Sakaría 6 - Biblían (2007)

Áttunda sýn: Fjórir vagnar

1Enn leit ég upp og sá fjóra vagna koma fram milli tveggja fjalla og voru þau fjöll úr eir.

2Rauðir hestar voru fyrir fyrsta vagninum en svartir fyrir öðrum,

3þriðja vagninn drógu hvítir hestar en skjóttir hinn fjórða.

4Þá tók ég til máls og spurði engilinn, viðmælanda minn: „Hvað er þetta, herra?“

5En engillinn svaraði mér og sagði: „Þetta eru höfuðvindarnir fjórir sem komið hafa fram fyrir Drottin allrar jarðarinnar og eru nú að leggja af stað.

6Vagninn með svörtu hestunum fyrir heldur til landsins í norðri, hinir hvítu stefna í vestur en skjóttu hestarnir halda til landsins í suðri.

7Rauðu hestarnir halda til héraðanna í austri. Þeir voru albúnir að rása um jörðina og hann skipaði þeim: Farið, farið um jörðina. Og það gerðu þeir.

8Og hann kallaði til mín og sagði: Sjá, þeir sem halda í norður svala reiði minni í landinu norður frá.“

Jósúa krýndur

9Og orð Drottins kom til mín:

10Þiggðu gjafir hinna herleiddu, sem komnir eru frá Babýlon, af hendi þeirra Heldaí, Tobía og Jedaja, og farðu sjálfur samdægurs í hús Jósía Sefaníasonar.

11Taktu silfur og gull, smíðaðu kórónur og settu eina á höfuð Jósúa Jósadakssonar æðsta prests.

12Talaðu til hans á þessa leið: Svo segir Drottinn allsherjar:

Maður heitir Sproti.

Hann mun spretta upp af rót sinni

og reisa musteri Drottins.

13Hann mun reisa musteri Drottins

og öðlast þar tign

svo að hann mun sitja og drottna í hásæti sínu.

Prestur verður honum til hægri handar

og með þeim verður full sátt.

14Kórónan verður áfram í musteri Drottins til minja um þá Heldaí, Tobía, Jedaja og Hen Sefaníason.

15Og menn munu koma óraleiðir til starfa við byggingu musteris Drottins. Þá munuð þið vita að Drottinn allsherjar hefur sent mig til ykkar ef þið aðeins hlýðið Drottni, Guði ykkar.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help