Fjórða Mósebók 12 - Biblían (2007)

Mirjam og Aron gegn Móse

1Mirjam og Aron ávítuðu Móse vegna konunnar frá Kús sem hann hafði tekið sér fyrir eiginkonu.

2Þau sögðu: „Hefur Drottinn aðeins talað við Móse, hefur hann ekki líka talað við okkur?“ Drottinn hlustaði á þetta.

3En Móse var hógvær maður, hógværari en nokkur annar á jörðinni.

4Skyndilega sagði Drottinn við Móse, Aron og Mirjam: „Farið öll þrjú út til samfundatjaldsins.“ Og þau fóru þangað öll þrjú.

5Þá steig Drottinn niður í skýstólpa, tók sér stöðu við tjalddyrnar og kallaði á Aron og Mirjam. Þau gengu þá bæði fram

6og hann sagði:

Hlýðið á orð mín.

Sé spámaður meðal yðar

birtist ég honum í sýn,

tala við hann í draumi.

7Þannig fer ég ekki að við Móse, þjón minn,

sem er trúað fyrir allri þjóð minni.

8Ég tala við hann augliti til auglitis

en ekki í gátum,

hann fær að sjá mynd Drottins.

Hvers vegna árædduð þið

að ásaka þjón minn, Móse?

9Reiði Drottins blossaði upp gegn þeim og hann gekk á brott.

10Um leið og skýið vék burt frá tjaldinu var Mirjam orðin snjóhvít af holdsveiki. Aron sneri sér að Mirjam og sá að hún var orðin holdsveik.

11Síðan sagði Aron við Móse: „Æ, herra minn. Láttu þá synd, sem við frömdum af heimsku, ekki koma niður á okkur.

12Láttu hana ekki verða eins og andvana fóstur sem helmingur holdsins er rotnaður af þegar það kemur úr móðurlífi.“

13Þá hrópaði Móse til Drottins og sagði: „Gerðu þetta ekki, læknaðu hana.“

14En Drottinn sagði við Móse: „Hefði faðir hennar hrækt framan í hana þyrfti hún þá ekki að bera skömmina í sjö daga? Hún skal vera lokuð inni í sjö daga utan við herbúðirnar. Síðan getur hún komið inn aftur.“

15Mirjam var því lokuð inni utan herbúðanna í sjö daga. Fólkið lagði ekki af stað fyrr en hún var aftur komin inn í herbúðirnar.

16Síðan lagði þjóðin af stað frá Haserót og tjaldaði í Paraneyðimörk.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help