Dómarabókin 9 - Biblían (2007)

Abímelek

1Abímelek Jerúbbaalsson fór til Síkem til móðurbræðra sinna og talaði við þá og við allt frændlið móðurættar sinnar á þessa leið:

2„Talið svo í eyru allra Síkembúa: Hvort fellur ykkur betur að sjötíu menn, allir synir Jerúbbaals, drottni yfir ykkur eða að einn maður drottni yfir ykkur? Minnist þess einnig að ég er hold ykkar og bein.“

3Móðurbræður hans mæltu öll þessi orð um hann í eyru Síkembúa svo að hugur þeirra hneigðist að Abímelek og þeir sögðu: „Hann er bróðir okkar.“

4Þeir gáfu honum sjötíu sikla silfurs úr musteri Baals Berits og Abímelek leigði fyrir þá þrjóta og lausamenn og gerðist fyrirliði þeirra.

5Því næst fór hann til húss föður síns í Ofra og drap bræður sína, syni Jerúbbaals, alls sjötíu manns, á einum steini. Jótam, yngsti sonur Jerúbbaals, komst einn undan en hann hafði falið sig.

6En allir Síkembúar söfnuðust nú saman og allir þeir sem bjuggu í Bet Milló og tóku þeir Abímelek til konungs hjá merkisteinseikinni við Síkem.

7Þegar Jótam frétti þetta fór hann og stóð á tindi Garísímfjalls, hóf upp rödd sína, kallaði og mælti til þeirra: „Heyrið mig, Síkembúar, svo að Guð heyri ykkur.

8Einu sinni hugðust trén smyrja konung sér til handa. Og þau sögðu við olíutréð: Ver þú konungur yfir okkur.

9En olíutréð sagði við þau: Á ég að láta eftir olíu mína sem Guð og menn virða mig fyrir og fara að sveima uppi yfir trjánum?

10Þá sögðu trén við fíkjutréð: Komdu og vertu konungur yfir okkur.

11En fíkjutréð svaraði þeim: Á ég þá að láta eftir sætu mína og ávextina gómsætu og fara að sveima uppi yfir trjánum?

12Þá sögðu trén við vínviðinn: Komdu og vertu konungur yfir okkur.

13En vínviðurinn sagði við þau: Á ég að láta eftir vínlög minn, sem gleður bæði Guð og menn, og fara að sveima uppi yfir trjánum?

14Þá sögðu öll trén við þyrninn: Komdu og vertu konungur yfir okkur.

15En þyrnirinn sagði við trén: Ef það er alvara ykkar að smyrja mig til konungs, komið þá og fáið ykkur skjól í skugga mínum. En sé ekki svo þá gangi eldur út frá þyrninum og eyði sedrustrjánum á Líbanon.

16Ef þið hafið sýnt hreinskilni og einlægni í því að taka Abímelek til konungs, ef þið hafið gert vel við Jerúbbaal og hús hans og ef þið hafið breytt við hann eins og hann hafði til unnið −

17því að faðir minn barðist fyrir ykkur og stofnaði lífi sínu í hættu og ykkur frelsaði hann úr höndum Midíans

18en þið hafið í dag risið upp gegn húsi föður míns og drepið syni hans, sjötíu að tölu, á einum steini og tekið Abímelek, son ambáttar hans, til konungs yfir Síkembúa af því að hann er bróðir ykkar −

19og ef þið hafið þá sýnt Jerúbbaal og ætt hans hreinskilni og einlægni í dag, þá gleðjist yfir Abímelek og gleðjist hann þá líka yfir ykkur.

20En ef svo er ekki, þá gangi eldur út frá Abímelek og eyði Síkembúum og þeim sem búa í Bet Milló og eldur gangi út frá Síkembúum og þeim sem búa í Bet Milló og eyði Abímelek.“

21Síðan lagði Jótam á flótta og fór til Beer. Þar dvaldist hann vegna Abímeleks, bróður síns.

22Abímelek réð nú fyrir Ísrael í þrjú ár.

23Þá sendi Guð anda sundurþykkis milli Abímeleks og Síkembúa, svo að Síkembúar brugðu trúnaði við Abímelek,

24til þess að hefnd gæti komið fyrir níðingsverkið á sjötíu sonum Jerúbbaals og að blóð þeirra kæmi yfir Abímelek, bróður þeirra, sem hafði drepið þá, og Síkembúa sem höfðu hjálpað honum að drepa bræður sína.

25Settu Síkembúar þá menn í fyrirsát gegn honum hæst á fjöllum uppi og rændu þeir alla þá er um veginn fóru fram hjá þeim. Og Abímelek var sagt frá þessu.

26Þá komu Gaal Ebedsson og bræður hans. Þeir héldu inn í Síkem og Síkembúar fengu traust á honum.

27Þeir fóru út á akurinn, tíndu vínber í víngörðum sínum og tróðu þau og héldu hátíð, fóru inn í musteri guðs síns, átu og drukku og bölvuðu Abímelek.

28Og Gaal Ebedsson sagði: „Hver er Abímelek og hverjir erum við í Síkem, að við eigum að lúta honum? Er hann ekki sonur Jerúbbaals og Sebúl höfuðsmaður hans? Þessir menn lutu mönnum Hemors, stofnanda Síkem. Hví skyldum við lúta honum?

