Sálmarnir 70 - Biblían (2007)

1Til söngstjórans. Davíðssálmur. Minningarljóð.

2Guð, lát þér þóknast að frelsa mig,

Drottinn, skunda mér til hjálpar.

3Lát þá verða til skammar og hljóta kinnroða

er sitja um líf mitt,

lát þá hverfa aftur með skömm

er óska mér ógæfu.

4Lát þá hörfa undan sakir smánar sinnar

er hrópa háð og spé.

5En allir sem leita þín skulu gleðjast og fagna yfir þér.

Þeir er unna hjálpræði þínu skulu sífellt segja:

„Vegsamaður sé Guð.“

6Ég er hrjáður og snauður,

hraða þér til mín, ó Guð.

Þú ert fulltingi mitt og frelsari,

tef eigi, Drottinn.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help