Fyrsta Makkabeabók 6 - Biblían (2007)

Antíokkus Epífanes veikist og deyr

1Á ferð sinni um upplöndin frétti Antíokkus konungur af borg í Persíu, Elýmaís að nafni. Var hún orðlögð fyrir auð af gulli og silfri.

2Hofið þar var vellauðugt. Hafði Alexander konungur Filippusson frá Makedóníu, sem fyrstur ríkti yfir Grikkjum, skilið þar eftir gullna skildi, brynjur og vopn.

3Antíokkus hélt þangað og ætlaði að taka borgina og ræna hana. Það mistókst honum því að borgarbúar komust að ásetningi hans.

4Veittu þeir honum vopnaða mótspyrnu og flýði hann þungur í huga og ætlaði aftur til Babýlonar.

5Í Persíu bar sendiboði Antíokkusi þau boð að herir hans, sem héldu inn í Júdeu, hefðu beðið ósigur.

6Hefði Lýsías farið fyrstur þangað með öflugan her sem andstæðingarnir hrundu. Við það hefðu Gyðingar eflst mjög að vopnum, öðrum hergögnum og hvers kyns búnaði sem þeir tóku af hersveitunum sem þeir brytjuðu niður.

7Síðan hefðu þeir rifið niður viðurstyggðina sem konungur reisti á fórnaraltarinu í Jerúsalem og hlaðið háa múra kringum helgidóminn, eins og áður voru þar, og einnig umhverfis borg hans Bet Súr.

8Þegar konungur heyrði þessi tíðindi tók hann að skjálfa af geðshræringu. Lagðist hann í rúmið, yfirkominn af harmi yfir að hafa mistekist það sem hann ætlaði sér.

9Lá hann dögum saman því að hugarvíl sótti sífellt að nýju á hann og bjóst hann við dauða sínum.

10Kallaði hann alla vini sína til sín og sagði við þá: „Mér er varnað svefns og hjarta mitt er lamað af áhyggjum.

11Ég sagði við sjálfan mig: Hvers konar neyð og ógæfa er yfir mig komin? Ég var þó góður og elskaður valdhafi.

12En nú leita á hugann ódæðin sem ég drýgði í Jerúsalem þegar ég tók öll silfur- og gullkerin þaðan og sendi lið til að afmá íbúa Júdeu að tilefnislausu.

13Nú skil ég að það er vegna þessa sem ógæfan er yfir mig komin og að ég dey sorgbitinn mjög í framandi landi.“

14Síðan kallaði hann á Filippus, einn vina sinna, og setti hann yfir allt ríki sitt.

15Fékk hann honum kórónu sína, skikkju og fingurgull. Átti hann að fóstra Antíokkus son hans og ala hann upp til að taka við konungdómi.

16Þarna dó Antíokkus konungur árið eitt hundrað fjörutíu og níu.

17Þegar Lýsías frétti lát konungs setti hann Antíokkus son hans jafnskjótt til valda í hans stað en Lýsías hafði fóstrað hann frá æsku. Gaf hann honum nafnið Evpator.

Umsátur um virkið í Jerúsalem

18Setuliðið í virkinu lokaði leiðum fyrir Ísraelsmönnum kringum helgidóminn. Leitaðist það stöðugt við að vinna þeim mein og styrkja heiðingjana.

19Afréð Júdas að afmá liðið og kallaði alla þjóðina saman til að hefja umsátur.

20Söfnuðust allir til umsáturs, smíðuðu skotpalla og umsátursvélar og settust um virkið. Var það árið eitt hundrað og fimmtíu.

21En nokkrir hinna umsetnu sluppu út og gerðust sumir guðlausir Ísraelsmenn liðsmenn þeirra.

22Fóru þeir til konungs og sögðu: „Hve lengi hyggst þú draga að koma á rétti og hefna bræðra okkar?

23Við þjónuðum föður þínum af fúsu geði, fórum að fyrirmælum hans og hlýddum boðum hans.

24Þess vegna hafa landar okkar, sem sitja um virkið, snúið við okkur baki. Og ekki nóg með það. Þeir drepa hvern þann af okkur sem þeir ná og ræna eigum okkar.

25Og ekki beita þeir okkur eina ofbeldi heldur landið allt.

26Á þessari stundu sitja þeir um virkið í Jerúsalem til að taka það og hafa víggirt bæði helgidóminn og Bet Súr.

27Ef þú tekur ekki fram fyrir hendurnar á þeim, og það strax, þá munu þeir gera það sem meira er þessu og þú munt ekkert fá við þá ráðið.“

Herför Antíokkusar V til Júdeu

28Konungur reiddist er hann heyrði þetta. Kallaði hann saman alla þá vini sína sem voru foringjar í her hans og riddaraliði.

29Frá öðrum konungsríkjum og frá eyjunum í hafinu fékk hann málaher til liðs.

30Varð herafli hans eitt hundrað þúsund fótgönguliðar, tuttugu þúsund riddarar og þrjátíu og tveir fílar þjálfaðir til bardaga.

31Hélt herinn um Ídúmeu, settist um Bet Súr og herjaði á borgina dögum saman. Þeir smíðuðu umsátursvélar en hinir umsetnu gerðu útrás, kveiktu í þeim og vörðust hetjulega.

32Þá yfirgaf Júdas virkið í Jerúsalem, fór með her sinn til Bet Sakaría og kom honum fyrir gegnt herbúðum konungs.

