Jobsbók 7 - Biblían (2007)

1Er hlutskipti mannsins á jörðinni ekki herþjónusta

og ævidagar hans eins og málaliða?

2Hann er eins og þræll sem þráir skugga,

daglaunamaður sem bíður launa sinna.

3Þannig tók ég mæðumánuði í arf

og fékk þjakandi nætur að hlutskipti.

4Þegar ég leggst til svefns hugsa ég:

„Hvenær kemst ég á fætur?“

En kvöldið er langt og óeirð kvelur mig uns dagur rennur.

5Líkami minn er þakinn ormum og hrúðri,

húð mín skorpin og rifin.

6Hraðar en skytta vefarans þjóta dagar mínir

og hverfa án vonar.

7Mundu að ævi mín er andgustur,

aldrei framar mun auga mitt líta gæfu.

8Auga, sem nú horfir á mig, mun ekki sjá mig framar,

augu þín leita mín en ég verð horfinn.

9Ský hverfur, líður burt,

eins kemur enginn upp aftur sem fer niður í undirheima.

10Hann kemur ekki framar í hús sitt

og staður hans þekkir hann ekki framar.

11Ég mun ekki hefta tungu mína,

í angist minni vil ég tala,

í beiskju minni vil ég kveina.

12Er ég haf eða sæskrímsli

þar sem þú setur vörð yfir mig?

13Ef ég hugsa: „Rúmið huggar mig,

hvíla mín ber þjáninguna með mér,“

14þá hrellir þú mig með draumum,

skelfir mig með sýnum

15svo að ég vil heldur kafna,

kýs dauðann fremur en þessa þjáningu.

16Ég er uppgefinn, ég vil ekki lifa lengur,

slepptu mér, dagar mínir eru sem vindgustur.

17Hvað er maðurinn, að þú metir hann svo mikils

og sýnir honum umhyggju,

18vitjir hans hvern morgun

og reynir hann hverja stund?

19Hvenær ætlarðu að líta af mér,

sleppa af mér hendinni eitt andartak?

20Hef ég syndgað? Hvað hef ég gert þér, vörður manna?

Hví hafðirðu mig að skotspæni

svo að ég varð sjálfum mér byrði?

21Hví fyrirgefurðu ekki synd mína

og tekur burt sekt mína?

Því að nú leggst ég til hvíldar í mold,

leitir þú mín er ég ekki framar til.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help