1Engum sem sætt hefur eistnamari eða er hreðurskorinn skal hleypa inn í söfnuð Drottins.
2Engu afkvæmi blandaðs sambands má hleypa inn í söfnuð Drottins, ekki einu sinni afkomanda í tíunda lið skal heimilt að ganga í söfnuð Drottins.
3Enginn Ammóníti eða Móabíti má vera í söfnuði Drottins, ekki einu sinni niðja þeirra í tíunda lið skal heimilt að ganga í söfnuð Drottins
4vegna þess að þeir færðu ykkur hvorki vatn né brauð þegar þið voruð á leiðinni út úr Egyptalandi. Og það var Móab sem keypti Bíleam Beórsson frá Petór í Aram Naharaím til að bölva þér.
5En Drottinn, Guð þinn, vildi ekki hlýða á Bíleam heldur sneri Drottinn, Guð þinn, bölvuninni í blessun því að Drottinn, Guð þinn, elskar þig.
6Þú skalt aldrei nokkru sinni, svo lengi sem þú lifir, stuðla að velgengni þeirra og farsæld.
7Þú skalt ekki hafa andstyggð á Edómítum því að þeir eru bræður þínir. Þú skalt ekki hafa andstyggð á Egyptum því að þú varst aðkomumaður í landi þeirra.
8Afkomendur þeirra í þriðja lið mega vera í söfnuði Drottins.
Hreinlæti í herbúðunum9Þegar þú átt í hernaði við fjandmenn þína skaltu varast allt hneykslanlegt.
10Sé einhver með þér sem ekki er hreinn vegna þess sem hefur hent hann um nóttina skal hann ganga út fyrir herbúðirnar og má ekki inn í þær koma.
11Að áliðnum degi skal hann lauga sig í vatni og þegar sól er sest má hann koma inn í herbúðirnar.
12Þú skalt hafa afvikinn stað utan við herbúðirnar þar sem þú getur gengið erinda þinna.
13Þú skalt hafa skóflu í farangri þínum og þegar þú þarft að setjast niður úti við skaltu grafa með henni holu og moka síðan yfir hægðir þínar.
14Drottinn, Guð þinn, gengur um í herbúðunum til að vernda þig og selja óvini þína í hendur þér. Þess vegna skulu herbúðir þínar vera heilagar svo að hann sjái ekkert andstyggilegt hjá þér og snúi frá þér.
Ýmis lagaákvæði15Þú skalt ekki selja þann þræl í hendur húsbónda sínum sem flúið hefur frá honum til þín.
16Hann skal búa hjá þér, mitt á meðal þjóðar þinnar, hvar sem hann vill í þeirri af borgum þínum sem hann lystir. Þú mátt ekki beita hann ofríki.
17Engin ísraelsk kona má helga sig saurlifnaði né heldur neinn ísraelskur karl.
18Þú mátt hvorki bera skækjulaun né hundsgjald inn í hús Drottins, Guðs þíns, til þess að efna eitthvert heit því að hvort tveggja er Drottni, Guði þínum, viðurstyggð.
19Þú skalt ekki taka vexti af bróður þínum, hvorki vexti af fé, matvælum né neinu sem lánað er.
20Þú mátt taka vexti af útlendingi en ekki af bróður þínum svo að Drottinn, Guð þinn, blessi þig í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur í landinu sem þú heldur nú inn í til að taka það til eignar.
21Þegar þú vinnur Drottni, Guði þínum, heit máttu ekki draga að efna það því að ella mun Drottinn, Guð þinn, krefjast þess af þér og það reiknast þér til syndar.
22En látir þú það vera að vinna heit reiknast það þér ekki til syndar.
23Þú skalt efna það sem hefur þér um munn farið og gera það af fúsum og frjálsum vilja sem þú hést Drottni, Guði þínum, með eigin vörum.
24Þegar þú kemur inn í víngarð í eigu annars manns mátt þú neyta vínberja eins og þig lystir þar til þú ert mettur orðinn en ekkert máttu setja í ílát.
25Þegar þú kemur á kornakur í eigu annars manns mátt þú tína öx með hendinni en sigð mátt þú ekki sveifla á kornakri náunga þíns.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.