Jeremía 25 - Biblían (2007)

Babýlon, refsivöndur Drottins

1Orð kom til Jeremía um alla Júdamenn á fjórða stjórnarári Jójakíms Jósíasonar Júdakonungs. Það var fyrsta stjórnarár Nebúkadresars, konungs í Babýlon.

2Þetta er orðið sem Jeremía spámaður flutti allri þjóð Júda og öllum Jerúsalembúum:

3Orð Drottins hefur komið til mín í tuttugu og þrjú ár, frá því á þrettánda stjórnarári Jósía Amónssonar Júdakonungs og til þessa dags. Ég hef hvað eftir annað flutt yður það en þér hafið ekki hlustað.

4Drottinn hefur hvað eftir annað sent alla þjóna sína, spámennina, til yðar. En þér gáfuð því engan gaum og lögðuð ekki við hlustir.

5Ég sagði: Hverfið nú, hver og einn, af yðar vonda vegi og frá yðar illu breytni. Þá getið þér búið áfram í landinu sem Drottinn gaf yður og feðrum yðar til ævarandi eignar.

6Eltið ekki aðra guði, þjónið þeim hvorki né tilbiðjið þá. Þér skuluð ekki vekja reiði mína með handaverkum yðar svo að ég valdi yður ekki ógæfu.

7En þér hlustuðuð ekki á mig, segir Drottinn, heldur vöktuð reiði mína með handaverkum yðar, sjálfum yður til ills.

8Þess vegna segir Drottinn hersveitanna: Þar sem þér hafið ekki hlustað á ræðu mína, segir Drottinn,

9sendi ég eftir öllum ættbálkunum fyrir norðan, segir Drottinn, ásamt þjóni mínum, Nebúkadresari, konungi í Babýlon. Ég mun stefna þeim gegn þessu landi og íbúum þess og gegn öllum þjóðunum umhverfis þá. Ég helga þá banni og geri þá að ógn, aðhlátursefni og ævarandi smán.

10Ég læt hverfa gleðióp og fagnaðarhróp meðal þeirra, raddir brúðguma, kvarnarhljóð og lampaljós.

11Allt þetta land verður rúst og auðn. Þjóðirnar þar verða þrælar konungsins í Babýlon í sjötíu ár.

12Að sjötíu árum liðnum mun ég draga konunginn í Babýlon til ábyrgðar og þjóð hans vegna sektar þeirra, segir Drottinn, og einnig land Kaldea og geri það að ævarandi eyðimörk.

13Ég mun láta allt sem ég hef talað gegn þessu landi rætast, allt sem skráð er í þessa bók og ræður Jeremía gegn öllum þjóðum.

14Þær munu einnig verða þrælar margra þjóða og voldugra konunga. Þannig mun ég endurgjalda þeim breytni þeirra og handaverk.

Bikar reiðinnar

15Svo sagði Drottinn, Guð Ísraels, við mig:

Tak við þessum vínbikar úr hendi minni, bikar reiðinnar, og láttu allar þær þjóðir sem ég sendi þig til drekka úr honum.

16Þær eiga að drekka svo að þær reiki um og verði viti sínu fjær andspænis sverðinu sem ég mun senda mitt á meðal þeirra.

17Þá tók ég við bikarnum úr hendi Drottins og lét allar þjóðir, sem Drottinn hafði sent mig til, drekka úr honum:

18Jerúsalem og borgirnar í Júda, konunga hennar og höfðingja, til að leggja borgirnar í rúst og gera þær að eyðimörk, að aðhlátursefni og tilefni formælinga eins og nú er fram komið,

19faraó Egyptalandskonung, þjóna hans og hirðmenn og alla þegna hans,

20alla þjóðablönduna, alla konunga í Úslandi, alla konunga Filistea ásamt Askalon, Gasa, Ekron og því sem eftir er af Asdód,

21Edóm, Móab og Ammóníta,

22alla konunga í Týrus og alla konunga í Sídon og konunga eyjanna sem eru handan hafsins,

23Dedan, Tema og Bús og alla með hárið skorið stutt,

24alla konunga Arabíu og alla konunga blönduðu þjóðanna sem búa í eyðimörkinni,

25alla konunga í Simrí, Elam og Medíu,

26alla konunga fyrir norðan, bæði nær og fjær, hvern eftir annan. Ég læt öll konungsríki heims drekka og síðastur allra á konungur Sesak að drekka.

27Þú skalt segja við þá: Svo segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels: „Drekkið, gerist drukknir, spýið, dettið niður og rísið ekki upp aftur vegna sverðsins sem ég sendi mitt á meðal yðar.“

28En ef þeir neita að taka við bikarnum úr hendi þér og drekka skaltu segja við þá: Svo segir Drottinn hersveitanna: „Þér verðið að drekka!“

29Sjá, ég hefst þegar handa við að leiða ógæfu yfir borgina sem kennd er við mig. Ættuð þér þá að komast undan? Nei, þér komist ekki undan því að ég býð út sverði gegn öllum íbúum jarðarinnar, segir Drottinn hersveitanna.

Dómur yfir þjóðunum

30Þú skalt boða þeim allt þetta og segja:

Drottinn öskrar sem ljón frá hæðum,

hann lætur rödd sína gjalla frá sínum heilaga bústað.

Hann þrumar hátt yfir haga sinn,

hrópar fagnandi eins og þeir sem troða vínber.

31Háreystin berst til allra íbúa heims,

allt til endimarka jarðar

því að Drottinn höfðar mál gegn þjóðunum,

heldur rétt yfir öllum dauðlegum

og gefur hina guðlausu sverðinu á vald, segir Drottinn.

32Svo segir Drottinn hersveitanna:

Ógæfan berst frá þjóð til þjóðar,

voldugur stormur geisar frá endimörkum jarðar.

33Þeir sem felldir verða af Drottni munu á þeim degi liggja dreifðir um alla jörðina. Þeir verða hvorki syrgðir né þeim safnað saman og þeir verða ekki grafnir. Þeir verða að áburði fyrir jarðveginn.

34Harmið, hirðar, og kveinið,

veltið yður í rykinu, leiðtogar hjarðarinnar.

Því að sá tími er kominn

að yður verði slátrað,

ég mola yður og þér fallið til jarðar

eins og skrautlegt leirker.

35Hirðarnir finna ekkert skjól,

leiðtogar hjarðarinnar komast ekki undan.

36Hlustið, hirðarnir kveina,

leiðtogar hjarðarinnar harma

því að Drottinn eyðir haglendi þeirra,

37hin friðsælu beitilönd eru sviðin

af brennandi reiði Drottins.

38Hann kom út úr fylgsni sínu eins og ljón,

land þeirra er lagt í eyði af ógnandi sverði hans

og fyrir hans glóandi heift.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help