1Heiðra lækninn fyrir þjónustu hans,
Drottinn skapaði hann einnig.
2Frá Hinum hæsta kemur honum lækningagáfa,
hann þiggur gjafir af konungum.
3Mennt læknis gerir hann virtan,
hann nýtur aðdáunar valdhafa.
4Drottinn lét jörðina gefa af sér lyf
og hygginn maður forsmáir þau ekki.
5Gerði ei viðurinn vatnið sætt
svo að máttur Drottins yrði kunnur?
6Drottinn veitti mönnum þekkingu
svo að hann yrði dásamaður af undraverkum sínum.
7Með þeim hefur hann læknað og linað kvöl,
8lyfsalinn nýtir þau til að blanda lyfin.
Drottinn lætur aldrei af verki sínu,
frá honum berst heilsa um gjörvalla jörð.
9Barnið mitt, taktu eigi létt á veikindum
en bið til Drottins og hann mun lækna þig.
10Haltu þig frá röngu og breyt um lifnað
og hreinsa hjartað af hverri synd.
11Færðu reykelsis- og minningarfórn af mjöli,
smyr fórnina olíu eins og efni þín leyfa.
12En leitaðu líka læknis, Drottinn skapaði hann einnig,
lát hann eigi vanta því að þú þarfnast hans.
13Einatt er það á hans valdi að hjálpa
14enda biðja læknar Drottin sjálfir um hjálp
að þeim auðnist að veita sjúkum fró
og lækning er veitir lífgjöf.
15Sá sem syndgar gegn skapara sínum
hlýtur að lenda í höndum læknis.
Um að syrgja látna16Barnið mitt, grát genginn mann,
hef upp harmakvein vegna mikils missis.
Bú þú um lík hans eins og vera ber
og vertu ekki hirðulaus um gröf hans.
17Grát beisklega og kveina hátt,
haltu sorgarhátíð sem honum hæfir,
einn dag eða tvo svo að þú sért síður rægður,
en lát síðan huggast af harmi.
18Harmur getur leitt til dauða,
sorgin lamar lífsþrótt.
19Í hörmungum ríkir sorgin
og líf í fátækt er hjartanu böl.
20Gef hjarta þitt eigi sorg á vald,
hrind henni frá þér og minnstu dauða þíns.
21Gleym eigi þessu: Það verður ekki aftur snúið,
hinum látna hjálpar þú eigi en vinnur sjálfum þér mein.
22Minnstu örlaga hans því að eins verða þín,
ég í gær, þú í dag.
23Er látinn hvílist
skal og minning hans hvíla,
lát huggast þegar hann er skilinn við.
Fræðimennska og önnur iðja24Speki fræðimannsins krefst ríkulegra næðisstunda,
sá vex að vísdómi sem fá verk binda.
25Hvernig fær sá vaxið að visku sem stýrir plógi
og stærir sig af broddstafnum,
rekur uxa og leggur sig allan fram
og á sér ekkert umræðuefni annað en kálfa?
26Hann gefur sig allan að plægingu,
hugur hans snýst allur um eldi á kvígum.
27Svo er og um byggingameistarann og smiðinn,
sem leggja nótt við dag,
og þá sem grafa á innsiglishringa
og eru eljusamir við gerð sundurleitra mynstra.
Þeir leggja sig fram um að ná sem nákvæmastri mynd,
hugurinn snýst um að ljúka verki.
28Eins er um smiðinn við steðjann
sem fylgist grannt með járnsmíðinni.
Heitur reykur tærir hold hans,
hann berst við hita aflsins.
Hamarshögg deyfa eyru hans,
augun einblína á fyrirmyndina.
Hugur hans beinist allur að því að ljúka verki,
stendur allur til þess að reka smiðshöggið.
29Eins er um leirkerasmiðinn er situr að verki
og snýr hjólinu með fótum sínum.
Hann hefur sífelldar áhyggjur af iðju sinni
og hve mörgum munum hann skili af hendi.
30Með höndunum mótar hann leirinn
og hnoðar hann mjúkan undir fótum.
Hann kappkostar að fullkomna glerunginn
og er langt fram á nótt að hreinsa ofninn.
31Allir treysta þeir höndum sínum
og sérhver þeirra er snjall í verki.
32Án þeirra yrði engin borg byggð
og þar mundi hvorki neinn búa né þangað koma.
En þeir eru ekki kvaddir til ráðgjafar þjóðinni
33né ber þá hátt á þjóðarsamkundu.
Þeir setjast aldrei í dómarasæti
enda lítt heima í réttarskipan.
Þeir kenna hvorki né dæma
og eru ekki handgengnir orðskviðum.
34En þeir tryggja skipan hins skapaða heims
og bæn þeirra er að vera vel verki farnir.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.