1Andi Guðs kom yfir Asarja Ódeðsson.
2Hann gekk þá fyrir Asa og sagði: „Hlustið á mig, Asa og allir íbúar í Júda og Benjamín. Drottinn er með ykkur á meðan þið eruð með honum. Ef þið leitið til hans lætur hann ykkur finna sig en ef þið yfirgefið hann yfirgefur hann ykkur.
3Ísraelsmenn voru lengi án hins sanna Guðs, án presta sem kenndu og án lögmáls.
4Í neyð sinni sneru þeir sér til Drottins, Guðs Ísraels. Þeir leituðu hans og hann lét þá finna sig.
5Um þær mundir gat enginn, sem fór eða kom, verið öruggur af því að óöld ríkti meðal íbúa landanna.
6Þjóð réðst á þjóð og borg á borg af því að Guð olli uppnámi meðal þeirra með hvers konar nauðum.
7En verið hughraustir. Látið ykkur ekki fallast hendur því að ykkur verður umbunað fyrir verk ykkar.“
8Þegar Asa hafði hlýtt á þessi orð og boðskap Asarja spámanns Ódeðssonar herti hann upp hugann og fjarlægði öll skurðgoð úr landi Júda og Benjamíns og borgunum sem hann hafði tekið á Efraímsfjöllum. Hann endurnýjaði einnig altarið sem stóð fyrir framan forsal Drottins.
9Því næst stefndi hann saman öllum ættbálkum Júda og Benjamíns og þeim af ættbálkum Efraíms, Manasse og Símeons sem höfðu leitað hælis hjá þeim. En margir frá Ísrael höfðu flust til hans þegar þeim varð ljóst að Drottinn, Guð hans, var með honum.
10Þeir söfnuðust saman í Jerúsalem í þriðja mánuði fimmtánda árs konungdóms Asa.
11Á þeim degi fórnuðu þeir Drottni sjö hundruð nautum og sjö þúsund sauðum. Þeir færðu þessar fórnir af herfanginu.
12Þá skuldbundu þeir sig til að leita Drottins, Guðs feðra sinna, af öllu hjarta og allri sálu sinni.
13En hver sá sem ekki leitaði Drottins, Guðs Ísraels, skyldi tekinn af lífi, hvort heldur hann var stór eða lítill, karl eða kona.
14Þetta sóru þeir Drottni hárri röddu og með fagnaðarópi og blæstri í lúðra og hafurshorn.
15Allir Júdamenn glöddust vegna þessa eiðs af því að þeir höfðu svarið af öllu hjarta. Þeir leituðu Drottins heils hugar og hann lét þá finna sig. Drottinn veitti þeim frið allt um kring.
16Asa svipti jafnvel Maöku, móður sína, tign sinni sem konungsmóður af því að hún hafði látið gera viðurstyggilega mynd af Aséru. Asa hjó mynd hennar í sundur, muldi hana niður og brenndi í Kedrondal.
17Að vísu hurfu fórnarhæðirnar ekki úr Ísrael en samt var Asa heils hugar í afstöðu sinni alla ævi.
18Hann flutti einnig helgigjafir föður síns og eigin helgigjafir í hús Guðs, bæði silfur og gull og ýmis áhöld.
19Ekkert stríð varð allt til þrítugasta og fimmta stjórnarárs Asa.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.