram allan mörinn úr fórnardýrinu: rófuna, netjuna sem hylur iðrin,
4bæði nýrun ásamt nýrnamörnum, sem er innan á mölunum, og lifrarblaðið sem hann skal skilja frá við nýrun.
5Presturinn skal láta þetta líða upp í reyk af altarinu. Það er eldfórn handa Drottni.
Þetta er sektarfórn.
6Sérhver karlmaður meðal prestanna má eta þetta. Þess skal neytt á helgum stað og það er háheilagt.
7Sömu lög gilda um sektarfórn og um syndafórn: Hún kemur í hlut þess prests sem friðþægir með henni.
8Presturinn sem færir brennifórn fyrir einhvern skal fá húð brennifórnardýrsins sem hann ber fram.
9Presturinn sem færir fórnina skal fá sérhverja kornfórn sem bökuð er í ofni eða tilreidd í suðupotti eða á pönnu.
10En allir synir Arons skulu sameiginlega fá þá kornfórn sem hrærð er saman við olíu eða er þurr.
11Þetta eru lögin um heillafórn sem Drottni er færð:
12Ætli einhver að færa hana sem þakkarfórn skal hann bera fram ósýrðar, olíublandaðar, kringlóttar kökur, ósýrðar flatkökur smurðar með olíu og kringlóttar kökur úr fínu mjöli, olíublönduðu.
13Hann skal færa fram gjöf sína með kringlóttum súrdeigskökum sem lokaþakkarfórn.
14Hann skal færa Drottni eitt brauð af hverri tegund í afgjald sem kemur í hlut prestsins sem stökkvir blóði heillafórnarinnar.
15Kjöt þakkar- og heillafórnardýrsins skal etið daginn sem hann færir gjöf sína. Ekki má geyma neitt af því til morguns.
16Ef sláturfórn hans er heitfórn eða sjálfviljug fórn skal neyta fórnarkjötsins daginn sem hann ber fram fórn sína en þess sem eftir verður má neyta daginn eftir.
17En það sem kann að verða eftir af sláturfórninni á þriðja degi skal brennt í eldi.
18Verði einhvers af heillafórnarkjötinu neytt á þriðja degi verður því ekki tekið með velþóknun. Það sem hann bar fram tilreiknast honum ekki heldur telst það viðurstyggð. Hver sem neytir þess skal bera sekt sína.
19Ekki skal neyta kjöts sem hefur komist í snertingu við eitthvað óhreint heldur skal það brennt í eldi.
Sérhver hreinn maður má neyta kjöts af fórnardýri
20en hver sá sem neytir kjöts af heillafórn sem Drottinn á, þegar hann er óhreinn, skal upprættur úr þjóð sinni.
21Snerti einhver það sem óhreint er, óhreinan mann, óhreinan fénað eða óhreint skriðkvikindi, og eti síðan af kjöti sláturfórnar, sem Drottinn á, skal sá maður upprættur úr þjóð sinni.“
22Drottinn talaði við Móse og sagði:
23„Ávarpaðu Ísraelsmenn og segðu: Þið megið ekki neyta mörs úr nautum, sauðfé eða geitum.
24Mör úr sjálfdauðum eða dýrrifnum skepnum má nýta til hvers sem vera skal en þið megið ekki neyta hans.
25Neyti einhver mörs úr fénaði, sem Drottni hefur verið færð eldfórn af, skal sá maður upprættur úr þjóð sinni.
26Þið skuluð ekki neyta blóðs, hvorki úr fuglum né fénaði, hvar svo sem þið búið.
27Hver sem neytir nokkurs blóðs skal upprættur úr þjóð sinni.“
28Drottinn talaði við Móse og sagði:
29„Ávarpaðu Ísraelsmenn og segðu: Hver sá sem færir Drottni heillafórn skal taka gjöf sína af heillafórninni og færa hana Drottni.
30Hann skal bera hana fram í höndum sér sem eldfórn handa Drottni.
Hann skal bera fram mörinn ásamt bringunni til að veifa frammi fyrir augliti Drottins
31en mörinn skal presturinn láta líða upp í reyk af altarinu.
Aron og synir hans skulu fá bringuna
32en prestinum skuluð þið fá hægra lærið sem hlutdeild í heillafórn ykkar.
33Sá sona Arons, sem færir fram blóð heillafórnarinnar og mör, skal fá hægra lærið.
34Bringuna, sem veifað var, og lærið af heillafórn þeirra tek ég af Ísraelsmönnum og gef þau Aroni presti og sonum hans sem ævarandi skyldugreiðslu.
35Þetta er hluti Arons og sona hans af eldfórnum Drottins daginn sem hann leiðir þá fram til að gegna prestsþjónustu fyrir Drottin.
36Drottinn hefur boðið Ísraelsmönnum að greiða þeim þetta daginn sem hann smyr þá. Það er ævarandi skyldugreiðsla frá einni kynslóð til annarrar.“
37Þetta eru lögin um brennifórn, kornfórn, syndafórn, sektarfórn, vígslufórn og heillafórn,
38lögin sem Drottinn lagði fyrir Móse á Sínaífjalli daginn sem hann bauð Ísraelsmönnum að færa Drottni gjafir sínar í Sínaíeyðimörkinni.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.