Fyrsta Makkabeabók 11 - Biblían (2007)

Konungur Egypta svíkur Alexander

1Konungur Egyptalands safnaði að sér miklum flota og slíkum aragrúa herliðs að það var sem sandur á sjávarströnd. Ætlaði hann að ná ríki Alexanders undir sig með brögðum og auka því við ríki sitt.

2Hélt hann til Sýrlands með friðmælum. Íbúar borganna luku þeim upp fyrir honum og tóku honum vel enda hafði Alexander konungur mælt svo fyrir þar sem hér var tengdafaðir hans á ferð.

3En Ptólemeus skildi setulið eftir í hverri borg sem hann kom við í.

4Þegar hann hafði náð til Asdód voru honum sýndar brunarústir Dagónhofsins og hvernig herinn hafði eytt Asdód og bæjunum umhverfis. Honum voru sýnd líkin sem lágu á dreif. Einnig var líkamsleifum þeirra sem brenndir voru inni í stríðinu staflað upp við veginn sem konungur fór um.

5Til að sverta Jónatan var konungi skýrt frá því sem hann hafði gert en konungur þagði við.

6Jónatan fór með viðhöfn til Joppe til fundar við konung. Þeir skiptust á kveðjum og tóku síðan á sig náðir.

7Jónatan fylgdi konungi síðan allt að fljóti því sem kallast Elevterus en hvarf síðan aftur til Jerúsalem.

8Ptólemeus konungur náði yfirráðum í borgunum við ströndina allt að Selevkíu við hafið og bruggaði Alexander illt.

9Hann sendi fulltrúa til Demetríusar konungs með þessi boð: „Kom þú. Við skulum gera með okkur sáttmála. Ég skal gefa þér dóttur mína sem Alexander á og þú skalt verða konungur í ríki föður þíns.

10Mig iðrar þess að hafa gefið Alexander hana því að hann hefur setið um líf mitt.“

11Með þeim hætti sverti hann Alexander vegna þess að hann girntist ríki hans.

12Tók hann dóttur sína frá honum og gaf hana Demetríusi og varð ekki aðeins fráhverfur Alexander heldur varð fjandskapur millum þeirra á allra vitorði.

13Ptólemeus hélt síðan innreið sína í Antíokkíu og tók sér kórónu Asíu. Bar hann nú tvær kórónur, Egyptalands og Asíu.

Alexander Balas felldur

14Alexander konungur var í Kilíkíu um þessar mundir vegna þess að íbúar þar höfðu risið gegn honum.

15Þegar honum bárust fregnir af þessum atburðum fór hann með her sinn gegn Ptólemeusi. Hann hélt með mikinn herstyrk móti Alexander og hafði sigur.

16Flýði Alexander til Arabíu og leitaði þar hælis en Ptólemeus var sigri hrósandi.

17En Arabinn Sabdíel hjó höfuðið af Alexander og sendi það til Ptólemeusar.

18Þrem dögum síðar dó Ptólemeus sjálfur. Drápu þá íbúar víggirtu borganna setuliðin þar.

19Varð Demetríus þá konungur árið eitt hundrað sextíu og sjö.Jónatan vinnur hylli Demetríusar II

20Um þetta leyti safnaði Jónatan Gyðingum til að ráðast á virkið í Jerúsalem og ná því á sitt vald. Reistu þeir margar umsátursvélar við það.

21En nokkrir guðlausir menn, sem hötuðu þjóð sína, fóru til konungs og sögðu honum að Jónatan sæti um virkið.

22Varð Demetríus reiður við og jafnskjótt og honum bárust þessi tíðindi bjó hann sig til farar og hélt til Ptólemais. Skrifaði hann Jónatan, bauð honum að létta umsátrinu og koma sem skjótast til Ptólemais til fundar við sig og viðræðna.

23Þegar Jónatan heyrði þetta skipaði hann að umsátrinu skyldi haldið áfram. Hann kaus sér fylgdarlið úr hópi öldunga Ísraels og prestanna og gaf sig hættunni á vald.

24Tók hann með sér silfur, gull og klæði og fjölda annarra gjafa, kom til konungs í Ptólemais og ávann sér velvild hans.

25En nokkrir guðlausir landar hans níddu hann við konung.

