Síraksbók 51 - Biblían (2007)

Bæn Jesú Sírakssonar

1Þér vil ég þakka, Drottinn og konungur,

og lofa þig, Guð, frelsari minn.

Ég lofa nafn þitt.

2Því að þú varst vörn mín og hjálp,

leystir mig frá glötun,

úr snöru rógstungunnar,

frá vörum þeirra er fóru með lygar.

Andspænis þeim er að mér réðust

varðst þú mér hjálp

3og bjargaðir mér.

Það var sakir mikillar miskunnar þinnar og nafns þíns

að þú leystir mig úr gini þeirra sem gleypa mig,

úr höndum þeirra er sátu um líf mitt,

úr fjölda nauða sem mig rak í.

4Þú bjargaðir mér úr kæfandi eldkófi er lukti um mig,

úr eldslogum sem ég hafði eigi kveikt,

5úr hyldýpi heljar,

frá óhreinum tungum og upplognum sökum

6og frá örvum ranglátra tungna.

Ég var að dauða kominn

og rétt að ganga til heljar niður.

7Að mér var sótt úr öllum áttum, enga var hjálp að fá.

Ég svipaðist um eftir mannlegri hjálp

en hana var hvergi að finna.

8Þá minntist ég miskunnar þinnar, Drottinn,

þeirrar gæsku sem þú hefur auðsýnt að eilífu,

að þú bjargar þeim er bíða þín þolgóðir

og frelsar þá úr óvina höndum.

9Ég hóf upp grátbeiðni mína af jörðu

og ákallaði um hjálp frá dauða.

10Ég ákallaði Drottin, föður Drottins míns:

„Yfirgef mig eigi á neyðarstundu

er ég stend hjálparvana andspænis hrokafullum.

11Þá mun ég lofa nafn þitt án afláts,

syngja þér lofsöng og þakkargjörð.“

Bæn mín var heyrð,

12þú frelsaðir mig frá glötun,

bjargaðir mér á hörmungadegi.

Þess vegna vil ég þakka þér og lofa þig

og vegsama nafn Drottins.

1) Þakkið Drottni því að hann er góður

og miskunn hans varir að eilífu.

2) Þakkið Drottni lofsöngvanna

því að miskunn hans varir að eilífu.

3) Þakkið verndara Ísraels

því að miskunn hans varir að eilífu.

4) Þakkið skapara alls

því að miskunn hans varir að eilífu.

5) Þakkið endurlausnara Ísraels

því að miskunn hans varir að eilífu.

6) Þakkið honum sem safnar dreifðum Ísraelsmönnum

því að miskunn hans varir að eilífu.

7) Þakkið honum sem endurreisir borg sína og helgidóm

því að miskunn hans varir að eilífu.

8) Þakkið honum sem eykur mátt Davíðs ættar

því að miskunn hans varir að eilífu.

9) Þakkið honum sem velur syni Sadóks til prestsþjónustu

því að miskunn hans varir að eilífu.

10) Þakkið skildi Abrahams

því að miskunn hans varir að eilífu.

11) Þakkið bjargi Ísaks

því að miskunn hans varir að eilífu.

12) Þakkið mætti Jakobs

því að miskunn hans varir að eilífu.

13) Þakkið honum sem útvaldi Síon

því að miskunn hans varir að eilífu.

14) Þakkið konunginum, konungi konunganna,

því að miskunn hans varir að eilífu.

15) Hann hefur aukið mátt lýðs síns

sem er lofgjörðarefni öllum guðhræddum,

börnum Ísraels sem standa honum nærri.

Hallelúja.

13Er ég var ungur, áður en ég tók að ferðast,

sóttist ég opinskátt eftir speki í bænum mínum.

14Ég bað um að hljóta speki frammi fyrir musterinu,

til hinstu andrár mun ég sækjast eftir henni.

15Frá blómstrun, uns þrúgan var þroskuð orðin,

hlaut hjarta mitt fögnuð af henni.

Ég beindi sporum mínum á réttar brautir,

fetaði veg spekinnar frá æsku.

16Um stund hneigði ég eyra að og þáði,

mikil uppfræðsla reyndist mér það.

17Spekin varð mér til þroska,

ég vil heiðra þann sem gaf mér hana.

18Enda ásetti ég mér að iðka spekina,

kostaði ákaft kapps um hið góða,

ég mun aldrei til skammar verða.

19Sál mín tókst mjög á við spekina,

í engu breytti ég út af boðum lögmálsins.

Ég hóf upp hendur mínar til hæða

og hugleiddi hve hún var mér fjarri.

20Ég beindi óskiptum huga að henni,

sakir hreinleika míns fann ég síðan spekina.

Leiðsögn hennar veitti mér skilning frá fyrsta fari,

því mun ég aldrei yfirgefinn.

21Ég var órór hið innra við að leita hennar

en öðlaðist ágætustu eign.

22Drottinn launaði mér með orðsnilld,

með henni vil ég syngja Drottni lof.

23Komið til mín, ófróðu menn,

dveljið í menntahúsi.

24Hví brestur yður enn í þessu,

hví eru sálir yðar sárþyrstar?

25Ég hef lokið upp munni og talað,

nú skuluð þér þiggja án endurgjalds.

26Beygið háls yðar undir okið

og sál yðar mun hljóta fræðslu.

Hennar er eigi langt að leita.

27Sjáið með eigin augum. Lítt þurfti ég að strita,

en mikinn frið hef ég fundið.

28Gefið gjarnan gnótt silfurs fyrir fræðslu,

hún mun afla yður mikils gulls.

29Megi sálir yðar gleðjast af miskunn Drottins

og þér aldrei blygðast yðar fyrir að syngja honum lof.

30Vinnið verk yðar meðan enn er tími.

Hann launar yður þegar tími hans kemur.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help