33Snemma næsta morgun lét konungur her sinn taka sig upp og hélt með hann gunnreifan áleiðis til Bet Sakaría. Þar fylkti liðið sér til bardaga og þeytti herlúðra.

34Fílunum var sýndur lögur úr þrúgum og mórberjum til að gera þá bardagatryllta.

35Dýrunum var síðan skipt niður á fylkingarnar. Fylgdu hverjum fíl eitt þúsund menn búnir hringabrynjum og með koparhjálma á höfði og auk þess var fimm hundruð úrvalsriddurum skipað með hverju dýri.

36Þeir héldu sig þétt að dýri sínu fyrir bardagann. Gengi það fram gerðu þeir hið sama og viku ekki frá því.

37Hver fíll var brynvarinn og bar sterkan tréturn sem festur var með gjörðum á dýrið. Í hverjum turni voru fjórir hermenn sem þaðan börðust auk Indverjans sem stýrði.

38Hinir riddararnir voru settir beggja vegna við báða fylkingararma hersins og gátu ógnað óvinum í skjóli við fylkingarnar.

39Er sólin lýsti á gull- og eirslegna skildi vörpuðu þeir ljóma á fjöllin svo að þau skinu sem brennandi blys.

40Nokkur hluti konungshersins kom sér fyrir á háfjallinu og annar á sléttunni. Síðan sóttu þeir fram fast og skipulega.

41Sérhver, sem heyrði hróp þessa fjölda og traðk skarans og glamrið í vopnunum, hlaut að skjálfa, svo yfirtaks mikill sem þessi herafli var.

42Júdas lagði til atlögu með her sinn og felldi sex hundruð manns úr her konungs.

43Eleasar Avaran tók eftir að eitt dýranna bar af öllum öðrum og hafði konunglega brynju. Virtist honum sem þar færi konungurinn.

44Hann fórnaði lífi sínu til að bjarga þjóð sinni og geta sér eilífan orðstír.

45Hljóp hann djarflega að dýrinu inn í fylkinguna miðja, brytjaði óvini niður til hægri og vinstri svo að þeir hrukku til beggja handa.

46Hann smaug undir fílinn og lagði hann banasári í kviðinn. Féll fíllinn dauður ofan á Eleasar og beið hann þar bana.

47En er Ísraelsmönnum varð ljós liðstyrkur konungs og baráttuvilji hersins urðu þeir að hörfa undan.

Konungur hertekur Síonfjall

48Hermenn konungs héldu til Jerúsalem til að berjast við Jerúsalembúa. Reisti konungur herbúðir gegnt Júdeu og Síonfjalli.

49Hann samdi frið við íbúa Bet Súr. Fóru þeir úr borginni en þar var orðið fulllítið um vistir til að standast langt umsátur enda var hvíldarár.

50Hertók konungur Bet Súr og skildi þar eftir setulið til að gæta staðarins.

51Síðan settist hann um helgidóminn. Stóð umsátrið lengi. Reisti hann þar skotpalla og umsátursvélar, eldvörpur, grjótvörpur, örvaþeyta og valslöngvur.

52Hinir umsetnu smíðuðu einnig vígvélar gegn umsátursvélum óvinanna og stríðið dróst á langinn.

53Lítið var orðið um matvæli í búri musterisins þar sem þetta var sjöunda árið og þeir sem bjargað var frá heiðingjunum og komust til Júdeu höfðu lokið því sem eftir var af fyrningum.

54Svarf hungur svo mjög að mönnum að þeir tvístruðust hver til síns heima og voru einungis fáir eftir í helgidóminum.

Tilboð um frið og trúfrelsi

55Nú barst Lýsíasi til eyrna að Filippus, sem Antíokkus konungur hafði í lifanda lífi falið að ala son sinn Antíokkus upp til að taka við konungdómi,

56væri kominn aftur frá Persíu og Medíu með herlið það sem konungur hélt með austur. Hefði hann í hyggju að taka völdin.

57Ákvað Lýsías að létta þegar umsátrinu og hraða sér brott. Sagði hann við konung, liðsforingjana og menn sína: „Með hverjum degi sverfur meir að okkur og vistir eru á þrotum. Svo er virkið sem við sitjum um vel varið. Enn fremur er brýnt að huga að málefnum ríkisins.

58Ættum við því ekki að rétta mönnum þessum sáttarhönd og semja frið við þá og þjóð þeirra alla?

59Við skulum heimila þeim að fara eftir lögmálsreglum sínum eins og áður. Því að það var sakir þess að við felldum þær úr gildi sem þeir reiddust og aðhöfðust allt þetta.“

60Konungi og liðsforingjunum leist vel á þetta. Sendi konungur hinum umsetnu tilboð um frið og var því tekið.

61Konungurinn og liðsforingjarnir unnu þeim eiða að skilmálunum og samkvæmt þeim komu hinir umsetnu út úr virkinu.

62Gekk konungur síðan á Síonfjall. En þegar hann sá hve musterið var vel víggirt rauf hann eiðinn og lét rífa virkisvegginn umhverfis musterið.

63Hélt hann síðan á brott án frekari tafa og sneri aftur til Antíokkíu. Þar komst hann að raun um að Filippus hafði borgina á sínu valdi. Gerði hann skyndiárás á Filippus og vann borgina.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help