Fyrri kroníkubók 24 - Biblían (2007)

Flokkar prestanna

1Sonum Arons var einnig skipað í flokka. Synir Arons voru Nadab, Abíhú, Eleasar og Ítamar.

2Nadab og Abíhú dóu á undan föður sínum. Þar sem þeir áttu enga syni tóku Eleasar og Ítamar við prestsembættinu.

3Davíð skipaði þeim í þjónustuflokka ásamt Sadók, sem var afkomandi Eleasars, og Ahímelek sem var af Ítamar kominn.

4Þar sem fleiri höfðingjar reyndust vera meðal niðja Eleasars en meðal niðja Ítamars var sextán ættarhöfðingjum úthlutað til niðja Eleasars en aðeins átta til niðja Ítamars.

5Allir flokkarnir voru valdir með hlutkesti því að hinir heilögu höfðingjar og höfðingjar Guðs voru bæði niðjar Eleasars og Ítamars.

6Semaja Netaneelsson, skrifari af ætt Leví, skrifaði þá upp í viðurvist konungs, höfðingjanna, Sadóks prests, Abjatars Ahímelekssonar og ættarhöfðingja prestanna og niðja Leví. Voru tvær fjölskyldur valdar hverju sinni af ætt Eleasars en ein af ætt Ítamars.

7Fyrsta hlutkestið féll á Jójaríb, annað á Jejdaja,

8þriðja á Harím, fjórða á Seórím,

9fimmta á Malkía, sjötta á Mijamín,

10sjöunda á Hakkos, áttunda á Abía,

11níunda á Jesúa, tíunda á Sekanja,

12ellefta á Eljasíb, tólfta á Jakím,

13þrettánda á Húppa, fjórtánda á Jesebeab,

14fimmtánda á Bilga, sextánda á Immer,

15sautjánda á Hesír, átjánda á Happísses,

16nítjánda á Pelashja, tuttugasta á Jeheskel,

17tuttugasta og fyrsta á Jakín, tuttugasta og annað á Gamúl,

18tuttugasta og þriðja á Delaja, tuttugasta og fjórða á Maasja.

19Þetta var skipting þjónustu þeirra. Eftir henni áttu þeir að koma til húss Drottins samkvæmt boði því sem þeir höfðu fengið frá Aron, föður sínum, og Drottinn, Guð Ísraels, hafði lagt fyrir hann.

Önnur skrá yfir Levíta

20Varðandi aðra niðja Leví, þá var Súbael einn sona Amrams. Jehdeja var einn af sonum Súbaels.

21Jissía var elstur af sonum Rehabja.

22Selómót var einn af niðjum Jísehars. Jahat var einn af sonum Selómóts.

23Amarja var einn af sonum Jería, annar var Jehasíel, þriðji Jekameam.

24Míka var sonur Ússíels, Samír var einn af sonum Míka.

25Jissía var bróðir Míka. Sakaría var einn af sonum Jissía.

26Mahlí og Músí voru synir Merarí. Sonur Jaasía var Baní.

27Niðjar Merarí, komnir af Jaasía, voru Baní, Sóham, Sakkúr og Íbrí.

28Eleasar, sem var barnlaus, var af Maklí kominn.

29Af Kís var Jerahmeel, sonur Kíss.

30Synir Músí voru Mahlí, Eder og Jerímót.

Þetta voru niðjar Leví, flokkaðir eftir fjölskyldum sínum.

31Þeir vörpuðu einnig hlutkesti eins og bræður þeirra, synir Arons, í viðurvist Davíðs konungs, Sadóks og Ahímeleks og ættarhöfðingja prestanna og Levítanna, bæði fjölskyldna hins fremsta þeirra og yngsta bróðurins.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help