26Þó kom konungur fram við Jónatan eins og fyrirrennarar hans höfðu gert og auðsýndi honum virðingu í augsýn allra vina sinna.

27Hann staðfesti æðstaprestdóm Jónatans og öll hans fyrri metorð önnur og ákvað að hann skyldi fylla hóp fremstu vina sinna.

28Jónatan bað konung um að lýsa Júdeu, héruðin þrjú og Samaríu skattfrjáls. Hét hann konungi þrjú hundruð talentum í staðinn.

29Konungur féllst á þetta. Gaf hann Jónatan skriflega staðfestingu á því sem er á þessa leið:

30„Demetríus konungur sendir bróður sínum Jónatan og Gyðingaþjóðinni kveðju.

31Afrit af bréfi því sem vér rituðum Lastenesi frænda vorum um mál ykkar sendum vér ykkur hér með til kynningar:

32Demetríus konungur sendir Lastenesi föður sínum kveðju.

33Vér höfum afráðið að launa þjóð Gyðinga fyrir velvild í vorn garð en hún hefur reynst vinur vor og staðið við allar skuldbindingar við oss.

34Vér staðfestum hér með yfirráð Gyðinga á landsvæði Júdeu og héruðunum þremur, Aferema, Lyddu og Ramataím, sem hafa verið lögð undir Júdeu frá Samaríu ásamt öllu sem þeim fylgir. Öllum sem færa fórnir í Jerúsalem skal gefinn eftir skattur af korni og ávöxtum sem konungur gerði áður kröfu til árlega.

35Sama skal gilda um allar tekjur aðrar sem vér eigum framvegis rétt á af tíundum og tollum sem oss ber, einnig salttoll og kórónuskatt. Allt þetta skal þeim eftirgefið.

36Ekkert þessara ákvæða má afturkalla og skulu þau gilda frá og með deginum í dag og um alla framtíð.

37Nú ber ykkur að sjá um að taka afrit af bréfi þessu og fá Jónatan það. Skal því komið fyrir á áberandi stað á fjallinu helga.“

Jónatan hjálpar Demetríusi II

38Demetríus konungur sá að kyrrð var komin á í landi hans og engin andspyrna var gegn honum. Hann lét þá allan herafla sinn frá sér fara og hélt hver til síns heima að frátöldu útlenda herliðinu sem hann hafði dregið að sér frá eyjum heiðingjanna. Það setti alla hermennina sem verið höfðu í þjónustu fyrirrennara hans upp á móti honum.

39Einn þeirra sem verið höfðu í þjónustu Alexanders var Trýfon. Hann sá að allar hersveitirnar gerðu kurr gegn Demetríusi. Fór hann þá til Arabans Jamlíku sem fóstraði Antíokkus, barnungan son Alexanders.

40Hann lagði hart að honum að fá drenginn afhentan til að hann yrði konungur í stað föður síns. Greindi hann Jamlíku frá öllum ráðstöfunum Demetríusar og fjandskap hersveitanna í hans garð. Dvaldist Trýfon þar langa hríð.

41Jónatan sendi boð til Demetríusar konungs og bað hann að reka setuliðið úr virkinu í Jerúsalem og öðrum virkjum því að þau ólu stöðugt á ófriði við Ísraelsmenn.

42Demetríus sendi Jónatan svohljóðandi svar: „Ekki skal ég gera þetta eitt fyrir þig og þjóð þína heldur skal ég einnig auðsýna þér og þjóð þinni hina mestu sæmd fái ég tækifæri til.

43En vel gerðir þú ef þú sendir mér hermenn til liðveislu því að allar hersveitir mínar hafa brugðist mér.“

44Jónatan sendi þrjú þúsund vaska hermenn til konungs í Antíokkíu. Varð Demetríus feginn komu þeirra.

45En nær eitt hundrað og tuttugu þúsundir borgarbúa söfnuðust í miðborginni og ætluðu að taka konung af lífi.

46Konungur flýði inn í höllina en borgarbúar náðu aðalgötum borgarinnar á sitt vald og hófu áhlaup.

47Konungur kallaði á Gyðingana til hjálpar og þyrptust þeir allir til hans. Dreifðu þeir sér síðan um borgina og felldu þann daginn um eitt hundrað þúsund manns.

