1Öll þau fyrirmæli sem ég set þér í dag skuluð þið halda svo að þið megið lifa og ykkur fjölgi og þið komist inn í og sláið eign ykkar á landið sem Drottinn hét feðrum ykkar.
2Hafðu hugfast hvernig Drottinn, Guð þinn, leiddi þig alla leiðina þessi fjörutíu ár í eyðimörkinni. Hann gerði það til að beygja þig og reyna þig, til þess að komast að raun um hvað þú hafðir í huga, hvort þú hygðist halda boðorð hans.
3Hann auðmýkti þig með hungri en gaf þér síðan manna að eta sem hvorki þú né forfeður þínir þekktu. Hann vildi gera þér ljóst að maðurinn lifir ekki á einu saman brauði heldur hverju því sem fram gengur af munni Drottins.
4Hvorki slitnuðu klæði þín utan af þér né heldur þrútnuðu fætur þínir þessi fjörutíu ár.
5Af því geturðu lært að Drottinn, Guð þinn, elur þig upp eins og maður elur upp son sinn.
6Haltu því ákvæði Drottins, Guðs þíns, gakktu á hans vegum og óttastu hann.
7Drottinn, Guð þinn, mun leiða þig inn í gott land, inn í land með lækjum, lindum og uppsprettum sem streyma fram í dölum og á fjöllum,
8inn í land þar sem nóg er af hveiti og byggi, vínviði, fíkjutrjám og granateplatrjám, inn í land með olíuviði og hunangi,
9inn í land þar sem þú þarft ekki að neyta matar í fátækt og þar sem þig mun ekkert skorta og þar sem steinarnir eru járn og þú getur brotið eir úr fjöllunum.
10Þegar þú hefur etið og ert orðinn mettur skaltu lofa Drottin, Guð þinn, fyrir landið góða sem hann hefur gefið þér.
11Gæt þess þá að þú gleymir ekki Drottni, Guði þínum, og hættir að hlýða boðum hans, ákvæðum og lögum sem ég set þér í dag.
12Þegar þú hefur etið og ert orðinn mettur og hefur reist glæsileg hús og hefur komið þér fyrir
13og þegar nautpeningi þínum og sauðfé fjölgar og þér græðist gull og silfur og allar eigur þínar margfaldast,
14gæt þess þá að fyllast ekki ofmetnaði og gleyma Drottni, Guði þínum, sem leiddi þig út úr Egyptalandi, út úr þrælahúsinu.
15Hann leiddi þig yfir hina miklu og ógnvekjandi eyðimörk þar sem eitursnákar og sporðdrekar voru, gegnum skrælnað land þar sem ekki fannst vatnsdropi en handa þér lét hann vatn streyma úr tinnuhörðum kletti.
16Í eyðimörkinni gaf hann þér manna að eta sem feður ykkar þekktu ekki svo að hann gæti auðmýkt þig og reynt þig og síðan gert vel við þig.
17Þú skalt ekki hugsa með þér: „Ég hef aflað þessara auðæfa með eigin afli og styrk handar minnar.“
18Minnstu heldur Drottins, Guðs þíns, því að það var hann sem gaf þér styrk til að afla auðs til þess að standa við sáttmálann sem hann sór feðrum þínum eins og hann gerir enn í dag.
19En ef þú gleymir Drottni, Guði þínum, fylgir öðrum guðum, þjónar þeim og tilbiður, þá votta ég í dag að ykkur mun gereytt
20eins og þjóðunum sem Drottinn eyddi fyrir ykkur. Þannig verður ykkur eytt vegna þess að þið hlýdduð ekki rödd Drottins, Guðs ykkar.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.