Ljóðaljóðin 3 - Biblían (2007)

1Í hvílu minni um nætur

leita ég hans sem sál mín elskar,

ég leita hans en finn hann ekki.

2Ég fer á fætur og geng um borgina,

um stræti og torg.

Ég leita hans sem sál mín elskar.

Ég leita hans en finn hann ekki.

3Verðirnir, sem ganga um borgina, koma að mér.

„Hafið þér séð þann sem sál mín elskar?“

4Óðara en ég fór frá þeim

fann ég þann sem sál mín elskar;

ég hélt honum, sleppti honum ekki

fyrr en ég hafði leitt hann í hús móður minnar,

til híbýla hennar sem ól mig.

5Ég særi yður, Jerúsalemdætur,

við dádýrin, við hindirnar á völlunum:

truflið ekki, vekið ekki ástina

fyrr en hún sjálf vill.

6Hvað er það sem stígur upp af eyðimörkinni

eins og reykjarstrókar,

mekkir af myrru, reykelsi

og hvers kyns kaupmannakryddi?

7Burðarstóll Salómons

og umhverfis sextíu garpar

af köppum Ísraels,

8allir reyndir vígamenn,

allir vanir hernaði,

allir gyrtir sverði

gegn ógnum næturinnar.

9Burðarstól lét Salómon konungur gera sér

úr viði af Líbanonsfjalli.

10Stoðirnar gerði hann úr silfri,

bakið úr gulli,

sessinn úr purpuravoð.

Að innan er hann klæddur ást,

Jerúsalemdætur.

11Farið, Síonardætur,

horfið á Salómon konung,

á kórónuna sem móðir hans krýndi hann

á brúðkaupsdegi hans,

á gleðidegi hjarta hans.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help