Jesaja 10 - Biblían (2007)

Ranglátir dómarar

1Vei þeim sem setja ranglát lög

og skjalfesta skaðleg ákvæði

2til að halda umkomulausum frá dómstólum

og ræna þá snauðu meðal þjóðar minnar rétti sínum,

til að féfletta ekkjur

og ræna munaðarlausa.

3Hvað ætlið þér að gera á degi uppgjörsins

þegar illviðrið kemur úr fjarska?

Hjá hverjum ætlið þér að leita ásjár,

hvar ætlið þér að geyma auðæfi yðar?

4Þeir munu hnipra sig saman innan um fanga,

liggja meðal hinna vegnu.

Samt sefaðist reiði Drottins ekki,

hönd hans er enn upp reidd.

Gegn Assýríukonungi

5Vei Assúr, vendi reiði minnar.

Kylfa heiftar minnar er í hendi hans.

6Ég sendi hann gegn guðlausri þjóð,

skipa honum gegn fólki sem ég reiðist,

til að taka herfang og ræna

og traðka fólkið niður eins og for á stræti.

7En þetta er ekki það sem hann ætlar sér,

hann hyggur ekki á þetta.

Hann hefur aðeins eyðingu í huga,

að afmá fjölmargar þjóðir.

8Því að hann hefur sagt:

„Eru ekki allir höfðingjar mínir konungar?

9Fór ekki fyrir Kalne eins og Karkemis,

Hamat eins og Arpad,

fyrir Samaríu eins og Damaskus?

10Hönd mín náði til ríkja þessara skurðgoða

þótt líkneski þeirra væru fleiri

en í Jerúsalem og Samaríu.

11Get ég ekki farið með Jerúsalem og skurðgoðin þar

eins og ég fór með Samaríu og hjáguðina þar?“

12En þegar Drottinn hefur lokið öllu starfi sínu

á Síonarfjalli og í Jerúsalem segir hann:

„Ég mun refsa Assýríukonungi

fyrir ávöxtinn af hroka hans

og drembilegt oflæti augna hans.

13Því að hann segir:

Með afli eigin handar gerði ég þetta

og með eigin skynsemi því að ég er vitur.

Ég færði landamæri þjóða úr stað

og rændi fjársjóðum þeirra

og sem hetja hratt ég konungum þeirra af stóli.

14Líkt og þegar seilst er í hreiður

greip hönd mín í auðæfi þjóðanna.

Eins og yfirgefnum eggjum er safnað

safnaði ég öllum heimsins löndum,

enginn blakaði væng,

lauk upp nefi eða tísti.“

15Hefur öxin sig yfir þann

sem heggur með henni,

hreykir sögin sér yfir þann

sem sagar með henni?

Það væri eins og stafur veifaði þeim

sem lyftir honum

eða kylfa sveiflaði þeim sem ekki er úr tré.

16Þess vegna mun Drottinn, Drottinn allsherjar,

senda uppdráttarsýki í þróttmikla hermenn hans.

Undir dýrð hans mun eldur loga

eins og brennandi bál.

17Ljós Ísraels verður að eldi

og Hinn heilagi Ísraels að loga

sem kveikir í og gleypir þyrna hans og þistla

á einum og sama degi.

18Gróskumiklir skógar hans og aldingarðar

verða upprættir með öllu

eins og sjúklingur sem veslast upp.

19Skógartrén, sem verða eftir, reynast svo auðtalin

að drenghnokki getur skráð þau.

Þeir sem bjargast snúa aftur

20Á þeim degi munu þeir

sem eftir verða af Ísrael

og þeir af ætt Jakobs sem komust af

ekki lengur reiða sig á þann sem sló þá.

Þeir munu reiða sig á Drottin,

Hinn heilaga Ísraels, í trúfesti.

21Leifar munu snúa aftur,

leifar Jakobs, til hins máttuga Guðs.

22Enda þótt fólksfjöldi þinn, Ísrael,

yrði sem sjávarsandur

munu aðeins leifar snúa aftur:

Eyðing er fastráðin,

réttlætið mun streyma fram.

23Því að Drottinn, Drottinn allsherjar, mun framkvæma

þá eyðingu sem er fastráðin um alla jörð.

24Þess vegna segir Drottinn, Drottinn allsherjar:

Þjóð mín, sem býrð á Síon,

óttastu ekki Assúr

sem slær þig með barefli

og reiðir að þér staf sinn eins og Egyptar forðum.

25Því að eftir skamma hríð er reiði mín á enda

og heift mín mun beinast að eyðingu þeirra.

26Þá mun Drottinn allsherjar láta svipuna ríða á þeim

eins og þegar hann sigraði Midían hjá Órebkletti.

Hann réttir staf sinn út yfir hafið

eins og í Egyptalandi forðum.

27Á þeim degi verður byrði hans létt af herðum þínum

og oki hans af hálsi þínum

því að okið brestur undan ofurfitu.

Herför gegn Jerúsalem

28Assúr heldur gegn Ajat,

fer um Mígron,

skilur eftir farangurinn í Mikmas.

29Þeir fara um skarðið og segja:

„Geba er gististaður vor.“

Rama skelfist, Gíbea Sáls leggur á flótta.

30Hljóða þú hástöfum, dóttirin Gallím.

Hlustaðu Lejsa,

svaraðu Anatót,

31Madmena leggur á flótta,

íbúar Gebím sluppu.

32Í dag er hann í Nób,

hann bendir á fjall dótturinnar Síonar, Jerúsalemhæð.

33Drottinn, Drottinn allsherjar,

mun höggva laufkrónuna af með ógnarafli,

hæstu tré verða höggvin

og þau sem gnæfa hátt munu lægð.

34Skógarþykknið verður rutt með öxi

og Líbanon fellur fyrir Hinum volduga.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help