Önnur Mósebók 20 - Biblían (2007)

Boðorðin

1Drottinn mælti öll þessi orð:

2„Ég er Drottinn, Guð þinn, sem leiddi þig út af Egyptalandi, út úr þrælahúsinu.

3Þú skalt ekki hafa aðra guði en mig.

4Þú skalt hvorki gera þér líkneski né neina eftirlíkingu af því sem er á himnum uppi eða því sem er á jörðu niðri eða í hafinu undir jörðinni.

5Þú skalt hvorki falla fram fyrir þeim né dýrka þau því að ég, Drottinn, Guð þinn, er vandlátur Guð og refsa niðjum í þriðja og fjórða lið fyrir sekt feðra þeirra sem hata mig

6en sýni kærleika þúsundum þeirra sem elska mig og halda boð mín.

7Þú skalt ekki leggja nafn Drottins, Guðs þíns, við hégóma því að Drottinn mun ekki láta þeim óhegnt sem leggur nafn hans við hégóma.

8Minnstu þess að halda hvíldardaginn heilagan.

9Þú skalt vinna sex daga og sinna öllum verkum þínum.

10En sjöundi dagurinn er hvíldardagur Drottins, Guðs þíns. Þá skaltu ekkert verk vinna, hvorki þú sjálfur né sonur þinn eða dóttir, þræll þinn né ambátt eða skepnur þínar eða aðkomumaðurinn sem fær að búa innan borgarhliða þinna.

11Því að á sex dögum gerði Drottinn himin og jörð, hafið og allt sem í því er en hvíldist sjöunda daginn. Þess vegna blessaði Drottinn hvíldardaginn og helgaði hann.

12Heiðra föður þinn og móður svo að þú verðir langlífur í landinu sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér.

13Þú skalt ekki morð fremja.

14Þú skalt ekki drýgja hór.

15Þú skalt ekki stela.

16Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum.

17Þú skalt ekki girnast hús náunga þíns. Þú skalt ekki girnast konu náunga þíns, þræl hans eða ambátt, uxa hans eða asna eða nokkuð það sem náungi þinn á.“

18Allt fólkið sá og heyrði þrumurnar, eldingaleiftrin, hornablásturinn og rjúkandi fjallið. Þegar fólkið sá þetta skalf það af ótta og stóð langt frá.

19Fólkið sagði við Móse: „Tala þú við okkur og við munum hlýða en lát Guð ekki tala við okkur svo að við deyjum ekki.“

20Móse sagði við fólkið: „Óttist ekki. Guð er kominn til að reyna ykkur til þess að ótti hans sé ykkur fyrir augum og þið syndgið ekki.“

21Fólkið stóð langt frá en Móse nálgaðist skýsortann þar sem Guð var.

Lög um altarið

22Drottinn sagði við Móse: „Svo skaltu segja við Ísraelsmenn: Þið hafið sjálfir séð að ég talaði við ykkur frá himni.

23Þið skuluð ekki gera ykkur guði úr silfri og þið skuluð ekki gera ykkur guði úr gulli.

24Þú skalt gera mér altari úr mold og á því skaltu slátra brennifórnum þínum og heillafórnum, sauðfé þínu og nautum. Á hverjum þeim stað, þar sem ég læt nefna nafn mitt, mun ég koma til þín og blessa þig.

25En viljir þú gera mér altari úr grjóti skaltu ekki hlaða það úr tilhöggnum steinum. Ef þú vinnur þá með meitli vanhelgarðu þá.

26Þú skalt ekki ganga upp þrep að altari mínu svo að blygðun þín verði þar ekki ber.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help