1Þegar Jósúa var orðinn gamall og hniginn að aldri sagði Drottinn við hann: „Þú ert orðinn gamall og aldurhniginn en samt er enn mikið af landinu sem ekki hefur verið tekið til eignar.
2Þetta er landið sem eftir er: Öll lönd Filistea og allt land Gesúríta
3frá Síhórá austan við Egyptaland og norður til landa Ekrons sem allt telst heyra Kanverjum til. Auk þess fimm höfðingjadæmi Filistea í Gasa, Asdód, Askalon, Gat og Ekron, einnig Avítar
4í suðri, allt land Kanverja og Meara, sem heyrir Sídon til, allt að Afek til lands Amoríta,
5einnig land Giblíta og allt Líbanon í austur frá Baal Gað, sem er undir Hermonfjalli, og til Lebó Hamat.
6Ég mun sjálfur hrekja úr vegi Ísraelsmanna alla íbúa fjalllendisins, frá Líbanon til Misrefót Majím, alla Sídoninga. En þú skalt kasta hlut um landið og skipta því í erfðahluti eins og ég hef boðið þér.
7Skiptu þessu landi nú þegar í erfðahluti með ættbálkunum níu og hálfum ættbálki Manasse.“
Skipting lands austan við Jórdan8Hinn helmingur ættbálks Manasse og niðjar Rúbens og Gaðs höfðu þegar tekið við erfðahlut sínum sem Móse fékk þeim austan við Jórdan. Þetta er það sem Móse, þjónn Drottins, fékk þeim:
9landið frá Aróer í jaðri Arnondalsins, frá borginni, sem er í dalnum miðjum, alla sléttuna frá Medeba til Díbon,
10allar borgir Síhons Amorítakonungs, sem ríkti í Hesbon, og allt að landsvæði Ammóníta.
11Auk þess fékk hann þeim Gíleað og landsvæði Gesúríta og Maakatíta og allt Hermonfjalllendið og allt Basansvæðið að Salka,
12enn fremur allt konungsríki Ógs í Basan, sem ríkti í Astarót og Edrei. Hann var einn af þeim fáu Refaítum sem eftir voru en þá hafði Móse sigrað og rekið brott.
13En Ísraelsmenn ráku ekki Gesúríta og Maakatíta burt. Þess vegna búa Gesúrítar og Maakatítar meðal Ísraels enn þann dag í dag.
14Ættbálki Leví einum gaf Jósúa engan erfðahlut: Eldfórnir Drottins, Guðs Ísraels, eru erfðahlutur hans, eins og Drottinn hafði sagt við hann.
15Móse hafði fengið hverri ætt fyrir sig í ættbálki niðja Rúbens land sem hér segir:
16Landið frá Aróer í jaðri Arnondalsins og frá borginni, sem er í dalnum miðjum, alla sléttuna við Medeba,
17Hesbon og allar borgirnar á sléttunni umhverfis hana, Díbon, Bamót Baal, Bet-Baal-Meon
18Jahsa, Kedemót, Mefaat,
19Kirjataím, Síbma, Seret Sahar á fjallinu í dalnum,
20Bet Peór, Pisgahlíðar og Bet Jesímót,
21auk þess allar borgirnar á sléttunni, gjörvallt ríki Síhons Amorítakonungs sem hafði ríkt í Hesbon. Móse hafði sigrað hann og höfðingja Midíaníta frá Eví, Rekem, Súr, Húr og Reba, en þeir höfðu verið herforingjar Síhons og bjuggu í landinu.
22Ísraelsmenn höfðu einnig drepið spásagnamanninn Bíleam Beórsson með sverði auk hinna sem þegar höfðu verið felldir.
23Jórdan markaði landamæri Rúbensniðja. Borgirnar og þorpin umhverfis þær voru erfðahlutur Rúbensniðja, hverrar ættar um sig.
24Móse hafði fengið ættbálki niðja Gaðs land, hverri ætt fyrir sig.
25Þeir hlutu Jasersvæðið, allar borgir í Gíleað, helming lands Amoríta að Aróer, sem er gegnt Rabba,
26einnig landið frá Hesbon að Ramat Mispe og Betóním og frá Mahanaím að Lídebírlandi
27og að auki Bet Haram, Bet Nimra, Súkkót og Safón í dalnum, leifar konungsríkis Síhons, konungs í Hesbon, og enn fremur Jórdan og landið austan við Jórdan að strönd Kinneretvatns.
28Þessar borgir ásamt þorpunum umhverfis voru erfðahlutur hverrar ættar niðja Gaðs.
29Móse hafði einnig fengið hálfum ættbálki niðja Manasse land, hverri ætt um sig.
30Land þeirra var frá Mahanaím, allt Basansvæðið, allt konungsríki Ógs, konungs í Basan, og auk þess öll tjaldaþorp Jaírs í Basan. Alls voru það sextíu borgir.
31Niðjar Makírs, sonar Manasse, helmingur niðja Makírs, hver ætt fyrir sig, hlutu helming af Gíleað, Astarót og Edrei, en það voru höfuðborgir konungsríkis Ógs í Basan.
32Það eru þau svæði sem Móse hafði skipt í erfðahluti á sléttunum í Móab, handan við Jórdan, austan Jeríkó.
33En ættbálki Leví fékk Móse engan erfðahlut. Drottinn, Guð Ísraels, er erfðahlutur hans, eins og hann hafði sagt þeim.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.