Fyrra Korintubréf 5 - Biblían (2007)

Hreinsun af gömlu súrdeigi

1Fullyrt er að saurlifnaður eigi sér stað á meðal ykkar og það slíkur saurlifnaður sem jafnvel gerist ekki meðal heiðingja, að maður heldur við konu föður síns.

2Og svo eruð þið mikillát í stað þess að hryggjast og rýma brott úr ykkar hópi þeim manni sem þetta hefur drýgt.

3Ég fyrir mitt leyti, fjarlægur að líkamanum til en nálægur að andanum, hef þegar, eins og ég væri nálægur, kveðið upp dóm yfir manni þeim sem þetta hefur framið:

4Þegar þið eruð saman komin í nafni Drottins Jesú og andi minn er hjá ykkur ásamt krafti Drottins vors Jesú

5skal refsa slíkum manni og selja hann Satan á vald til þess að andi hans megi verða hólpinn á degi Drottins Jesú.

6Ekki hafið þið ástæðu til að státa ykkur! Vitið þið ekki að lítið súrdeig sýrir allt deigið?

7Hreinsið burt gamla súrdeigið til þess að þið séuð nýtt deig enda eruð þið ósýrð brauð. Því að páskalambi okkar er slátrað sem er Kristur.

8Höldum því hátíð, ekki með gömlu súrdeigi eða súrdeigi illsku og vonsku heldur með ósýrðum brauðum hreinleikans og sannleikans.

9Ég ritaði ykkur í bréfinu að þið skylduð ekki umgangast saurlífismenn.

10Átti ég þar ekki við saurlífismenn hér í heimi yfirleitt eða ásælna og ræningja eða hjáguðadýrkendur því að þá hefðuð þið orðið að fara úr heiminum.

11En nú rita ég ykkur að þið skuluð ekki umgangast nokkurn þann er nefnir sig bróður en er saurlífismaður eða ásælinn, skurðgoðadýrkandi eða lastmáll, ofdrykkjumaður eða ræningi. Þið skuluð jafnvel ekki sitja að borði með slíkum manni.

12Hvað skyldi ég vera að dæma þá sem eru utan safnaðarins? Eigið þið ekki að dæma þá sem eru í söfnuðinum?

13Og mun ekki Guð dæma þá sem ekki eru í söfnuðinum? „Útrýmið hinum vonda úr ykkar hópi.“

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help