Sálmarnir 32 - Biblían (2007)

1Davíðsmaskíl.

Sæll er sá er afbrotin eru fyrirgefin,

synd hans hulin.

2Sæll er sá maður sem Drottinn tilreiknar ekki misgjörð

og ekki geymir svik í anda.

3Meðan ég þagði tærðust bein mín,

allan daginn stundi ég

4því að dag og nótt lá hönd þín þungt á mér,

lífsþróttur minn þvarr sem í sumarbreyskju. (Sela)

5Þá játaði ég synd mína fyrir þér

og duldi ekki sekt mína

en sagði: „Ég vil játa afbrot mín fyrir Drottni.“

Og þú afmáðir syndasekt mína. (Sela)

6Biðji þig þess vegna sérhver trúaður

meðan þig er að finna.

Þótt vatnsflóðið komi

nær það honum eigi.

7Þú ert skjól mitt,

verndar mig í þrengingum,

bjargar mér, umlykur mig fögnuði.

8Ég vil fræða þig, vísa þér veginn

sem þú átt að ganga,

ég vil gefa þér ráð, vaka yfir þér.

9Verið eigi sem skynlausar skepnur,

hestar og múldýr;

með beisli og taumi þarf að temja þær,

annars koma þær ekki til þín.

10Miklar eru þjáningar óguðlegs manns

en þann sem treystir Drottni umlykur hann elsku.

11Gleðjist yfir Drottni og fagnið, þér réttlátir,

allir hjartahreinir menn hrópi af gleði.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help