1Enn einu sinni safnaði Davíð saman öllum vopnfærum mönnum í Ísrael, þrjátíu þúsund manns.
2Hann hélt af stað ásamt öllum her sínum og hélt til Baala í Júda til þess að sækja þangað örk Drottins sem ber nafn Drottins hersveitanna sem situr í hásæti yfir kerúbunum.
3Þeir sóttu örk Guðs á nýjum vagni og fluttu hana frá húsi Abínadabs sem var uppi á hæð einni.
4Ússa og Ahjó, synir Abínadabs, stjórnuðu vagninum sem örk Guðs var á. Ahjó gekk á undan örk Guðs.
5Davíð og allir Ísraelsmenn dönsuðu af miklum móði frammi fyrir augliti Drottins, sungu og léku á sítara, hörpur, pákur, bjöllur og málmgjöll.
6Þegar þeir komu á þreskivöll Nakóns hnutu uxarnir. Ússa teygði sig þá til arkar Guðs og greip í hana.
7Þá blossaði reiði Drottins upp gegn Ússa vegna þessarar yfirsjónar og laust hann Ússa banahögg. Hann lét lífið við hliðina á örk Guðs.
8Davíð var mjög brugðið vegna þess að Drottinn hafði hrifið Ússa svo snögglega í burtu. Hann nefndi þennan stað Peres Ússa og það heitir hann enn.
9Davíð hræddist Drottin á þessum degi og spurði: „Ætli örk Drottins komist nokkurn tíma til mín?“
10Davíð vildi því ekki láta flytja örk Drottins heim til sín í borg Davíðs heldur sneri með hana að húsi Óbeðs Edóms frá Gat.
11Örk Drottins stóð í húsi Óbeðs Edóms frá Gat í þrjá mánuði og Drottinn blessaði Óbeð Edóm og alla fjölskyldu hans.
12Davíð konungi var sagt: „Drottinn hefur blessað fjölskyldu Óbeðs Edóms og allt, sem hann á, vegna arkar Guðs.“ Davíð fór þá glaður í bragði og flutti örk Guðs úr húsi Óbeðs Edóms upp til borgar Davíðs.
13Þegar þeir sem báru örk Drottins höfðu gengið sex skref færði hann naut og alikálf sem sláturfórn.
14Davíð sjálfur dansaði af miklum móði frammi fyrir augliti Drottins, búinn línhökli.
15Þannig flutti Davíð og allir Ísraelsmenn örk Drottins norður eftir með fagnaðarópum og hafurshornablæstri.
16Þegar örk Drottins kom til borgar Davíðs varð Míkal, dóttur Sáls, litið út um glugga. Er hún sá Davíð konung hoppa og dansa frammi fyrir augliti Drottins fyrirleit hún hann í hjarta sínu.
17Örk Drottins var nú borin inn og henni komið fyrir á sínum stað í miðju tjaldinu sem Davíð hafði látið setja upp fyrir hana. Því næst færði Davíð brennifórnir og heillafórnir frammi fyrir augliti Drottins.
18Eftir að Davíð hafði fært brennifórnina og heillafórnina blessaði hann fólkið í nafni Drottins hersveitanna.
19Loks lét hann úthluta öllu fólkinu, öllum Ísraelsmönnum, körlum og konum, hverjum fyrir sig, einum brauðhleif, einni döðluköku og einni rúsínuköku. Því næst hélt hver og einn heim til sín.
20Þegar Davíð kom heim til að heilsa fjölskyldu sinni gekk Míkal, dóttir Sáls, á móti honum og sagði: „En hvað konungur Ísraels bar sig virðulega í dag! Hann beraði sig fyrir framan ambáttir manna sinna eins og skríllinn gerir.“
21Davíð svaraði Míkal: „Fyrir augliti Drottins dansaði ég, hans sem tók mig fram yfir föður þinn og alla fjölskyldu hans og hefur gert mig að höfðingja yfir lýð sínum, Ísrael.
22Ég mun leggjast enn lægra en þetta og falla enn frekar í eigin augum, en meðal ambáttanna, sem þú nefndir, er ég mikils metinn.“
23En Míkal, dóttir Sáls, var barnlaus til æviloka.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.