Fjórða Mósebók 9 - Biblían (2007)

Reglur um páskahald

1Í fyrsta mánuði annars árs eftir brottför Ísraelsmanna frá Egyptalandi ávarpaði Drottinn Móse í Sínaíeyðimörk og sagði:

2„Ísraelsmenn skulu halda páska á tilteknum tíma.

3Fjórtánda dag þessa mánaðar, í rökkrinu áður en dimmt er orðið, skuluð þið halda þá. Þið skuluð halda þá að öllu leyti eftir lagaákvæðum og reglum um þá.“

4Móse bauð Ísraelsmönnum að halda páska

5og þeir héldu páska í Sínaíeyðimörk, í rökkrinu áður en dimmt var orðið, fjórtánda dag fyrsta mánaðarins. Ísraelsmenn gerðu nákvæmlega allt sem Drottinn hafði boðið Móse.

6Þarna voru menn sem höfðu saurgast af líki og gátu því ekki haldið páska þennan dag. Þeir gengu fyrir Móse og Aron sama dag

7og sögðu við hann: „Við höfum saurgast af líki. Hvers vegna er okkur bannað að færa Drottni gjöf á tilsettum tíma með öðrum Ísraelsmönnum?“

8Móse svaraði þeim: „Bíðið við. Ég ætla að heyra hvaða fyrirmæli Drottinn gefur um ykkur.“

9Drottinn talaði til Móse og sagði:

10„Segðu við Ísraelsmenn: Þegar einhver ykkar eða einhver niðja ykkar hefur saurgast af líki eða er í langferð en ætlar að halda Drottni páska,

11skal hann halda þá í rökkrinu áður en dimmt er orðið fjórtánda dag annars mánaðar. Þeir skulu neyta páskalambsins með ósýrðu flatbrauði og beiskum jurtum.

12Þeir mega hvorki leifa neinu af því til næsta morguns né brjóta í því neitt bein. Þeir skulu fara í öllu eftir lögunum um páska.

13En vanræki sá sem er hreinn og ekki er á ferðalagi að halda páska skal hann upprættur úr þjóð sinni því að hann hefur ekki fært fram gjöf til Drottins á tilteknum tíma. Sá maður skal taka á sig sekt sína.

14Ef aðkomumaður, sem nýtur verndar hjá ykkur, ætlar að halda Drottni páska skal hann halda þá samkvæmt lögum og reglum um páska. Ein lög skulu gilda hjá ykkur, þau sömu fyrir aðkomumann og þann sem fæddur er í landinu.“

Skýið yfir tjaldbúðinni

15Daginn, sem tjaldbúðin var reist, huldi skýið sáttmálstjaldið. Og frá kvöldi til morguns hvíldi yfir því eitthvað sem líktist eldi.

16Þannig var það ávallt, skýið huldi það en eitthvað, sem líktist eldi, var yfir því um nætur.

17Jafnan þegar skýið hóf sig upp frá tjaldinu lögðu Ísraelsmenn af stað og þar sem skýið settist að settu þeir búðir sínar.

18Ísraelsmenn lögðu af stað að boði Drottins og settu búðir sínar að boði Drottins. Í hvert sinn sem skýið var yfir tjaldbúðinni dvöldust þeir í búðum sínum.

19Þegar skýið var lengi um kyrrt yfir tjaldbúðinni fylgdu Ísraelsmenn fyrirmælum Drottins og héldu kyrru fyrir.

20Stundum var skýið fáeina daga yfir tjaldbúðinni. Þá settu þeir búðir sínar að boði Drottins og lögðu af stað að boði Drottins.

21Þegar skýið var yfir tjaldbúðinni næturlangt og hóf sig upp að morgni lögðu þeir af stað.

22Þegar skýið var yfir tjaldbúðinni tvo daga, einn mánuð eða lengur voru Ísraelsmenn um kyrrt í tjaldbúðunum en hvenær sem það hóf sig upp lögðu þeir af stað.

23Þeir settu búðir sínar að boði Drottins og lögðu af stað að boði Drottins. Þeir fylgdu þeim fyrirmælum Drottins sem Móse hafði flutt.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help