1Helguðu vinir sem hafið fengið köllun til himinsins. Horfið til Jesú, postula og æðsta prests þeirrar trúar sem við játum.
2Hann var trúr Guði, er hafði skipað hann, eins og var um Móse „í öllu hans húsi“.
3En hann er verður meiri dýrðar en Móse eins og sá er húsið gerði á meiri heiður en húsið sjálft.
4Sérhvert hús hefur einhver gert en Guð er sá sem allt hefur gert.
5Móse var að sönnu trúr í öllu hans húsi eins og þjónn. Hann átti að vitna um það sem boðað skyldi síðar
6en Kristur er sonur og er trúað fyrir að ráða yfir húsi hans. Og hans hús erum við ef við höldum djörfunginni og voninni sem við miklumst af.
Inn til hvíldar Guðs7Því er það eins og heilagur andi segir:
Ef þér heyrið raust hans í dag,
8þá forherðið ekki hjörtu yðar eins og í eyðimörkinni
þegar feður yðar gerðu uppreisn og freistuðu mín.
9Þeir freistuðu mín og reyndu mig
þótt þeir fengju að sjá verkin mín í fjörutíu ár.
10Þess vegna reiddist ég kynslóð þessari
og sagði: Án afláts villast þeir í hjörtum sínum.
Þeir þekktu ekki vegu mína.
11Og ég sór í bræði minni:
Eigi skulu þeir inn ganga til hvíldar minnar.
12Gætið þess, bræður og systur, að hafa ekkert illt í hjarta og láta engar efasemdir bægja ykkur frá lifanda Guði.
13Uppörvið heldur hvert annað hvern dag á meðan enn heitir „í dag“, til þess að enginn forherðist af táli syndarinnar.
14Því að við erum orðin hluttakar Krists svo framarlega sem við treystum honum staðfastlega allt til enda eins og í upphafi.
15Svo segir: „Ef þér heyrið raust hans í dag, þá forherðið ekki hjörtu yðar eins og í uppreisninni.“ −
16Hverjir voru þá þeir sem heyrt höfðu og gerðu þó uppreisn? Voru það ekki einmitt allir þeir sem Móse hafði leitt út af Egyptalandi?
17Og hverjum „var hann gramur í fjörutíu ár“? Var það ekki þeim sem syndgað höfðu og báru beinin á eyðimörkinni?
18Og hverjum „sór hann að eigi skyldu þeir ganga inn til hvíldar hans,“ nema hinum óhlýðnu?
19Við sjáum að sakir vantrúar fengu þeir eigi gengið inn.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.