1Melkísedek þessi var konungur í Salem og prestur Guðs Hins hæsta. Hann gekk á móti Abraham og blessaði hann þegar hann sneri heimleiðis eftir að hafa unnið sigur á konungunum.
2Og Abraham lét honum í té tíund af öllu. Í fyrsta lagi þýðir nafn Melkísedeks „réttlætiskonungur“ en hann heitir enn fremur Salemkonungur, það er „friðarkonungur“.
3Þess er ekki getið hver faðir hans, móðir eða forfeður hans voru, hvenær hann fæddist og hvenær hann dó. Hann er líkur syni Guðs, hann heldur áfram að vera prestur um aldur.
4Virðið nú fyrir ykkur hvílíkur maður það var sem Abraham, sjálfur forfaðirinn, gaf valda tíund af herfanginu.
5Og víst er um það að þeim Levísonum, er fá prestdóminn, er boðið að taka tíund af lýðnum eftir lögmálinu, það er að segja af bræðrum sínum, enda þótt þeir séu komnir af Abraham.
6En sá er eigi var af ætt þeirra tók tíund af Abraham og blessaði þann er fyrirheitin hafði.
7Því verður þó ekki á móti mælt að sá sem er meiri blessar þann sem minni er.
8Hér taka dauðlegir menn tíund en þar tók sá er um var vitnað að hann lifi áfram.
9Og svo má að orði kveða að sjálfur Leví, hann sem tíund tekur, hafi greitt tíund þar sem Abraham gerði það
10því að enn þá var hann í lend forföður síns þegar Melkísedek gekk á móti honum.
11Fyrirmæli um presta eru grundvölluð í lögmálinu sem lýðurinn fékk. Hefði nú fullkomnun fengist með levíska prestdóminum, hver var þá framar þörf þess að segja að koma skyldi annars konar prestur að hætti Melkísedeks en ekki að hætti Arons?
12Þegar prestdómurinn breytist verður og breyting á lögmálinu.
13Sá sem þetta er sagt um var af annarri ætt og af þeirri ætt hefur enginn innt þjónustu af hendi við altarið.
14Því að alkunnugt er að Drottinn vor er af Júda ætt en Móse hefur ekkert talað um presta af þeirri ættkvísl.
15Þetta er enn miklu bersýnilegra á því að upp er kominn annar prestur, líkur Melkísedek.
16Hann varð ekki prestur eftir lögum og fyrirmælum manna heldur vegna þess að í honum býr líf og kraftur sem þrýtur ekki.
17Um hann er vitnað: „Þú ert prestur að eilífu að hætti Melkísedeks.“
18Hið fyrra boðorð er þar með ógilt af því að það var vanmáttugt og gagnslaust.
19Lögmálið gerði ekkert fullkomið. En nú höfum við öðlast betri von sem leiðir okkur nær Guði.
20Þetta varð ekki án eiðs. Hinir urðu prestar án eiðs
21en hann með eiði þegar Guð sagði við hann: „Drottinn sór og hann mun ekki iðra þess: Þú ert prestur að eilífu.“
22Þessi samanburður sýnir að Jesús er orðinn ábyrgðarmaður betri sáttmála.
23Enn fremur urðu hinir prestarnir margir af því að dauðinn meinaði þeim að vera áfram.
24En hann er að eilífu og hefur prestdóm þar sem ekki verða mannaskipti.
25Þess vegna getur hann og til fulls frelsað þá sem hann leiðir fram fyrir Guð þar sem hann ávallt lifir til að biðja fyrir þeim.
26Slíks æðsta prests höfðum við þörf sem er heilagur, svikalaus, óflekkaður, greindur frá syndurum og orðinn himnunum hærri.
27Hann þarf ekki daglega, eins og hinir æðstu prestarnir, fyrst að bera fram fórnir fyrir eigin syndir, síðan fyrir syndir lýðsins. Það gerði hann í eitt skipti fyrir öll er hann fórnfærði sjálfum sér.
28Lögmálið skipar breyska menn æðstu presta en eiðurinn, er kom á eftir lögmálinu, skipar æðsta prest sem er sonur, fullkominn að eilífu.
Who We AreWhat We EelieveWhat We Do
2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.