1Guð talaði fyrrum oftsinnis og með mörgu móti til feðranna fyrir munn spámannanna.
2En nú í lok þessara daga hefur hann til okkar talað í syni sínum sem hann setti erfingja allra hluta. Fyrir hann hefur hann líka heimana gert.
3Hann, sem er ljómi dýrðar hans og ímynd veru hans og ber allt með orði máttar síns, hreinsaði okkur af syndum okkar og settist til hægri handar hátigninni á hæðum.
Sonurinn öllum æðri4Hann er orðinn englunum þeim mun meiri sem hann hefur að erfðum tekið ágætara nafn en þeir.
5Því við hvern af englunum hefur hann nokkru sinni sagt:
Þú ert sonur minn,
í dag hef ég fætt þig?
Eða:
Ég vil vera honum faðir
og hann skal vera mér sonur?
6Og aftur er hann leiðir frumburðinn inn í heimsbyggðina segir hann:
Allir englar Guðs skulu tilbiðja hann.
7Og um englana segir hann:
Hann sem gerir engla sína að vindum
og þjóna sína að eldslogum.
8En um soninn:
Hásæti þitt, Guð, er um aldir alda
og sproti réttvísinnar er sproti ríkis þíns.
9Þú hefur elskað réttlæti og hatað ranglæti.
Því hefur Guð, þinn Guð,
smurt þig gleðinnar olíu fram yfir þína jafningja.
10Og:
Þú, Drottinn, hefur í upphafi grundvallað jörðina
og himnarnir eru verk handa þinna.
11Þeir munu farast en þú varir.
Allir munu þeir fyrnast sem fat
12og þú munt þá saman vefja eins og möttul,
um þá verður skipt sem klæði.
En þú ert hinn sami og þín ár taka aldrei enda.
13En við hvern af englunum hefur hann nokkru sinni sagt:
Set þig mér til hægri handar
uns ég geri óvini þína að fótskör þinni?
14Eru þeir ekki allir andar sem þjóna Guði, sendir til að hjálpa þeim sem hjálpræðið eiga að erfa?
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.