Prédikarinn 12 - Biblían (2007)

1Mundu eftir skapara þínum á unglingsárum þínum,

áður en vondu dagarnir koma

og þau árin nálgast er þú segir um: „Mér líka þau ekki,“

2áður en sólin myrkvast og ljósið

og tunglið og stjörnurnar,

áður en skýin koma aftur eftir regnið,

3þá er þeir skjálfa sem hússins gæta

og sterku mennirnir verða bognir

og kvarnarstúlkurnar hafast ekki að

því að þær eru orðnar fáar

og dimmt er orðið hjá þeim sem líta út um gluggana

4og dyrunum út að götunni er lokað

og hávaðinn í kvörninni minnkar

og menn vakna við fuglskvak

en allir söngvarnir verða lágværir,

5þegar menn eru hræddir við hæðir

og sjá skelfingar á veginum,

þegar möndlutréð stendur í blóma

og engispretturnar dragast áfram

og kapersber hrífa ekki lengur

en maðurinn fer burt til síns eilífðarhúss

og grátendurnir ganga um strætið,

6áður en silfurþráðurinn slitnar

og gullskálin brotnar

og skjólan mölvast við lindina

og hjólið brotnar við brunninn

7og moldin hverfur aftur til jarðarinnar,

þar sem hún áður var, og andinn til Guðs sem gaf hann.

8Aumasti hégómi, segir prédikarinn, allt er hégómi.

Niðurlag

9En prédikarinn var spekingur og miðlaði mönnum einnig þekkingu og rannsakaði og kynnti sér og samdi mörg spakmæli.

10Prédikarinn leitaðist við að finna fögur orð og það sem hann hefur skrifað í einlægni eru sannleiksorð.

11Orð spekinganna eru hvöss sem broddar og kjarnyrðin eins og fastreknir naglar; þau eru gefin af einum hirði.

12Sonur minn, þýðstu viðvaranir. Að taka saman margar bækur, á því er enginn endir og mikill lestur þreytir líkamann.

13Við skulum hlýða á niðurstöðu þessa alls: Óttastu Guð og haltu boðorð hans því að það á hver maður að gera.

14Guð mun leiða sérhvert verk fyrir dóm sem haldinn verður yfir öllu því sem hulið er, hvort sem það er gott eða illt.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help