1En tala þú það sem sæmir hinni heilnæmu kenningu.
2Aldraðir karlmenn skulu vera bindindissamir, heiðvirðir, hóglátir, heilbrigðir í trúnni, kærleikanum og þolgæðinu.
3Svo eiga og aldraðar konur að vera í háttum sínum eins og heilögum sæmir. Þær skulu ekki vera rógberar og ekki heldur í ánauð ofdrykkjunnar, heldur vera öðrum til fyrirmyndar
4til þess að þær laði hinar ungu til að elska menn sína og börn,
5vera hóglátar, skírlífar, heimilisræknar, góðlátar og eiginmönnum sínum eftirlátar til þess að orði Guðs verði ekki lastmælt.
6Svo skalt þú og brýna fyrir ungum mönnum að vera hóglátir.
7Vertu sjálfur fyrirmynd í góðum verkum. Vertu grandvar í fræðslu þinni og heilhuga svo hún verði
8heilnæm og óaðfinnanleg og andstæðingurinn fyrirverði sig þegar hann hefur ekkert illt um okkur að segja.
9Hvettu þræla til að vera undirgefnir húsbændum sínum og í öllu geðþekkir, ekki svörulir,
10ekki hnuplsamir, heldur skulu þeir auðsýna hvers konar góða trúmennsku til þess að þeir prýði kenningu Guðs frelsara vors í öllum greinum.
11Því að náð Guðs hefur opinberast til sáluhjálpar öllum mönnum.
12Hún kennir okkur að afneita óguðleik og veraldlegum girndum og lifa hóglátlega, réttvíslega og guðrækilega í heimi þessum,
13í eftirvæntingu okkar sælu vonar, að hinn mikli Guð og frelsari vor Jesús Kristur opinberist í dýrð sinni.
14Hann gaf sjálfan sig fyrir okkur til þess að hann leysti okkur frá öllu ranglæti og hreinsaði sjálfum sér til handa eignarlýð, kostgæfinn til góðra verka.
15Tala þú þetta og uppörva og vanda um með allri röggsemi. Lát engan lítilsvirða þig.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.