29Ef þetta fólk væri undir minni stjórn skyldi ég ekki vera lengi að reka Abímelek burt. Ég mundi skora á Abímelek: Fylktu liði og gakktu fram.“

30Er Sebúl, höfuðsmaður borgarinnar, frétti ummæli Gaals Ebedssonar varð hann afar reiður,

31sendi menn á laun til Abímeleks og lét segja honum: „Gaal Ebedsson og bræður hans eru komnir til Síkem og æsa þeir borgina upp gegn þér.

32Farðu nú af stað að næturlagi með liðið sem hjá þér er og feldu þig á ökrunum.

33Að morgni, þegar sól rennur upp, skalt þú vera snemma á fótum og ráðast á borgina. Þá mun hann og lið hans fara út á móti þér og þú skalt þá fara með hann eins og færi gefst.“

34Þá fór Abímelek af stað um nótt með allt lið sitt og þeir leyndust á fjórum stöðum fyrir Síkem.

35Þegar Gaal Ebedsson kom út og nam staðar fyrir utan borgarhliðið spratt Abímelek upp úr launsátrinu og liðið sem með honum var.

36Gaal sá liðið og sagði við Sebúl: „Sjá, þarna kemur fólk ofan af fjöllunum.“ En Sebúl sagði við hann: „Þú sérð skuggana í fjöllunum og heldur að það séu menn.“

37En Gaal þagnaði ekki og sagði: „Þarna kemur fólk niður frá Tabbúr-erets og annar hópur kemur frá Elón-meónením.“

38Þá mælti Sebúl við hann: „Hvar eru nú stóryrði þín? Þú sagðir: Hver er Abímelek? Ber okkur að lúta honum? Er þetta ekki liðið sem þú fyrirleist? Farðu út og berstu við það.“

39Fór Gaal þá fyrir Síkembúum og barðist við Abímelek.

40En Abímelek sótti svo hart að honum að hann flýði fyrir honum og varð þar mannfall mikið allt að borgarhliðinu.

41Eftir það dvaldist Abímelek í Arúma en Sebúl rak Gaal og bræður hans burt svo að þeir gátu ekki búið í Síkem.

42En daginn eftir fór fólkið út á akurinn og sögðu menn Abímelek frá þessu.

43Þá tók hann lið sitt, skipti því í þrjár sveitir og leyndist á akrinum. Þegar hann sá fólkið koma út úr borginni réðst hann á það og vann sigur á því.

44Abímelek sjálfur og sveitin, sem með honum var, skundaði fram og nam staðar fyrir borgarhliðinu en báðar hinar sveitirnar gerðu áhlaup á alla þá sem voru úti á víðavangi og unnu sigur á þeim.

45Því næst herjaði Abímelek á borgina allan þann dag, vann hana og drap fólkið sem í henni var. Hann braut síðan niður borgina og stráði yfir hana salti.

46Þegar allir þeir menn, sem bjuggu í Síkemturni, heyrðu þetta gengu þeir inn í hvelfinguna í musteri Sáttmála-guðs.

47Og er Abímelek var sagt frá því að allir menn í Síkemturni hefðu safnast þar saman

48fór hann upp á Salmónfjall með allt lið sitt. Og Abímelek tók öxi í hönd sér og hjó af trjágrein, hóf hana á loft og lagði á herðar sér og sagði við liðið sem með honum var: „Gerið nú sem skjótast það sama og þið sáuð mig gera.“

49Þá hjuggu allir mennirnir hver sína grein, fylgdu Abímelek og báru þær að hvelfingunni og lögðu síðan eld í hvelfinguna yfir þeim. Þannig dóu allir menn í Síkemturni, hér um bil þúsund karlar og konur.

Dauði Abímeleks

50Síðan fór Abímelek til Tebes og settist um Tebes og vann hana.

51Í miðri borginni var rammgerður turn. Þangað flýðu allir borgarbúar, jafnt karlar sem konur. Lokuðu þeir sig þar inni og fóru síðan upp á þakið á turninum.

52Nú kom Abímelek að turninum og gerði árás á hann. En þegar hann gekk að dyrum turnsins til þess að leggja eld í hann

53kastaði kona ein efri kvarnarsteini í höfuð Abímeleks og mölvaði sundur hauskúpuna.

54Þá kallaði hann sem skjótast til skjaldsveins síns og mælti við hann: „Bregð þú sverði þínu og dreptu mig svo að ekki verði sagt um mig: Kona drap hann.“ Þá lagði sveinn hans hann í gegn og varð það hans bani.

55Þegar Ísraelsmenn sáu að Abímelek var fallinn fóru þeir hver til síns heima.

56Þannig launaði Guð illsku Abímeleks sem hann hafði sýnt föður sínum þegar hann drap sjötíu bræður sína.

57Og Guð lét alla illsku Síkembúa koma þeim í koll. Rættist þannig á þeim formæling Jótams Jerúbbaalssonar.

Blog
About Us
Message
Site Map

Who We AreWhat We EelieveWhat We Do

Terms of UsePrivacy Notice

2025 by iamachristian.org,Inc All rights reserved.

Home
Gospel
Question
Blog
Help