Sálmarnir 135 - Biblían (2007)

1Hallelúja.

Lofið nafn Drottins,

lofið hann, þér þjónar Drottins,

2sem standið í húsi Drottins,

í forgörðum húss Guðs vors.

3Lofið Drottin því að Drottinn er góður,

syngið nafni hans lof því að það er yndislegt.

4Drottinn hefur útvalið sér Jakob,

Ísrael, sér til eignar.

5Já, ég veit að Drottinn er mikill,

að Drottinn vor er öllum guðum æðri.

6Allt sem Drottni þóknast

gerir hann á himni og jörð,

í hafinu og öllum djúpunum.

7Hann lætur skýin stíga upp

frá endimörkum jarðar,

eldingar leiftra og regn falla,

hleypir stormi út úr forðabúrum sínum.

8Hann laust frumburði Egyptalands,

bæði menn og skepnur,

9sendi tákn og undur yfir þig, Egyptaland,

gegn faraó og öllum þjónum hans.

10Hann felldi margar þjóðir

og deyddi volduga konunga,

11Síhon, konung Amoríta,

Óg, konung í Basan,

og öll konungsríki í Kanaan.

12Hann gaf þeim land þeirra að erfð,

erfðahlut handa Ísrael, lýð sínum.

13Drottinn, nafn þitt varir að eilífu,

minning þín, Drottinn, frá kyni til kyns

14því að Drottinn réttir hlut þjóðar sinnar

og miskunnar þjónum sínum.

15Skurðgoð þjóðanna eru silfur og gull,

handaverk manna.

16Þau hafa munn en tala ekki,

augu en sjá ekki,

17eyru en heyra ekki

og enginn andardráttur er í munni þeirra.

18Eins og þau eru verða smiðir þeirra,

allir þeir er á þau treysta.

19Ísraels ætt, lofið Drottin,

Arons ætt, lofið Drottin,

20Leví ætt, lofið Drottin,

þér sem óttist Drottin, lofið Drottin.

21Lofaður sé Drottinn frá Síon,

hann sem býr í Jerúsalem.

Hallelúja.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help