Daníel 6 - Biblían (2007)

Daníel í ljónagryfjunni

1Daríus frá Medíu settist að völdum í ríkinu og var hann þá sextíu og tveggja ára að aldri.

2Daríusi þótti henta að setja yfir ríkið hundrað og tuttugu héraðshöfðingja, sem skipað var niður víðs vegar um ríkið,

3og þrjá yfirhöfðingja yfir þá og var Daníel einn þeirra. Gagnvart þeim ábyrgðust héraðshöfðingjarnir að hlutur konungs væri í engu skertur.

4Daníel bar svo af yfirhöfðingjunum og héraðshöfðingjunum vegna frábærrar andagiftar sinnar að Daríus hugðist setja hann yfir allt ríkið.

5Yfirhöfðingjarnir og héraðshöfðingjarnir tóku því að huga að því hvort finna mætti einhverja misfellu í stjórnsýslu Daníels en ekki tókst þeim að finna neitt sem gæti orðið honum til ámælis eða sakargifta enda var hann svo trúr í starfi að engin ávirðing eða vanræksla varð þar fundin.

6Þá sögðu mennirnir: „Ekki tekst okkur að finna neitt saknæmt um Daníel þennan nema vera kynni að einhver sök leyndist í átrúnaði hans.“

7Þessir yfirhöfðingjar og héraðshöfðingjar skunduðu nú á konungs fund og sögðu: „Daríus konungur, megir þú lifa að eilífu.

8Allir yfirhöfðingjar ríkisins, landstjórar, héraðshöfðingjar, ráðgjafar og landshöfðingjar hafa komið sér saman um að gefin skuli út konungsskipun til staðfestingar því að hverjum þeim skuli varpað í ljónagryfju sem í þrjátíu daga snýr bænum sínum til nokkurs guðs eða manns annars en þín, konungur.

9Nú skaltu, konungur, gefa þetta bannákvæði út og láta skrá það og birta svo að því verði ekki breytt fremur en öðrum órjúfanlegum lögum Meda og Persa.“

10Eftir þessu fór konungur og staðfesti bannskjalið.

11Daníel frétti að þessi tilskipun hefði verið gefin út. Gekk hann þá inn í hús sitt. Á efri hæð hafði hann opna glugga sem vissu að Jerúsalem og þrisvar á dag kraup hann á kné, bað til Guðs síns og vegsamaði hann eins og vandi hans hafði verið.

12Nú skunduðu þessir menn til og komu að Daníel þar sem hann var að biðja og ákalla Guð sinn.

13Þeir gengu því næst fyrir konung og færðu konungsbannið í tal við hann: „Hefur þú ekki staðfest það bannákvæði að hverjum þeim sem í þrjátíu daga snýr bænum sínum til nokkurs guðs eða manns annars en þín, konungur, skuli varpað í ljónagryfju?“ Konungur svaraði: „Það er föst ákvörðun eftir órjúfanlegu lögmáli Meda og Persa.“

14Þeir sögðu þá við konung: „Daníel, einn af Gyðingunum herleiddu, skeytir hvorki um þig, konungur, né bannið sem þú hefur gefið út, heldur gerir hann bæn sína þrisvar á dag.“

15Konungi var brugðið er hann heyrði þetta og hugleiddi hann nú hvernig bjarga mætti Daníel. Allt til sólarlags leitaði hann ráða honum til hjálpar.

16Þessir sömu menn hröðuðu sér til konungs og sögðu: „Þú veist, konungur, að lög Meda og Persa mæla svo fyrir að hvorki megi raska boði né banni sem konungur hefur staðfest.“

17Konungur skipaði þá að Daníel skyldi sóttur og honum varpað í ljónagryfjuna. Og konungur sagði við Daníel: „Megi nú Guð þinn frelsa þig, sá sem þú vegsamar án afláts.“

18Sóttu menn nú stein og lögðu yfir gryfjuopið en konungur innsiglaði hann með innsiglishring sínum og innsiglishringum yfirhöfðingja sinna svo að engu yrði breytt um þá ráðstöfun sem gerð hafði verið vegna Daníels.

19Gekk konungur síðan heim í höll sína og var þar um nóttina og fastaði. Hann lét ekki færa frillur inn til sín og var andvaka um nóttina.

20Konungur reis úr rekkju strax er lýsa tók af degi og skundaði til ljónagryfjunnar.

21Hann kom að ljónagryfjunni og kallaði þá á Daníel dapurri röddu. Konungur tók til máls og sagði: „Daníel, þjónn hins lifandi Guðs, hefur Guð þinn, sá sem þú vegsamar án afláts, megnað að frelsa þig undan ljónunum?“

22Þá sagði Daníel við konung: „Konungur, megir þú lifa að eilífu.

23Guð sendi engil sinn og hann lokaði gini ljónanna svo að þau unnu mér ekkert mein. Gagnvart honum hef ég reynst saklaus og í engu hef ég brotið gegn þér, konungur.“

24Varð nú konungur harla glaður og skipaði mönnum að draga Daníel upp úr gryfjunni. Og Daníel var dreginn upp úr gryfjunni og var ekki að sjá að honum hefði orðið neitt að meini enda hafði hann treyst Guði sínum.

25En konungur bauð að mennirnir, sem höfðu rægt Daníel, yrðu sóttir og þeim, börnum þeirra og konum kastað í ljónagryfjuna. Og áður en þau kenndu botns í gryfjunni hremmdu ljónin þau og bruddu öll bein þeirra.

26Daríus konungur ritaði nú öllum mönnum sem búa á jörðinni, af öllum þjóðum og öllum tungum: „Megi ykkur vel farnast.

27Þá skipun birti ég að í öllu ríki mínu skulu menn óttast og virða Guð Daníels.

Hann er hinn lifandi Guð

og varir að eilífu.

Ríki hans hrynur ekki

og vald hans mun engan enda taka.

28Hann frelsar og bjargar,

hann gerir tákn og undur á himni og jörð,

hann sem bjargaði Daníel

úr klóm ljónanna.“

29Og vegur Daníels var mikill bæði á stjórnartímum Daríusar og á stjórnarárum Kýrusar hins persneska.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help