Önnur Mósebók 23 - Biblían (2007)

Lög um réttarvernd

1Þú skalt ekki breiða út róg. Þú skalt ekki leggja þeim lið sem fer með rangt mál með því að bera ljúgvitni.

2Þú skalt ekki fylgja meirihlutanum til illra verka. Þú skalt ekki vitna gegn andstæðingi í neinni sök þannig að þú fylgir meirihlutanum og hallir réttu máli.

3Þú skalt ekki draga taum fátæks manns í málaferlum.

4Rekist þú á villuráfandi naut eða asna óvinar þíns skaltu færa honum skepnuna aftur.

5Sjáir þú asna andstæðings þíns liggja uppgefinn undir byrðinni skaltu ekki láta hann afskiptalausan heldur rétta honum hjálparhönd.

6Þú skalt ekki halla rétti fátæks manns sem hjá þér er þegar hann á í málaferlum.

7Forðastu mál byggð á lygi og vertu ekki valdur að dauða saklauss manns og réttláts því að ég dæmi ekki sekan mann saklausan.

8Þú skalt ekki þiggja mútur því að mútur blinda sjáandi menn og rugla málum þeirra sem hafa rétt fyrir sér.

9Þú skalt ekki beita aðkomumann ofríki. Þið farið nærri um líðan aðkomumannsins því að þið voruð aðkomumenn í Egyptalandi.

Lög um hvíldarár og hvíldardag

10Í sex ár skaltu sá í land þitt og hirða afrakstur þess

11en sjöunda árið skaltu láta það liggja ónotað og hvílast. Þá geta hinir fátæku meðal þjóðar þinnar lifað af því og það sem þeir skilja eftir geta villt dýr étið. Þú skalt fara eins með víngarð þinn og ólífutré.

12Í sex daga skaltu vinna verk þitt en sjöunda daginn skaltu ekkert verk vinna svo að uxi þinn og asni geti hvílt sig og sonur ambáttar þinnar og aðkomumaðurinn geti endurnærst.

13Þið skuluð gæta ykkar í öllu sem ég hef lagt fyrir ykkur. Þið megið ekki nefna nöfn annarra guða, þau mega ekki heyrast af munni þínum.

Lög um hátíðir

14Þrisvar á ári skaltu halda mér hátíð.

15Þú skalt halda hátíð hinna ósýrðu brauða. Þú skalt eta ósýrt brauð í sjö daga eins og ég hef boðið þér, á tilteknum tíma í abíbmánuði, því að í þeim mánuði fórstu út úr Egyptalandi. Enginn tómhentur fær að koma fyrir auglit mitt.

16Þú skalt einnig halda hátíð kornuppskerunnar, hátíð frumgróða verka þinna, þess sem þú sáðir í akurinn. Loks skaltu halda uppskeruhátíð við árslok þegar þú hefur flutt heim afrakstur vinnu þinnar af akrinum.

17Þrisvar á ári skulu allir karlmenn meðal þín sjá auglit Drottins.

18Þú skalt ekki bera fram blóð sláturfórnar minnar með sýrðu brauði. Mör hátíðarfórnar minnar má ekki liggja yfir nótt til morguns.

19Það besta af frumgróða lands þíns skaltu færa í hús Drottins, Guðs þíns.

Þú skalt ekki sjóða kið í mjólk móður sinnar.

Fyrirheit og áminningar

20Ég sendi engil á undan þér til að vernda þig á leiðinni og leiða þig til þess staðar sem ég hef ákveðið.

21Gættu þín og hlustaðu á það sem hann segir. Óhlýðnastu honum ekki, hann mun ekki fyrirgefa þrjósku ykkar af því að nafn mitt er í honum.

22En ef þú hlýðir honum fúslega og gerir allt sem ég segi verð ég óvinur óvina þinna og andstæðingur andstæðinga þinna.

23Engill minn hefur gengið á undan þér og leitt þig inn í land Amoríta, Hetíta, Peresíta, Kanverja, Hevíta og Jebúsíta og ég skal tortíma þeim.

24Þú mátt hvorki falla fram fyrir guðum þeirra né þjóna þeim. Þú mátt ekki fylgja siðum þeirra heldur skaltu brjóta þá gersamlega niður og mölbrjóta merkisteina þeirra.

25Þið skuluð þjóna Drottni, Guði ykkar, og hann mun blessa brauð þitt og vatn og ég mun bægja frá þér sjúkdómum.

26Í landi þínu mun engin kona missa fóstur né verða barnlaus. Ég mun fylla fjölda ævidaga þinna.

27Ég mun senda ótta við mig á undan þér og valda glundroða á meðal allra þeirra þjóða sem þú kemur til og láta alla fjandmenn þína flýja undan þér.

28Ég mun senda hugleysi á undan þér og það mun hrekja Hevíta, Kanverja og Hetíta á flótta.

29Ég mun ekki flæma þá undan þér á einu ári svo að landið leggist ekki í auðn og villidýrunum fjölgi ekki þér til meins.

30Smám saman mun ég hrekja þá undan þér þar til þú hefur fjölgað þér og getur tekið landið að erfðahlut.

31Ég mun láta landsvæði þitt ná frá Sefhafinu að Filisteahafi og frá eyðimörkinni að fljótinu. Ég mun selja íbúa landsins ykkur í hendur svo að þú getir hrakið þá undan þér.

32Þú skalt hvorki gera sáttmála við þá né guði þeirra.

33Þeir mega ekki búa í landi þínu svo að þeir fái þig ekki til að syndga gegn mér með því að þjóna guðum þeirra. Það yrði þér að tálsnöru.“

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help