1Sveinninn Samúel gegndi nú þjónustu við Drottin undir handleiðslu Elí. Á þessum tíma var orð Drottins sjaldgæft og sýnir fátíðar.
2Einhverju sinni bar svo við að Elí lá og svaf þar sem hann var vanur. Hann var hættur að sjá því að augu hans höfðu daprast.
3Lampi Guðs hafði enn ekki slokknað og Samúel svaf í musteri Drottins þar sem örk Guðs stóð.
4Þá kallaði Drottinn til Samúels og hann svaraði: „Já, hér er ég.“
5Hann hljóp síðan til Elí og sagði: „Hér er ég, þú kallaðir á mig.“ En hann svaraði: „Ég kallaði ekki, farðu aftur að sofa,“ og Samúel fór að sofa.
6Drottinn kallaði þá aftur: „Samúel!“ og Samúel reis upp, gekk til Elí og sagði: „Hér er ég, þú kallaðir á mig.“ En hann svaraði: „Ég kallaði ekki, sonur minn, farðu aftur að sofa.“
7En Samúel þekkti Drottin ekki enn þá og orð Drottins hafði ekki enn opinberast honum.
8Þá kallaði Drottinn til Samúels í þriðja sinn og hann reis upp, gekk til Elí og sagði: „Hér er ég, þú kallaðir á mig.“ Nú skildi Elí að það var Drottinn sem var að kalla til drengsins.
9Elí sagði því við Samúel: „Farðu að sofa. En kalli hann aftur til þín skaltu svara: Tala þú, Drottinn, því að þjónn þinn heyrir.“ Samúel fór og lagðist fyrir á sínum stað.
10Þá kom Drottinn, nam staðar andspænis honum og hrópaði eins og í fyrri skiptin: „Samúel, Samúel!“ Samúel svaraði: „Tala þú, Drottinn, því að þjónn þinn heyrir.“
11Þá sagði Drottinn við Samúel: „Nú ætla ég að vinna verk í Ísrael sem mun óma fyrir eyrum allra þeirra sem um það heyra.
12Á þeim degi mun ég láta rætast á Elí allt sem ég hef ógnað ætt hans með frá upphafi til enda.
13Ég hef boðað honum að dómur minn yfir ætt hans muni ævinlega standa vegna þess að hann vissi að synir hans lastmæltu Guði og hann kom ekki í veg fyrir það.
14Þess vegna hef ég svarið ætt Elí að aldrei verði bætt fyrir synd hennar, hvorki með sláturfórn né kornfórn.“
15Samúel lá nú kyrr til morguns. Þá opnaði hann dyrnar á húsi Drottins en þorði ekki að segja Elí frá sýninni.
16Þá kallaði Elí á Samúel og sagði: „Samúel, sonur minn.“ Hann svaraði: „Já, hér er ég.“
17En Elí spurði: „Hvað var það sem hann sagði við þig? Leyndu mig því ekki. Drottinn láti þig gjalda þess ef þú leynir mig nokkru af því sem hann sagði við þig.“
18Samúel sagði honum þá allt án þess að draga nokkuð undan. En Elí sagði: „Hann er Drottinn. Hann gerir það sem honum þóknast.“
19Samúel óx og Drottinn var með honum og lét ekkert af því sem hann hafði boðað falla til jarðar.
20Allur Ísrael, frá Dan til Beerseba, viðurkenndi að Samúel væri trúað fyrir því að vera spámaður Drottins.
21Drottinn hélt áfram að birtast í Síló og hann opinberaðist Samúel í Síló með orði sínu.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.