Esrabók 2 - Biblían (2007)

Skrá yfir þá sem sneru aftur

1Þetta eru þeir íbúar skattlandsins sem sneru heim úr útlegð hinna herteknu. Nebúkadnesar, konungur í Babýlon, hafði flutt þá í útlegð til Babýlonar. Nú sneru þeir aftur, hver til sinnar borgar.

2Þeir komu aftur með Serúbabel, Jesúa, Nehemía, Seraja, Reelja, Mordekaí, Bilsan, Mispar, Bigvaí, Rehúm og Baana.

Fjöldi karlmanna af þjóð Ísraels var:

3Niðjar Parós 2172.

4Niðjar Sefatja 372.

5Niðjar Ara 775.

6Niðjar Pahats Móabs, það er niðjar Jesúa og Jóabs, 2812.

7Niðjar Elams 1254.

8Niðjar Sattú 945.

9Niðjar Sakkaí 760.

10Niðjar Baní 642.

11Niðjar Bebaí 623.

12Niðjar Asgads 1222.

13Niðjar Adóníkams 666.

14Niðjar Bigvaí 2056.

15Niðjar Adíns 454.

16Niðjar Aters frá Hiskía 98.

17Niðjar Besaí 323.

18Niðjar Jóra 112.

19Niðjar Hasúms 223.

20Niðjar Gibbars 95.

21Ættaðir frá Betlehem 123.

22Menn frá Netófa 56.

23Menn frá Anatót 128.

24Ættaðir frá Asmavet 42.

25Ættaðir frá Kirjat Jearím, Kefíra og Beerót 743.

26Ættaðir frá Rama og Geba 621.

27Menn frá Mikmas 122.

28Menn frá Betel og Aí 223.

29Ættaðir frá Nebó 52.

30Niðjar Magbís 156.

31Niðjar annars Elams 1254.

32Niðjar Haríms 320.

33Ættaðir frá Lód, Hadíd og Ónó 725.

34Ættaðir frá Jeríkó 345.

35Ættaðir frá Senaa 3630.

36Prestarnir voru: niðjar Jedaja, af ætt Jesúa, 973.

37Niðjar Immers 1052.

38Niðjar Pasúrs 1247.

39Niðjar Haríms 1017.

40Levítarnir voru: niðjar Jesúa og Kadmíels, af niðjum Hódavja, 74.

41Söngvararnir voru: niðjar Asafs 128.

42Niðjar hliðvarðanna voru: niðjar Sallúms, niðjar Aters, niðjar Talmóns, niðjar Akúbs, niðjar Hatíta, niðjar Sóbaí, alls 139.

43Musterisþjónarnir voru: niðjar Síha, niðjar Hasúfa, niðjar Tabbaóts,

44niðjar Kerós, niðjar Síaha, niðjar Padóns,

45niðjar Lebana, niðjar Hagaba, niðjar Akúbs,

46niðjar Hagabs, niðjar Salmaí, niðjar Hanans,

47niðjar Giddels, niðjar Gahars, niðjar Reaja,

48niðjar Resíns, niðjar Nekóda, niðjar Gassams,

49niðjar Ússa, niðjar Pasea, niðjar Besaí,

50niðjar Asna, niðjar Meúníta, niðjar Nefísíta,

51niðjar Bakbúks, niðjar Hakúfa, niðjar Harhúrs,

52niðjar Baselúts, niðjar Mehída, niðjar Harsa,

53niðjar Barkós, niðjar Sísera, niðjar Tema,

54niðjar Nesía, niðjar Hatífa.

55Niðjar þjóna Salómons voru: niðjar Sótaí, niðjar Sóferets, niðjar Perúda,

56niðjar Jaala, niðjar Darkóns, niðjar Giddels,

57niðjar Sefatja, niðjar Hattils, niðjar Pókeret Hassebaíms, niðjar Ami.

58Alls voru musterisþjónarnir og niðjar þjóna Salómons 392.

59Eftirtaldir eru þeir sem fóru heim frá Tel Mela, Tel Harsa, Kerúb, Addan og Immer enda þótt þeir gætu ekki gert grein fyrir ætt sinni og uppruna og hvort þeir væru komnir af Ísraelsmönnum:

60niðjar Delaja, niðjar Tobía og niðjar Nekóda 652.

61Af niðjum prestanna: niðjar Habaja, niðjar Hakkós, niðjar Barsillaí sem kvænst hafði einni af dætrum Barsillaí frá Gíleað og tekið sér nafn þeirra.

62Þessir menn leituðu nafna sinna í ættartölunum en þau fundust ekki. Þess vegna voru þeir sviptir prestsembætti.

63Landstjórinn bannaði þeim að neyta hins háheilaga uns prestur kæmi fram er gæti leitað úrskurðar með úrím og túmmím.

64Söfnuðurinn allur var samtals 42.360 manns

65og að auki 7337 þrælar þeirra og ambáttir. Þeir höfðu einnig 200 söngvara og söngkonur.

66Þeir áttu 736 hesta, 245 múldýr,

67435 úlfalda og 6720 asna.

Gjafir til musterisbyggingarinnar

68Þegar þeir komu að húsi Drottins í Jerúsalem gáfu nokkrir af ættarhöfðingjunum að eigin frumkvæði gjafir til þess að hús Guðs risi á sínum stað.

69Þeir gáfu eftir efnum sínum sextíu og eitt þúsund daríka, fimm þúsund mínur silfurs og hundrað prestaskrúða.

70Prestarnir, Levítarnir, ýmsir almennir borgarar, söngvararnir, hliðverðirnir og musterisþjónarnir settust að í borgum sínum eins og allir aðrir Ísraelsmenn.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help