48Þeir kveiktu einnig í borginni, tóku mikið herfang þá um daginn og björguðu konungi.

49Þegar íbúarnir sáu að Gyðingar höfðu náð yfirtökum og gátu farið sínu fram í borginni féllst þeim hugur, þeir hrópuðu til konungs og báðu:

50„Sæstu við okkur og láttu Gyðingana hætta að herja á okkur og borgina.“

51Þeir vörpuðu frá sér vopnum sínum og friður var saminn.

Gyðingar uxu stórum í áliti hjá konungi. Jókst hróður þeirra mjög og orðstír þeirra barst um ríki konungs. Sneru þeir aftur til Jerúsalem og höfðu með sér mikið herfang.

52Demetríus settist í hásæti ríkis síns og var allt með kyrrum kjörum í landi hans.

53En hann sveik öll sín loforð og gerðist fráhverfur Jónatan. Endurgalt hann honum í engu þá velvild sem Jónatan hafði auðsýnt honum heldur þrengdi mjög að honum.

Jónatan styður Antíokkus VI

54Nokkru síðar kom Trýfon aftur með snáðann Antíokkus. Tók Antíokkus við konungdómi og var krýndur.

55Söfnuðust um hann allar hersveitirnar sem Demetríus hafði hrakið frá sér. Þær réðust á Demetríus sem beið ósigur og flýði.

56Trýfon tók fílana og náði Antíokkíu á sitt vald.

57Antíokkus ungi skrifaði Jónatan sem hér segir: „Ég staðfesti æðstaprestdóm þinn og yfirráð yfir héruðunum fjórum og að þú sért einn af vinum konungs.“

58Hann sendi Jónatan borðbúnað úr gulli og heimilaði honum að drekka úr gullbikar, klæðast purpura og bera gullsylgju.

59Símon, bróður Jónatans, gerði Antíokkus að hershöfðingja á svæðinu frá Týrusarstiga að landamærum Egyptalands.

60Jónatan tók sig upp og fór um landið handan fljóts og borgirnar þar og allar hersveitir Sýrlands söfnuðust að honum til að veita honum lið. Þegar hann kom til Askalon tóku íbúarnir á móti honum með viðhöfn.

61Þaðan fór Jónatan til Gasa en borgarbúar meinuðu honum aðgang að borginni. Settist hann um Gasa, brenndi borgirnar umhverfis hana og rændi þær.

62Leituðu borgarbúar þá eftir friði við Jónatan og varð hann við óskum þeirra. En hann tók syni fremstu manna borgarinnar í gíslingu og sendi þá til Jerúsalem. Hann fór síðan um landið alla leið til Damaskus.

63Þá barst honum til eyrna að hershöfðingjar Demetríusar væru komnir til Kades í Galíleu með mikinn her til að stemma stigu við fyrirætlunum hans.

64Fór Jónatan á móti þeim en skildi Símon bróður sinn eftir í Júdeu.

65Símon setti upp herbúðir gegnt Bet Súr, umkringdi borgina og herjaði á hana langa hríð.

66Borgarbúar leituðu eftir friði við hann sem Jónatan féllst á en hrakti þá úr borginni, tók sjálfur völdin og kom þar fyrir setuliði.

67Jónatan og her hans sló upp herbúðum við Genesaretvatnið og hélt árla morguns út á Asórsléttuna.

68Kom þá meginherstyrkur útlendinganna gegn honum út á sléttuna og réðst að honum en nokkrum hluta hersins höfðu útlendingarnir komið fyrir í fjöllunum að baki liði Jónatans.

69Þegar það lið kom fram úr leyni sínu og réðst á þá

70flýðu allir menn Jónatans. Enginn þeirra varð um kyrrt nema herforingjarnir Mattatías Absalonsson og Júdas Kalfeisson.

71Þá reif Jónatan klæði sín, jós mold yfir höfuð sér og baðst fyrir.

72Síðan lagði hann til orrustu við óvinina og rak þá á flótta.

73Þegar flóttamennirnir úr liði hans sáu þetta komu þeir aftur til hans og tóku þátt í eftirförinni að herbúðum óvinanna við Kades. Þar reistu þeir sjálfir herbúðir.

74Daginn þann féllu um þrjú þúsund manns af liði útlendinganna. Jónatan sneri síðan aftur til Jerúsalem.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help