Jeremía 1 - Biblían (2007)

1Ræður Jeremía Hilkíasonar sem var einn af prestunum í Anatót í Benjamínslandi.

2Orð Drottins kom til hans á dögum Jósía Amónssonar Júdakonungs, á þrettánda stjórnarári hans.

3Orð Drottins kom einnig til hans á dögum Jójakíms Jósíasonar, konungs í Júda, allt til loka ellefta stjórnarárs Sedekía Júdakonungs þegar íbúar Jerúsalem voru herleiddir í fimmta mánuðinum.

Köllun Jeremía

4Orð Drottins kom til mín:

5Áður en ég mótaði þig í móðurlífi valdi ég þig.

Áður en þú fæddist helgaði ég þig

og ákvað að þú yrðir spámaður fyrir þjóðirnar.

6Ég svaraði: „Drottinn minn og Guð.

Ég er ekki fær um að tala því að ég er enn svo ungur.“

7Þá sagði Drottinn við mig:

„Segðu ekki: Ég er enn svo ungur.

Þú skalt fara hvert sem ég sendi þig

og boða hvað eina sem ég fel þér.

8Þú skalt ekki óttast þá

því að ég er með þér til að bjarga þér,“

segir Drottinn.

9Síðan rétti Drottinn út hönd sína, snerti munn minn og sagði við mig:

„Hér með legg ég orð mín þér í munn.

10Ég veiti þér vald

yfir þjóðum og ríkjum

til að uppræta og rífa niður, til að eyða og umturna,

til að byggja upp og gróðursetja.“

Fyrri sýn: möndluviðargrein

11Orð Drottins kom til mín:

„Hvað sérðu, Jeremía?“

Ég svaraði: „Ég sé möndluviðargrein.“

12Þá sagði Drottinn við mig:

„Þú hefur séð rétt því að ég vaki yfir því að orði mínu verði framfylgt.“Síðari sýn: rjúkandi pottur

13Orð Drottins kom til mín öðru sinni:

„Hvað sérðu?“

Ég svaraði:

„Ég sé rjúkandi pott sem hallast úr norðri.“

14Þá sagði Drottinn við mig:

Úr norðri verður böli hellt yfir alla íbúa landsins.

15Því sjá:

Ég kalla á öll konungsríkin fyrir norðan,

segir Drottinn.

Þau koma og reisa hvert sitt hásæti

utan við borgarhlið Jerúsalem,

gegnt borgarmúrum hennar allt umhverfis,

og ógna öllum borgum í Júda.

16Þá mun ég kveða upp dóm yfir þeim

vegna allrar illsku þeirra

þegar þeir yfirgáfu mig

og færðu öðrum guðum brennifórnir

og tilbáðu verk eigin handa.

Hlutverk spámannsins

17En sjálfur skalt þú gyrða lendar þínar,

ganga fram og boða þeim allt sem ég býð þér.

Láttu ekki hugfallast frammi fyrir þeim,

ella svipti ég þig hugrekki fyrir augum þeirra.

18Í dag geri ég þig að víggirtri borg,

að járnsúlu, að virkisvegg úr eir

gegn konungunum í Júda

og höfðingjum þar,

gegn prestunum í Júda og stórbændunum.

19Þeir munu ráðast gegn þér

en ekki sigra þig

því að ég er með þér til að bjarga þér, segir Drottinn.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help