1Besalel gerði örk úr akasíuviði. Hún var hálf þriðja alin á lengd, hálf önnur á breidd og hálf önnur á hæð.
2Hann lagði hana skíru gulli bæði að innan og utan og hann gerði brún úr gulli umhverfis hana.
3Hann steypti fjóra hringi úr gulli og festi á fjóra fætur hennar, tvo hringi á aðra hlið hennar og tvo á hina.
4Hann gerði stengur úr akasíuviði, lagði þær gulli
5og smeygði stöngunum í hringina á hliðum arkarinnar svo að hægt væri að bera örkina.
6Hann gerði lok úr skíru gulli. Það var hálf þriðja alin á lengd og hálf önnur á breidd.
7Hann gerði tvo kerúba úr drifnu gulli, einn fyrir hvorn enda loksins.
8Annar kerúbinn var á öðrum endanum og hinn á hinum.
9Kerúbarnir breiddu út vængina upp á við svo að þeir huldu lokið með vængjum sínum og sneru hvor að öðrum. Ásjónur kerúbanna sneru að lokinu.
Borðið10Hann gerði borð úr akasíuviði, tvær álnir á lengd, eina alin á breidd og hálfa aðra á hæð.
11Hann lagði það skíru gulli og gerði gullkant umhverfis það.
12Hann setti þverhandarbreiðan lista á allar hliðar þess og brún úr gulli á listann.
13Hann steypti fjóra hringi úr gulli og kom þeim fyrir á fjórum hornum borðsins þar sem fjórir fætur þess eru.
14Hringirnir voru þétt við listann svo að hægt væri að smeygja í þá stöngunum til að bera borðið.
15Hann gerði stengur úr akasíuviði til að bera borðið og lagði þær gulli.
16Hann gerði áhöldin, sem áttu að standa á borðinu, ker, krukkur, könnur og skálar fyrir dreypifórnir, úr skíru gulli.
Ljósastikan17Hann gerði ljósastikuna úr skíru gulli. Hann gerði ljósastikuna með drifnu smíði, bæði stétt hennar og fót. Blómbikarar hennar, knappar og blóm, voru samföst henni.
18Sex armar gengu út frá hliðum hennar, þrír armar frá annarri hlið ljósastikunnar og þrír frá hinni hlið hennar.
19Þrír bikarar í lögun eins og möndlublóm, hver með knappi og blómi, voru á fyrsta arminum, á næsta armi þrír bikarar í lögun eins og möndlublóm með knappi og blómi og eins var á öllum sex örmunum sem gengu út frá ljósastikunni.
20Á sjálfri ljósastikunni voru fjórir bikarar í lögun eins og möndlublóm með knöppum og blómum.
21Einn knappur var undir tveimur neðstu örmum hennar, samfastur ljósastikunni, einn knappur undir næstu tveimur örmum, samfastur ljósastikunni, og einn knappur undir tveimur efstu örmunum, samfastur ljósastikunni. Þeir voru undir sex örmum ljósastikunnar og gengu út frá henni.
22Knappar hennar og armar voru samfastir fætinum, allt drifin smíð úr skíru gulli.
23Hann gerði sjö lampa úr skíru gulli fyrir ljósastikuna, einnig ljósasöx og skarpönnur úr skíru gulli.
24Hann gerði hana og öll áhöld, sem heyrðu henni til, úr einni talentu skíragulls.
Reykelsisaltarið og smurningarolían25Hann gerði reykelsisaltarið úr akasíuviði. Það var álnarlangt og álnarbreitt, ferhyrnt og tveggja álna hátt. Horn þess voru áföst við það.
26Hann lagði það skíru gulli, bæði að ofan og á hliðum, og horn þess. Hann gerði brún úr gulli umhverfis það.
27Hann gerði tvo hringi úr gulli og kom þeim fyrir undir brúninni á báðum hliðum þess til að smeygja í stöngum til að bera það.
28Hann gerði stengurnar úr akasíuviði og lagði þær gulli.
29Hann gerði hina heilögu smurningarolíu og hið hreina ilmandi reykelsi að hætti smyrslagerðarmanna.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.